Húnavaka - 01.05.1965, Blaðsíða 75
H Ú N A V A K A
7.‘5
meðan við fórum upp að fossinum. í.ítið fannst mér til um um-
oengnina á þeim fjölfarna stað. IJað er of víða sem enn er ábóta-
vant umgengni á fjölförnum stöðum á landi hér.
Við höldum áfram. Jón bílstjóri segir okkur skemmtilega sögu
um sveitarmeting milli Aðaldælinga og Reykdælinga. Senn sjáum
við heim að Laugum, dásamlegur staður og fagurt umhverfi, við
eigum að stanza Jrar á heimleiðinni. ()g áfram brunar bíllinn og
innan stundar horfum við yfir Mývatnssveitina með öllum sínum
undurfögru náttúrufyrirbærum. Hinn virðulegi Vindbelgur trón-
ir einn og óstuddur, gott tákn um Jnngeyskt stolt. Nú er enginn
tími til að syngja. Jón og Kristófer hafa frá nógu að segja í magn-
arann og eru óþreytandi að útskýra það sem fyrir augun ber.
A einum stað niður með vatninu sáum við tvo fiskimenn ný-
komna að landi með afla sinn. — Jón stiiðvar bílinn og allir fara út.
Guð minn góður, en sú veiði. Þarna voru rnargar hrúgur af skín-
andi fallegri ltleikju, en mennirnir voru að sama skapi púkalegir og
bleikjurnar voru fallegar, og það leyndi sér ekki að Jreir voru lítið
hrifnir af þessari heimsókn.
Næsti viðkomustaður voru Dimmuborgir. Þær verða mér minni-
stæðar meðan ég lifi. Ef ég væri skáld myndi ég yrkja um allar þær
kynjamyndir sem ég sá. Ég gleymdi tímanum, og hrcikk upp við bíl-
flaut í fjarska. Ég leit á klukkuna, tíminn var kominn. Kristófer
fararstjóri var eflaust að kalla saman liðið. Ég þaut sem fætur tog-
uðu og innan stundar var ég komin að hliðinu, Jrar voru ferðafélag-
arnir að koma.
Við tókum upp nesti okkar í brekkunni hjá Reynihlíð, Jrað þarf
líka að hugsa um magann í svona ferðum. Þaðan ókum við upp á
Námaskarð. Þaðan var skyggni mjög gott allt austur til Hólsfjalla
og Austfjarðahálendisins. Það er næsta furðulegt að sjá rjúkandi
gufuna upp úr jörðinni allt í kringum sig, og sjóðandi leirhverina
í hverri sprungu. Við fengum ekki að fara út úr bílnum á Náma-
skarði, fararstjórinn liélt að eitthvert okkar dytti í einhvern leir-
pyttinn, og Jrað virtust allir ánægðir með þá ráðstöfun, enda nutum
við vel útsýnisins úr þessum gluggastóra bíl.
Frá Námaskarði var haldið heim á leið. Var farið til baka norð-
an við Mývatn og sem leið liggur til Akureyrar með viðkomu á
Laugum.
Þegar við komum á vesturbrún \;aðlaheiðar sáurn við næsta