Fréttablaðið - 21.01.2015, Blaðsíða 32
KYNNING − AUGLÝSINGVeisluþjónusta MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 20154
Það tekur alls ekki langan tíma að gera þessa brauðtertu og það má vel gera hana deginum áður
og skreyta síðan samdægurs. Mér
þykir alltaf vera kostur að geta unnið
á undan mér þegar ég er með veisl-
ur,“ segir Svava Gunnarsdóttir. Hún
heldur úti síðunni Ljúfmeti.com og
við fengum hana til að gefa uppskrift
að matarmikilli smurbrauðstertu.
„Ég hef mjög gaman af því að gera
brauðtertur en mamma mín er snill-
ingur í brauðtertugerð og sér yfirleitt
um þær fyrir mig þegar mikið stendur
til. Það kemst enginn með tærnar þar
sem hún hefur hælana í þeim efnum,“
segir hún.
En hvað er það við brauðtertur sem
öllum virðist þykja svona gott? „Ætli
það sé ekki bara fjölbreytnin í þeim
og hvað þær eru í raun sjaldan á borð-
um, oftast bara í veislum og á öðrum
tyllidögum. Það gefur þeim ákveðinn
sjarma. Síðan standa þær oft á veislu-
borðum innan um sætindi og það fer
vel saman að fá sér fyrst brauðtertu og
síðan smá sætt með kaffinu á eftir.“
Brauðterta með og kjúklingi
og beikoni
200 g beikonstrimlar
1 grillaður kjúklingur
10 sólþurrkaðir tómatar í olíu
1 dl majónes
3 dl hreint jógúrt
1 dl graslaukur, skorinn fínt
1 tsk. dijon-sinnep
½ tsk. salt
smá svartur pipar
18 franskbrauðsneiðar
400 g Philadelphia-ostur, við stofuhita
kirsuberjatómatar
ruccola
Steikið beikonið á pönnu. Látið
fituna renna af og leggið beikon-
ið til hliðar. Hreinsið kjúklingakjöt-
ið frá beinunum og skerið í smáa
bita. Hakkið sólþurrkuðu tómatana.
Blandið sólþurrkuðum tómötum,
majónesi, jógúrti, graslauk, sinn-
epi, salti, pipar, kjúklingi og beikoni
saman í skál. Skerið kantinn af brauð-
sneiðunum. Leggið sex brauðsneiðar
á fat og setjið helminginn af fyll-
ingunni yfir. Leggið aðrar sex
brauðsneiðar yfir fyllinguna
og setjið það sem eftir er af
fyllingunni yfir. Leggið
síðustu s brauðsneiðarnar
yfir. Setjið plastfilmu yfir
og látið standa í ísskáp í 3-4
klst. Smyrjið Philadelphia-
ostinum meðfram hliðunum
og yfir brauðtertuna. Skreytið
með ruccola og kirsuberjatómöt-
um. www.ljufmeti.com
Brauð og beikon mettar gestina
Smurbrauðstertur hafa lengi tilheyrt íslenskum veisluhöldum og virðast alltaf ganga jafn vel í gesti. Uppruna tertunnar má rekja til
Svíþjóðar en þar er Gunnar nokkur Sjödahl talinn hafa fundið brauðtertuna upp árið 1965. Smurbrauðstertudagurinn er meira að
segja haldinn hátíðlegur í Svíþjóð á fæðingardegi hans, 13. nóvember. Svava Gunnarsdóttir gefur hér uppskrift að matarmikilli tertu.
Kjúklingur
og beikon
eru í fyll-
ingunni.
Matarmikil
brauðterta sem fer
vel á veisluborði.
MYND/LJÚFMETI.COM
Einfalt að búa til daginn áður og skreyta
svo daginn sem veislan fer fram.
Verkefnin sem við fáum eru mjög fjölbreytt en sú þjónusta sem við bjóðum fyrirtækj-um er einkum árshátíðir, hvataferð-
ir og hvers kyns fyrirtækjapartí,“ segir Gunn-
ar Traustason, framkvæmdastjóri g-events.
„Við þjónustum einnig einstaklinga og sjáum
um stórafmæli, brúðkaup og fleira. Eitt af því
skemmtilegasta við
þennan rekstur er fjöl-
breytileikinn. Hvert og
eitt verkefni er sérstakt í
huga okkar og við leggj-
um okkur fram um að
veita góða og áreiðan-
lega þjónustu.“
Gunnar segir að
miðað við þá miklu
aukningu sem hefur
verið á verkefnum
g-events milli ára
myndi hann áætla að
það gæti mikillar bjart-
sýni í þjóðfélaginu þessa stundina.
Starfsfólk g-events leggur sig fram um að
vera frumlegt og fara óhefðbundnar leiðir þegar
kemur að því að halda eftirminnilegar veislur
og viðburði. „Við getum boðið viðskiptavinum
okkar upp á skemmtilegar staðsetningar. Það
var ákveðið strax frá byrjun að það yrði okkar
sérstaða að bjóða upp á dálítið óhefðbundnar
lausnir fyrir viðskiptavini okkar. Nú fyrir stuttu
opnaðist sá valmöguleiki að vera með einka-
samkvæmi í gömlu hlöðunni á Korpúlfsstöð-
um. Við vorum ofboðslega hrifin af salnum sjálf
en vorum ekki alveg viss um hvort viðskiptavin-
ir okkar væru sama sinnis. Það kom hins vegar
á daginn að fólk þyrsti í eitthvað nýtt og spenn-
andi sem við erum mjög ánægð með því þetta
er frábær salur að vinna með,“ útskýrir Gunn-
ar og brosir.
Skemmtilegar veislur og
viðburðir á óhefðbundum stöðum
g-events er viðburðastjórnun sem tekur að sér allt sem kemur að undirbúningi og skipulagningu viðburða. Þjónustan spannar allt frá
því að leigja viðskiptavinum veisluborð og stóla og upp í það að skipuleggja og halda utan um viðburði fyrir allt að tvö þúsund gesti.
Gunnar Traustason,
framkvæmdastjóri
g-events, segir starfsfólk
fyrirtækisins leggja sig
fram um að veita góða
og áreiðanlega þjónustu.
Glæsilegur erlendur hópur sem var í gala-matarveislu og partíi sem g-events sá
um að skipuleggja.
„Það er alger nauðsyn að vera með gott starfsfólk til að allt gangi smurt,“ segir
Gunnar um starfsfólk sitt.
Rúmlega þúsund gesta partí í einu flottasta húsnæði Reykjavíkur, Hafnarhúsinu.
AÐSENDAR MYNDIR
Skemmtilegur dagur sem g-events fékk að skipuleggja fyrir rúmlega 200 manna
hóp sem fór út á land.
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:5
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
7
B
-E
E
8
C
1
7
7
B
-E
D
5
0
1
7
7
B
-E
C
1
4
1
7
7
B
-E
A
D
8
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
0
6
4
s
_
2
0
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K