Fréttablaðið - 21.01.2015, Page 1

Fréttablaðið - 21.01.2015, Page 1
VEISLUÞJÓNUSTA Kynningarblað MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2015 SANDUR OG SALT Íbúar Reykjavíkur geta sótt sand og salt á hverfa-stöðvar og verkbækistöðvar Reykjavíkurborgar. Íbúar eru hvattir til að hafa með sér ílát en einnig er mögulegt að fá poka á staðnum. Skóflur eru við sand- og salthrúgurnar. Hrafnhildur Ólafsdóttir er kona á besta aldri. Hún starfaði við ferðaþjónustu árum saman og nýtir nú tíma sinn við hjálparstarf hjá Rauða kross-inum og í sjálfboðavinnu í Rauðakrossbúðinni. EKKI SOFIÐ BETUR Í MÖRG ÁR Hrafnhildur, eins og fjölmargir aðrir, hefur átt við svefn-vandamál að stríða um árabil sem hún hefur nýlega ráðið bót á. Hún prófaði náttúrulega fæðubótarefnið Magnolia og segist ekki hafa sofið betur í mörg ár. „Ég vil alls ekki nota lyfseðilsskyld svefnlyf og ákvað því að prófa Magnolia. Ég hef tekið tvö hylki á kvöldin um klukkustund fyrir svefn í nokkra mánuði og hef ekki sofið betur í mörg ár. Mér finnst rosalega gott að vita af því, það gefur mér mikla öryggistilfinningu.“ ÓTRÚLEGT HVAÐ GÓÐUR SVEFN ER MIKILVÆGURAð ö ÁTT ÞÚ VIÐ SVEFN- VANDA AÐ STRÍÐA? BALSAM KYNNIR MAGNOLIA frá Natural Health Labs. Tilvalið fyrir þá sem vilja aðstoð við svefnvandamálum og stuðla að heilbrigðum svefni ásamt því að vinna gegn þunglyndi, kvíða og depurð og bæta andlega og líkamlega líðan. MÆLIR MEÐ Hrafnhildur Ólafsdóttir mælir eindregið með Magnolia. MYND/GVA DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS Taka 12 Kg · Hljóðlát Stórt op > auðvelt að hlaða Sparneytin amerísk tæki. <Þvottvélin tekur heitt og kalt vatn Afkastamikill þurrkari > Þvottavél Þurrkari12 kg Amerísk gæðavara Amerísk gæðavara www.visir.is Sími: 512 5000 | Miðvikudagur 21. jan úar 2015 | 3. tölubla ð | 11. árgangur V IÐ KO MUM V ÍÐA V IÐ ! Nýtt verkefni í Afríku Íslenska fyrirtækið Creditinfo hefur v erið valið til að stýra miðlun fjá rhagsupplýsinga í V est- d l i u Átta þjóð ir í MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl-júní 2014 Miðvikudagur 16 3 SÉRBLÖÐ Markaðurinn | Veisluþjónusta | Fólk Sími: 512 5000 21. janúar 2015 17. tölublað 15. árgangur Rannsaka sauðfé vegna HIV Vís- indauppgötvanir tengdar sjúkdómum í sauðfé bættu skilning á alnæmi. 4 Kærðir vegna sæstrengs Rétt leyfi skorti fyrir sæstreng yfir Arnarfjörð, sem hefur verið slitinn af rækjusjó- mönnum. 6 Ríkið greiðir lyf fíkla Ríkið tekur nú þátt í kostnaði með SÁÁ við ævilanga meðferð við ópíumfíkn. 8 SKOÐUN Torfi H. Tulinius segir að þrengt hafi verið að lýðræðishefð HÍ. 17 SPORT Stórmeistarajafn- tefli í sögulegum Íslend- ingaslag í Katar. 28 MARKAÐURINN FRÉTTIR Hundraða milljarða velta Samanlögð árleg velta þriggja stærstu aðila á matvörumarkaði nemur 118 milljörðum króna og samanlagður hagnaður er um fjórir milljarðar. Hagnaður Haga er sexfalt meiri en hagnaður Kaupáss. 2 dagar KRINGLUNNI • SÍMI 568 9400 • BYGGTOGBUID.IS Á MÖGNUÐU TILBOÐI! YFIR 1000 VÖRUR STÓRA ÚTSALAN 20-70% afsláttur! MENNING Ég uppgötvaði landslagið í póstkortum í Hollandi. 22 FÓLK Skemmtistaðaeigendur í miðbæ Reykjavíkur eru uggandi því að um næstu helgi þurfa allir djammarar að vera búnir að leggja pinnið sitt á minnið. Ekki verður lengur nóg að ýta bara á græna takk- ann ef pinnið gleymist. Óvíst er hvort þeir eiga allir jafnauðvelt með að muna eftir pin- númerinu á kortunum sínum, sér- staklega ef þeir eru undir áhrif- um. „Þetta verður eitthvað bíó vegna þess að fólk er ekki alveg í besta skapinu og besta standinu þegar líður á nóttina. Ég held að þetta verði svolítið vesen,“ segir Össur Hafþórsson, annar eigenda Park, Bars 11 og Bars 7. - fb / sjá síðu 32 Djammarar um næstu helgi: Verða að muna pin-númerin LÍFIÐ María Birta Bjarna- dóttir í prufu fyrir nýja mynd leikstjórans Luc Besson. 32 20 ÁFANGA- STAÐIR 2015 HEILBRIGÐISMÁL Aðeins fimmt- ungi af fé Framkvæmdasjóðs aldraðra er úthlutað til verkefna á vegum sjóðsins. Langstærstur hluti framkvæmdasjóðsins fer í leigu á öldrunarhúsnæði víðsveg- ar um landið og rekstur öldrunar- heimila. „Það er áhersluatriði hjá mér varðandi uppbyggingu hjúkr- unar rýma að þessa fjármuni sem renna í rekstur fáum við til uppbyggingar nýrra hjúkrunar- rýma,“ segir Kristján Þór Júlíus- son heilbrigðisráðherra. Frá 2010 til 2014 hafa 8,2 milljarðar króna runnið í sjóð- inn. 1.672 milljónum hefur verið úthlutað úr sjóðnum til verkefna sem sótt hefur verið um í sjóðinn. Mismunurinn, um 6,5 milljarðar, fer í ýmsa hluti, svo sem rekstur stofnanaþjónustu, leigugreiðslur vegna hjúkrunarheimila og við- halds öldrunarstofnana. Þórunn Sveinbjörnsdóttir, for- maður Félags eldri borgara, segir félagið lengi hafa gagnrýnt stöðu sjóðsins og telur hann verða að fá meira svigrúm til nýfram- kvæmda. „Það er mjög slæmt að festa framkvæmdasjóð í klöfum rekstrarkostnaðar og geta ekki að fullu beitt sér í uppbyggingu nýrra hjúkrunarrýma.“ Árið 2009 var ákveðið að fara svokallaða leiguleið sem skuld- bindur ríkið til að leigja hjúkrun- arrými til 40 ára fyrir um 85% af stofnkostnaði og sveitarfélög taka á sig hin 15%. Þessi leiguleið kostaði ríkið um 625 milljónir á síðasta ári og um milljarð árið 2013 svo stór hluti Framkvæmdasjóðs aldraðra er bundinn rekstri og leigu hjúkr- unarrýma í stað þess að sinna nýframkvæmdum. Lögbundin stjórn stýrir Fram- kvæmdasjóði aldraðra og hefur því úr takmörkuðum fjármunum að spila hvert ár. Alls 416 millj- ónir hafði framkvæmdasjóðurinn til að ráðstafa til nýframkvæmda en aðeins 132 milljónum var ráð- stafað úr sjóðnum það ár. Kristján Þór segir þetta vera til skoðunar innan ráðuneytisins. „Það er verið að vinna núna fyrir mig drög að framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarrýma. Þar er um umtalsverðar fjárhæð- ir að ræða,“ segir Kristján Þór. - sa Framkvæmdasjóður aldraðra nýttur til að borga húsaleigu Framkvæmdasjóði aldraðra er þröngur stakkur sniðinn til nýframkvæmda. Stórum hluta sjóðsins varið í rekstur öldrunarheimila og leigu hjúkrunarrýma. Félag eldri borgara hefur barist lengi fyrir breytingum. ÖSSUR HAFÞÓRSSON milljarðar fara í annað en nýframkvæmdir hjá Framkvæmdasjóði aldraðra. Bolungarvík 0° S 5 Akureyri -3° S 4 Egilsstaðir -4° SA 3 Kirkjubæjarkl. -4° S 3 Reykjavík 1° SSA 4 GÓÐVIÐRI Í dag verða víðast sunnan 3-8 m/s og léttskýjað en sums staðar stöku él. Vaxandi suðaustanátt seinni partinn með rigningu SV-til í seint í kvöld. 4 LÖGREGLUMÁL „Það hafa borist til- kynningar til lögreglu um ógnanir meðal annars milli barna og ung- menna í Vesturbænum, það er verið að vinna í því máli af hálfu lögreglu, félagsmálayfirvalda, barnaverndar- yfirvalda, skóla og foreldra,“ segir Kristján Ólafur Guðnason, aðstoðar- yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Hræðsla er meðal nemenda Hagaskóla þar sem hópur ung- menna, sem sum eru í skólanum og önnur ekki, hefur ógnað og hótað nemendum við skólann. Lögreglu hafa borist tilkynningar vegna málsins og er nú verið að vinna að því að leysa það í samstarfi við skóla-, félagsmála- og barna- verndaryfirvöld. Í gær kom foreldri barns, sem hafði orðið fyrir ónæði frá með- limi hópsins, í skólann á skóla- tíma til þess að ræða við meintan geranda. Til einhverra ryskinga kom á milli þeirra en ekki er vitað hversu alvarlegar þær voru. Lögreglumenn voru stadd- ir í skólanum á sama tíma á fundi með skólayfirvöldum til þess að reyna að finna lausnir á vand- anum sem skapast hefur vegna hópsins. Einnig hafa umsjónarkennar- ar sent foreldrum tölvupóst þar sem þeir eru hvattir til þess að ræða við börn sín. Dæmi eru um að ungmenni þori ekki að vera ein á ferð af ótta við að lenda í hópnum. - vh / sjá síðu 2 Hópur ungmenna hefur hrellt nemendur við Hagaskóla á ýmsan hátt: Ótti vegna ógnana og hótana Það koma tilvik öðru hverju þar sem að fáir einstak- lingar geta valdið miklu uppnámi. Þá einstaklinga þarf að finna og koma til aðstoðar og það er það sem verið er að gera núna. Kristján Ólafur Guðnason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 6,5 KÁTT Í KATAR Stuðningsmenn íslenska landsliðsins í handbolta hafa sett svip sinn á Doha, en þeir létu vel í sér heyra þegar strákarnir okkar gerðu jafntefli við Evrópu- og Ólympíumeistara Frakka í æsispennandi leik í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/EVA BJÖRK 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :5 3 F B 0 6 4 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 7 B -B D 2 C 1 7 7 B -B B F 0 1 7 7 B -B A B 4 1 7 7 B -B 9 7 8 2 8 0 X 4 0 0 1 A F B 0 6 4 s _ 2 0 _ 1 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.