Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2015, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2015, Blaðsíða 30
Matur og drykkir Borð fyrir einn, takk *Hollenski veitingastaðurinn Eenmaal er sáfyrsti sem byggist á því að allir sitji einir tilborðs. Veitingastaðurinn starfar ekki allt áriðheldur er „pop up“-staður. Flestir þekkja aðþað geti verið óþægilegt að mæta einn á veit-ingastað en á Eenmaal er gert út á þetta ogskapað umhverfi þar sem hægt er að njóta matar einn á ánægjulegan hátt. Hönnuðurinn Van Goor stendur á bak við verkefnið. A potek Restaurant hefur stimplað sig hratt og vel inn í veitinga- húsaflóruna í miðbænum frá því að veitingastaðurinn var opnaður í desember á síðasta ári. Staðurinn hefur unn- ið sér inn orðspor fyrir vel gerða og góða kokkteila og blómstrar barinn á „happy ho- ur“ þar sem hristarinn er við völd. Orri Páll Vilhjálmsson, eigandi veitingastaðarins, sem staðsettur er á horni Austurstrætis og Póst- hússtrætis, segist hafa markvisst unnið að því að færa kokkteilamenninguna upp á „annað level“. Hann segir að að mörgu leyti þurfi að líta á barinn á sama hátt og eldhús. „Það er mikið sem þarf að undirbúa. Við erum með vín sem er tón- að,“ nefnir hann sem dæmi, en dilltónað gin er einmitt notað í annan kokkteilinn hér fyr- ir neðan. Annað sem þarf að undirbúa fyrir annasamt kokkteilakvöld er til dæmis alls- konar síróp. Til að gæta jafnvægis og fá eitthvað fyrir alla er hinn kokkteillinn sem veitingastaðurinn gaf uppskrift að áfengis- laus. „Kokkteilamenningin er búin að þróast svo mikið síðustu ár að kúnninn er byrjaður að þora að prófa eitthvað annað en mojito, sex on the beach og pina colada,“ segir hann og þarf því kokkteilaseðillinn að endurspegla það. „Þetta er að þróast í rétta átt.“ Hverjir hafa verið vinsælustu drykkirnir hjá ykkur? Hvaða straumar og stefnur eru í gangi? „Það er allur gangur á því í raun og veru höfundur dillagins og fyrir stuttu vann hann síðan brennivínskokkteilakeppni. „Það er drykkur sem kemur bráðum á lista hjá okk- ur,“ segir hann en hann inniheldur meðal annars gulrótarsíróp. Af öðrum nýjungum á næstunni segir Orri að sumarkokkteilaseðill sé væntanlegur, sem fái innblástur frá fáanlegu fersku hráefni árstíðarinnar. andi virka fyrir alla, drykkir sem eru full- komlega í jafnvægi. Róandi eru síðan de- sertakokkteilar,“ útskýrir Orri en áfengislausir kokkteilar eru í lyfleysu- flokknum. Hluta af velgengni staðarins sem kokkteilastaðar má áreiðanlega rekja til þess að á barnum starfar barþjónninn Kári Sig- urðsson, sem er margverðlaunaður. Hann er en dillagin hefur verið langvinsælastur. Þetta er kokkteill sem vann Íslandsmót bar- þjóna 2015,“ segir Orri og bætir við að stað- urinn reyni að vera með kokkteila sem henti öllum. Í þeim tilgangi er kokkteilaseðillinn fjórskiptur í flokkana örvandi, róandi, verkjastillandi og lyfleysu. „Verkjastillandi kokkteilarnir eru fyrir lengra komna, með kannski meiri beiskju eða áfengismeiri. Örv- Verðlaunabarþjónninn Kári Sigurðsson að störfum við barinn að blanda eitt stykki dillagin. Morgunblaðið/Styrmir Kári APOTEK RESTAURANT LEGGUR MIKIÐ UPP ÚR KOKKTEILUM Dilltónað gin og gulrótarsíróp KOKKTEILASEÐILLINN Á APOTEK RESTAURANT ER FLOKKAÐUR Í ÖRVANDI, RÓANDI, VERKJA- STILLANDI OG LYFLEYSU. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Orri Páll Vilhjálmsson 10 bláber 6 cl ferskur appelsínusafi 6 cl trönuberjasafi 3 cl sykursíróp 3 cl lime-safi Allt sett í blandara með klaka, blandað saman og skreytt með granatepli, appelsínu og myntu. Smootsy muchy 4,5 cl dilltónað Beefeater-gin 1,5 cl mangólíkjör 3 cl lime-safi 3 cl sykursíróp Dill er sett í blandara með gini og blandað saman. Síðan er allt hrist saman í hristara með klaka og sigtað í kælt glas. Dillagin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.