Húnavaka


Húnavaka - 01.05.1965, Page 81

Húnavaka - 01.05.1965, Page 81
HUNAVAKA 79 var á liðnu sumri 10 þúsund hestar af töðu, auk þess nytjuðu nágrannabændur þar nokkur tún. Slátrað var í haust um 7 þús. fjár og 100 stórgripum hjá Kaup- félagi Skagstrendinga. Nú eru á fóðrum í kaupstaðn- um um 2200 kindur, 44 kýr og hrossaeign er 100 hross. í október 1963 stofnuðu tveir ungir menn í Höfðakaupstað vél- smiðju, eru það þeir Karl Bernd- sen vélvirki og Þórarinn Björns- son. Heitir smiðjan „Vélaverk- stæði Karls og Þórarins“. Annast það viðgerðir landbúnaðarvéla, bíla- og bátavéla, miðstöðvar- lagningu, smíði miðstöðvarkatla, plötusmíði og rennismíði. Hafa eigendur smiðjunnar aflað sér góðs vélakosts. Mannalát. Valdimar Olafur Stefánsson, Bakkakoti, andaðist 18. apríl. Hann var fæddur 25. des. 1878 að Balaskarði. Hann var lengi bóndi á Efri-Mýrnm og Bakka- koti í Engihlíðarhreppi. Hann var dugnaðarmaður og vinsæll. Sigríður Guðnadóttir húsfrú Breiðabliki Höfðakaupstað and- aðist 4. marz, hún var fædd 28. okt. 1900 að Hvammi í Holtum. Hún var kona Páls Jónssonar skólastjóra Höfðakaupstað. Sig- ríður Guðnadóttir tók mikinn þátt í félagslífi, var um fjölda ára formaður kvenfélagsins „Ein- ingin“ í Höfðakaupstað, þá var hún um árabil formaður sóknar- nefndar Hólaneskirkju. Kven- félagið gaf Hólaneskirkju nú á jólum mjög fallegan silfurkross til að prýða með altarið. Geirlaug Sigfúsdóttir Reyk- holti Höfðakaupstað andaðist 20. sept. Hún var fædd 6. sept. 1885 í Hringveri í Skagafirði. Pétur Þ. Ingjaldsson. Frá samvinnufélögunum. Hjá S.A.H. var slátrað 35.442 kindum sl. haust eða um 3000 kindum færra en haustið 1963. Reyndust dilkar með vænna móti og flokkuðust mun betur en undanfarin ár. í haust fóru 4.3% dilkanna í þriðja flokk, en haustið 1963 17.5% í sama flokk. Flest fé lagði inn Guðmundur Jónasson bóndi Asi, eða 855 kindur. Hæstan fallþunga dilka hafði Ntetán Nigurösson bóndi Steiná Svartárdal. Hann lagði inn 82 lömb sem vorn 17.47 kg að með- altali. Innlögð mjólk á árinu 1964 var 3.530 tonn, en var árið 1963 3.400 tonn. Er þetta um 4% aukning á mjólkurmagni.

x

Húnavaka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Húnavaka
https://timarit.is/publication/1122

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.