Húnavaka


Húnavaka - 01.05.1965, Side 61

Húnavaka - 01.05.1965, Side 61
JVfeé kvöldkaffinu Kristófer Kristjánsson tók saman. Ég hef tekið hér saman nokkrar gamansögur um menn og málefni hér í Húnaþingi, er flestar hafa gengið hér manna á milli og upp- lagðar eru til að brosa að þeim stundarkorn. Vart þarf að taka fram, en skal þó gert, að hér er um að ræða endursögn af minni hálfu í flestum tilfellum, og því ekki tekin ábyrgð á að alls staðar sé nákvæmlega rétt frá atburðum skýrt, þar eð eitthvað getur hafa brenglazt atburðarásin í sögnum manna á milli, þann tíma sem liðinn er frá því þessar frásagnir gerðust. Kr. Kr. Jósep Einarsson á Hjallalandi mun hafa verið sérstæður maður á sinni tíð, stórbrotinn bæði í útliti og athöfnum. Bjó hann með konu er Guðrún hét Þorgrímsdóttir. Heldur var sagt að sambúðin væri stirð, því bæði voru stórlát og mikil fyrir sér. Sagt er, að þau hafi á yngri árum látið lýsa með sér þremur lýsingum. En þegar giftingardagurinn rann upp og hjónaefnin voru að ríða úr hlaði sinnaðist þeim eitthvað, sem varð til þess að sprett var af hestun- um og hætt við giftinguna, mun ekki hafa verið minnzt á slíka hluti oftar. Þegar Jósef lá banaleguna og var orðinn langt leiddur ætlaði Guð- rún að fara að láta vel að honum. Sneri karl sér þá til veggjar og sagði: ,,Of seint, Gunna.“ Ólafur Bjarnason var einu sinni staddur á Löngumýri hjá Pálma bónda, seinni part sumars, sátu þeir inni og voru að rabba saman.

x

Húnavaka

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húnavaka
https://timarit.is/publication/1122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.