Fréttablaðið - 21.01.2015, Blaðsíða 4
21. janúar 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4
40 milljörðum vörðu álverin á Íslandi í kaup á vörum
og þjónustu árið 2012 af um 700
fyrirtækjum.
Er þá raforka undanskilin.
VÍSINDI Tímamótarannsóknir
íslenskra vísindamanna á veirusjúk-
dómum í sauðfé stuðluðu að auknum
skilningi manna á alnæmisveirunni
HIV, og nýtast enn til þess að varpa
ljósi á líffræði HIV og alnæmis.
Þetta kom m.a. fram í hádegis-
fyrirlestri Halldórs Þormar, pró-
fessors emeritus í frumulíffræði
við Háskóla Íslands, í gær. Þar
sagði Halldór frá rannsóknum við
Tilraunastöð Háskóla Íslands í
meinafræði að Keldum sem sýndu
fram á að sauðfjársjúkdómarnir ill-
vígu visna og mæði væru sprottnir
af afbrigðum af
sama sjúkdóms-
va ld i , mæði-
visnuveirunni
(MVV).
Halldór rakti
þá ólíkindasögu
þegar hingað til
lands var flutt
karakúlfé, upp-
runnið í Úsbek-
istan, til kynbóta árið 1933 með
þeim afleiðingum að fimm fjárpest-
ir skutu rótum og ollu miklu tjóni.
Þessa sögu þekkja margir og þá ógn
sem sauðfjárbúskap í landinu staf-
aði af henni.
Í einföldustu mynd má segja að
tekist hafi að uppræta sjúkdómana
með skipulögðum niðurskurði sem
stóð fram yfir 1950.
Síður eru rannsóknir á sjúkdóm-
unum þekktar sem voru í höndum
íslenskra vísindamanna frá upphafi
og til þessa dags; ekki síst Björns
Sigurðssonar, fyrsta forstöðumanns
Tilraunastöðvar Háskóla Íslands,
Halldórs og fleiri, sem prófuðu þá
tilgátu, og sönnuðu, að visna væri
veirusjúkdómur. Framhaldsrann-
sóknir sýndu einnig að visnu- og
mæðiveirur væru afbrigði af sömu
veirunni. Síðar kom í ljós að sú veira
er náskyld hinni alræmdu HIV-
veiru sem veldur alnæmi í fólki.
Spurður hvort vísindamenn, sem
fyrstu árin börðust gegn HIV-veir-
unni, hafi þekkt til verka íslenskra
vísindamanna svarar Halldór því
til að svo hafi vissulega verið, þótt
annað hafi verið í forgrunni þeirra
vinnu. Skyldleikinn komi vel fram
í heiti veirunnar á meðal vísinda-
manna.
„Alnæmisveiran ræktaðist fyrst
árið 1983 og árið 1985 sýndi rað-
greining á erfðaefninu að hún var
af flokki lentiveira. Um 30 árum
áður höfðu fyrstu lentiveirurnar
verið ræktaðar og rannsakaðar að
Keldum. Þær nefndi Björn Sigurðs-
son hæggenga smitsjúkdóma, sem
heitið dregur nafn sitt af,“ segir
Halldór en Ashley Haase, prófess-
or í örverufræði, sem skilgreindi
lentiveirur árið 1975 leit til vinnu
Björns þegar hann valdi orðið lent-
is, eða hægur, sem nafn veirunnar.
svavar@frettabladid.is
Rannsóknir á sauðfé
bættu skilning á HIV
Vísindauppgötvanir á Íslandi á fyrri hluta 20. aldar tengdar sjúkdómum í sauðfé
reyndust síðar mikilvægar fyrir skilning á alnæmisveirunni. Vísindaheiti undir-
flokks í veirufræði dregur nafn sitt af þeim kenningum sem hér voru settar fram.
■ Alnæmisveiran HIV fannst snemma á níunda áratug tuttugustu aldar í
sjúklingum með forstigseinkenni alnæmis.
■ Rannsóknir sýndu að HIV veldur sjúkdómnum og í ljós kom að veiran var
svokölluð lentiveira, sú fyrsta sinnar tegundar sem fannst í mönnum.
■ Nærri 30 árum áður höfðu veirur af þessum flokki fundist hér á landi.
■ Sjúkdómarnir mæði [lungnasjúkdómur] og visna [heilasjúkdómur] herjuðu á
íslenskt sauðfé um miðbik tuttugustu aldar.
■ Björn Sigurðsson, fyrsti forstöðumaður Tilraunastöðvar Háskóla Íslands
í meinafræði að Keldum, hafði forystu um að ráðist var í rannsóknir á
sjúkdómunum. Björn réð Halldór Þormar til starfa árið 1957 til þess að prófa
þá tilgátu að orsakir visnu og mæði væru veirur og tókst þeim og samstarfs-
mönnum að staðfesta að visna væri veirusjúkdómur.
Lentiveiran fyrst skilgreind á Íslandi
SAUÐFÉ Hér-
lendis geisuðu
fimm fjár-
pestir sem urðu
kveikjan að
merku vísinda-
starfi á Íslandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VILHELM
HALLDÓR
ÞORMAR
VEIÐI Hreindýraveiðimönnum er
heimilt að fella 1.412 dýr á kom-
andi veiðiári, sem er fjölgun um
135 dýr frá fyrra ári.
Heimildirnar skiptast þannig
að leyft verður að veiða alls 782
kýr og 630 tarfa. Veiðin skiptist
milli níu veiðisvæða og heimild-
irnar eru veittar með fyrirvara
um að ekki verði verulegar breyt-
ingar á stofnstærð sem kalli á
endurskoðun þeirra.
Veiðitími er frá 1. ágúst til 20.
september. Veturgamlir tarfar
eru alfriðaðir og miðast tarfa-
veiði því við tveggja vetra og
eldri tarfa. Óheimilt er að veiða
kálfa. - shá
Veiðikvótinn 1.412 dýr:
Má veiða 135
fleiri hreindýr
HJÖRÐ Vel er bætt við veiðikvótann
þetta árið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SVÍÞJÓÐ Samtök þeirra sem við-
kvæmir eru fyrir rafmagni fá
árlega rúmlega 1,7 milljónir
sænskra króna, eða rúmlega 27
milljónir íslenskra króna, í styrk
frá sænska ríkinu þótt ekki sé talið
að um sjúkdómsgreiningu sé að
ræða.
Sænska ríkissjónvarpið hefur
það eftir Lenu Hillert, dósent og
yfirlækni við Karólínsku stofn-
unina í Stokkhólmi, að ekki hafi
verið hægt að staðfesta í vísinda-
legum rannsóknum að óþægindin
stafi frá rafsegulmögnuðum svæð-
um. - ibs
Viðkvæmir fyrir rafmagni:
Milljónastyrkir
frá ríkinu
NOREGUR Carl I. Hagen, borgarfulltrúi
Framfaraflokksins í Ósló, styður norsk-
an leiðtoga Pegida-hreyfingarinnar
sem segist berjast gegn íslamsvæðingu
Vesturlanda. Hagen gagnrýnir hins
vegar að leiðtoginn, Max Hermansen,
skuli leiða göngur hreyfingarinnar
samtímis því sem hann er í veikinda-
leyfi frá kennslu.
Hermansen fór í þriggja mánaða
veikindaleyfi í kjölfar ummæla um
íslam á Facebook og viðbragða nem-
enda við þeim, að því er segir í frétt
á vef Aftenposten. Hagen hefur kraf-
ið skólaráð svara við því hvers vegna
kennarinn hafi verið sendur í leyfi.
Hann vill jafnframt fá svör við því
hvers vegna kennarinn geti leitt göng-
ur Pegida-hreyfingarinnar. Hann hljóti
að geta kennt þegar hann sé fær um að
standa fyrir framan ráðhús borgarinn-
ar til að halda ræður og svara fjölmiðl-
um. Það sé svipað og að vera í kennslu.
Hagen segir ástæðu til að rannsaka
hvers vegna Hermansen sé í veikinda-
leyfi. Ekki sé hægt að beita slíku til að
leysa persónulegan ágreining.
- ibs
Carl I. Hagen úr Framfaraflokki spyr hvers vegna leiðtogi Pegida í Noregi geti stýrt mótmælagöngum:
Leiðir mótmælagöngur í veikindaleyfi
CARL I. HAGEN
Borgarfulltrúinn
telur að Pegida-
leiðtoginn geti
kennt þar sem
hann getur
leitt mótmæla-
göngur.
NORDICPHOTOS/AFP
ALMANNAVARNIR Lögreglustjóri
Norðurlands eystra og almanna-
varnadeild Ríkislögreglustjóra
skoða um þessar mundir hvort
óhætt sé að leyfa almenningi að
komast nær eldgosinu í Holu-
hrauni.
Fimm mánuðir eru síðan
Almannavarnir lýstu hálendið
fyrir norðan Vatnajökul bann-
svæði. Þó dregið hafi úr gosinu
mælist brennisteinsdíoxíð enn
mikið á svæðinu.
Í svari við fyrirspurn frétta-
stofu segir Halla Bergþóra
Björnsdóttir, lögreglustjóri Norð-
urlands eystra, að málið sé í skoð-
un. - kmu, jóe
Fólk komist nær eldgosinu:
Íhuga að leyfa
aukna umferð
HOLUHRAUN Eldgosið hófst fyrir
tæpum fimm mánuðum. MYND/MAGNÚS TUMI
LÖGREGLUMÁL Gæsluvarðhald
yfir manni sem grunaður er um
að hafa reynt að stinga mann til
bana í húsi á Hverfisgötu þann
23. nóvember síðastliðinn, hefur
verið framlengt um átta vikur.
Upphaflega voru þrír menn í
gæsluvarðhaldi vegna málsins
en tveimur þeirra var sleppt um
miðjan desember. Sá sem eftir er
hefur nú þegar setið í átta vikur.
Kristján Ingi Kristjánsson,
yfirlögregluþjónn höfuðborgar-
svæðisins, segir að unnið sé að
rannsókn málsins eins hratt og
hægt sé. - jóe
Hnífsstungan á Hverfisgötu:
Átta vikur
enn í varðhaldi
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Stein-
grímsson hlynur@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402:
Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson
jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason
hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
20%
AFSLÁTT
UR
Lyfjaauglýsing
Allar stærðir og styrkleikar
Gildir til 31. Janúar
Elísabet Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
HVESSIR SÍÐDEGIS Yfirleitt góðviðri um allt land í dag en síðdegis gengur í stífa
suðaustanátt suðvestantil með rigningu og dregur úr frosti til morguns. Suðlæg átt á
morgun og slydda en síðan suðvestlægari með éljum seinni partinn.
0°
5
m/s
1°
7
m/s
1°
4
m/s
4°
5
m/s
5-10 m/s.
3-8 m/s,
en 8-13
SV-til.
Gildistími korta er um hádegi
1°
24°
0°
3°
14°
-1°
4°
2°
2°
19°
5°
15°
15°
17°
5°
1°
0°
2°
-4°
3
m/s
1°
2
m/s
-4°
3
m/s
-1°
4
m/s
-3°
4
m/s
0°
7
m/s
-6°
7
m/s
2°
-1°
1°
-2°
2°
-2°
3°
-4°
1°
-3°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
FÖSTUDAGUR
Á MORGUN
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:5
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
7
C
-4
7
6
C
1
7
7
C
-4
6
3
0
1
7
7
C
-4
4
F
4
1
7
7
C
-4
3
B
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
6
4
s
_
2
0
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K