Reykjalundur - 01.10.1979, Síða 30
Oddur Olafsson alþingism. og læknir
AFMÆLISKVEÐJA
26. apríl 1979
Oddur Ólafsson læknir og alþingismaður er
sjötugur í dag. Hann ber þann aldur með ágæt-
um, raunar með glæsibrag, eins og hans er
von og vísa. Með sömu ágætum og sama glæsi-
brag hefur hann í áratugi verið í forustu sam-
starfsmanna, eða eftir atvikum samherja, í
læknisstörfum, félagsmálaþjónustu og stjórn-
málum.
Oddur er Suðurnesjamaður í luið og liár,
Reykjanesmaður kannski réttara að segja nú
orðið, fæddur á Kalmanstjörn í Hafnahreppi,
sonur Ólafs bónda þar og hreppstjóra Ket-
ilssonar og konu hans Steinunnar Oddsdóttur
prests og slysavarnafrömuðar Gíslasonar. í
Menntaskólann í Reykjavík fór Oddur 14 ára
en um það leyti herjaði berklaveiki harðast
hér á landi, ekki síst rneðal ungs fólks, enda
reyndist um helmingur skólasystkina Odds fá
smitandi berkla ýmist í skóla eða síðar. Oddur
var í hópi hinna síðarnefndu. Að loknu stúd-
entsprófi 1929 hóf hann nám í læknadeild
Háskóla íslands en veiktist illa af lungna-
berklum þegar hann var um það bil hálfnaður
með námið. Hafði þá um haustið staðið ásamt
fleirum að stofnun stúdentafélags og verið
kjörinn fulltrúi þess í stúdentaráð en jafn-
framt unnið sem læknastúdent á Kristneshæli.
Þá tók við tæplega tveggja ára sjúkrahúss- og
hælisvist og berklameðferð þeirra tíma var
liafin og var fram haldið í hans tilviki í 10 ár
alls. Hann liélt þó traustu taki í námsbækurn-
ar meðan hann var á Vífilsstöðum, hóf skóla-
sókn á ný haustið 1934 og lauk læknisprófi
vorið 1936. Hafði berklaveikin Joá aðeins náð
að tefja hann um eitt ár frá námi. Síðan var
Oddur aðstoðaryfirlæknir á Vífilsstöðum urn
nokkurra ára skeið og öðrum sjúkrahúsum,
m. a. í Bandaríkjunum, og var viðurkenndur
af heilbrigðisstjórninni sérfræðingur í berkla-
lækningum árið 1943.
Á þessum árum herjaði berklaveikin áfram
fullum fetum um land allt. Berklahælin voru
yfirfull af misjafnlega veiku fóki, biðtími eftir
vist jtar oft of langur, visttíminn of stuttur,
oftast vandkvæði með dvalarstað fyrir og eftir
hælisvist en einkum skorti J)ó vinnu við hæfi
eftir útskrift. Á þessum misserum ræddu
berklasjúklingar sín á milli að gerast sjálfir
28
RE Y KJ ALUNDUR