Húnavaka


Húnavaka - 01.05.1965, Side 59

Húnavaka - 01.05.1965, Side 59
HÚNAVAKA 57 lélags vors og verzlunart'élags og stjórnaði þeim sem torseti. Heimili lians var eins og sjálfvalinn fundarstaður.“ Samkvæmt þessu hefur Jósep læknir átt hugmyndina að því að kosta Torfa Bjarnason til búnaðarnáms í Skotlandi með það fyrir augum, að hann stofnaði fyrirmyndarbú í Húnavatnssýslu, og kom til mála að kaupa Auðunnarstaði í því skyni, en úr þessum fram- kvæmdum varð ekki sökum jaess, að árferði versnaði og ýmsir af samstarfsmönnum Jóseps læknis féllu frá. Torfi sjálfur mun og hafa haft takmarkaða trú á því að verða ráðsmaður á félagsbúi, en setti sjálfur upp búnaðarskóla í Olafsdal, sem kunnugt er. Þá segir Jósep læknir svo I bréfi til J. P. 28. febrúar 1866: „Við Húnvetningar sendu tvo menn til amerísku hvalfangaranna eystra, eigi að vera með þeim frá aprílbyrjun frarn í október eða nóvember." — „Augna- miðið er, ef lukkan er með, að læra hvalveiðar og fá áhöld til |iess með tímannm, Jdví nóg er til af hvölum á Húnaflóa.“ Langt mál mætti skrifa um baráttu Jóseps læknis fyrir innlendri verzlun og afskiptum hans af stofnun og starfi Verzlunarfélagsins við Húnaflóa, og þá ekki síður af afskiptum hans af stjórnmálum. Hann var Jijóðfundarfulltrúi 1851, og hefur verið allmikilúðlegur, er hann steytti hnefana framan í stiptamtmanninn, Trampe greifa, í fundarlok. Hann vaf kosinn alþingismaður Húnvetninga 1853, en meinuð þingseta af Pétri Havsteen amtmanni og lá við sjálft, að því er hann sjálfur telur, að hann yrði sviptur læknislaunum sínum, en svo mikill drengskaparmaður var hann, að hann gerðist hollur ráðgjafi amtmanns í veikindum hans og raunum, þrátt fyrir fyrri óvináttu Joeirra. Hann varð og á mjög öndverðum meiði við Jón Sigurðsson forseta í fjárkláðamálinu, sem varð mesta hitamál Norð- lendinga, en ekki dró það úr hollustu hans við Jón í sjálfstæðisbar- áttu Islendinga. Sanngirni hans lýsir sér í þessum orðum frá 8. ágúst 1859: „Hingað komu kláðakonungarnir með Teit Finnbogason í halanum." — „Mér líkaði vel við Tscherning ffjárkláðalækni), þótt stundum væri nokkur meiningamunur." Jósep vildi fá Jón Pétursson vin sinn til að verða sýslumann Hún- vetninga og segir svo 18. sept. 1859: „Þóknist Drottni að fría okk- ur Húnvetninga frá faraldrinum, verða ekki aðrar sýslur viðunan- legri en þessi sýsla, þegar á allt er litið.“ Jósep læknir hafði fengið auðugt kvonfang, rekið stórt bú á góðri jörð og haft mikla aðsókn sem læknir, en fé mun hafa gengið af

x

Húnavaka

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húnavaka
https://timarit.is/publication/1122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.