Fréttablaðið - 21.01.2015, Blaðsíða 12
21. janúar 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR |
SAMFÉLAGSMÁL Marina de Quint-
anilha e Mendonça, formaður fjöl-
menningarráðs Reykjavíkurborg-
ar, hefur búið á Íslandi í sextán ár.
Hún þekkir vel þarfir þeirra inn-
flytjenda sem búa hér á landi, enda
hefur hún starfað lengi sem túlkur
Marina hefur oftsinnis gefið fólki
ráð sem hefur mætt fordómum og
hatursorðræðu.
„Maður reynir alltaf að skilja
hvað er í gangi. Ef að virkilega er
um fordóma að ræða þá er góð hug-
mynd að leita til Mannréttindaráðs
og spyrja um ráð. Þeir geta aðstoðað
fólk við að leita réttar síns. Þetta er
stundum lögbrot.“
Hún segir innflytjendur hrædda
við að kæra hatursáróður af ótta
við að missa atvinnu eða að staða
þeirra og fjölskyldunnar í samfé-
laginu versni.
„Fólk er hrætt um að missa
atvinnu sína, veikja stöðu sína í
samfélaginu, það óttast að vera
sent heim. Það fyrsta sem fólk spyr
að þegar það leitar hjálpar er hvort
það geti misst vinnuna ef það kvart-
ar eða hvort það eigi á hættu að vera
sent úr landi.“
Hún hvetur innflytjendur hins
vegar til þess að tilkynna um allan
hatursáróður og kæra þá sem gerast
brotlegir við lög. „Það er mikilvægt
að láta þetta ekki viðgangast.“
Marina segir umræðu um inn-
flytjendur oft neikvæða og sjaldnar
á jákvæðum nótum. „Það er frekar
að það sé talað um útlendinga þegar
illa gengur.
Nú síðustu tvö ár hafa málefni
innlytjenda verið sérstaklega oft til
umfjöllunar.“
Marina segir helstu hindranir og
vandamál innflytjenda varða for-
dóma og vanþekkingu.
„Fordómar kvikna vegna van-
þekkingar. Fólk verður að gera
sér far um að vera betur upplýst,
fjölmiðlar þurfa líka að uppfylla
ákveðna skyldu og stuðla að meiri
þekkingu almennings á málefnum
innflytjenda.“
Hún segir skorta fyrirmyndir
í samfélaginu. Fáir stjórnendur,
fjölmiðlamenn og stjórnmálamenn
séu af erlendum uppruna. „Það eru
fáeinir af erlendum uppruna sýni-
legir í samfélaginu, þetta eru sömu
einstaklingarnir sem spegla eins-
leitar skoðanir, við erum fleiri og
okkur skortir fleiri og fjölbreyttari
fyrirmyndir.“
Í skýrslu Bjarneyjar Friðriksdótt-
ur, Hatursorðræða í ummælakerf-
um íslenskra netfréttamiðla, eru
tekin saman ummæli sem flokkast
sem hatursorðræða. Gerður er sá
fyrirvari að allra grófustu ummæl-
in hafa verið fjarlægð af vefstjórum
netfréttamiðlanna og því eru þau
ekki til umfjöllunar.
Bjarney segir töluvert bera á for-
dómafullum ummælum sem ein-
kennast af kynþáttafordómum,
þjóðernishyggju og ný-rasisma.
Algengast sé að fordómafull ummæli
séu sett fram í garð múslima.
Dæmi um ummæli
sem Bjarney fann í ummæla-
kerfum um múslima (orðrétt)
Beint í gasklefann
meðetta!!:D“
Hér í Noregi var alda nauðg-
ara í Osló...100% af þeim voru
múslimar....“
Ég er á móti því að mús-
limar nái hér fótfestu og sýki
okkar þjóð, með sínu afbrigði-
lega hegðunarminstri að nauðga
börnum og hafa kynlíf með
dýrum og að kúa konur og drepa
dætur sínar fyrir að vera ást-
fangnar af Íslendingi. Eða síru-
brenna stelpur fyrir að vilja ekki
giftast gömlum mönnum. Þetta
pakk á að vera heima hjá sér ef
það vill ekki aðlagast okkur og
okkar sið.“
Bjarney segir öll ummæli byggð
á fordómum alvarleg.
„Ummæli byggð á fordómum eru
almennt alvarleg að mínu mati þar-
sem þau fela í sér beina eða óbeina
hvatningu til þess að einstaklingn-
um eða hópnum sem ummælin bein-
ast gegn verði mismunað, það er að
þeir njóti ekki ákveðinna réttinda
sökum litarháttar, trúarbragða,
kynhneigðar eða annarra þátta.“
Bjarney segir fordómafull
ummæli lýsa skorti á þekkingu á
hver takmörk tjáningarfrelsisins
eru og hvaða lög og mannréttinda-
ákvæði eru í gildi í landinu.
„Ég tel að oft séu fordómafull
ummæli sett fram án þess að sá
sem tjáir sig ígrundi þá ábyrgð sem
það felur í sér. Tjáningarfrelsi er
heimilt að takmarka vegna réttinda
eða mannorðs annarra og það telst
til alþjóðlega viðurkenndra mann-
réttinda að njóta verndar gegn
hatursorðræðu og að vera ekki
mismunað. 233. grein í íslenskum
hegningarlögum er fyrst og fremst
sett fram til að vernda mannrétt-
indi þeirra sem verða fyrir haturs-
orðræðu.“
Ummæli
byggð á
fordómum eru
almennt
alvarleg að
mínu mati þar
sem þau fela í
sér beina eða óbeina
hvatningu til þess að
einstaklingnum eða
hópnum sem ummælin
beinast gegn verði mis-
munað, það er að þeir njóti
ekki ákveðinna réttinda
sökum litarháttar, trúar-
bragða, kynhneigðar eða
annarra þátta.
Bjarney Friðriksdóttir.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjanabjorg@frettabladid.is
MORGUNVERÐARFUNDUR 22. JANÚAR KL. 8.30-10
Frummælendur:
Derek Ridyard,
hagfræðingur og stofnandi
RBB Economics í Bretlandi
Heimir Örn Herbertsson,
hæstaréttarlögmaður hjá
LEX lögmannsstofu
Bergþóra Halldórsdóttir,
lögfræðingur hjá SA
Fundarstjóri: Margrét Kristmannsdóttir,
varaformaður Samtaka atvinnulífsins
Skráning á sa.is
Í lögum er ríkinu heimilað að grípa til aðgerða
gegn skipulagi fyrirtækja, taka gögn og
ákveða viðurlög gegn meintum brotum.
SA, í samstarfi við LEX lögmannsstofu,
efna til morgunverðarfundar fimmtu-
daginn 22. janúar til að ræða þessi mál en
á fundinum verður staða mála á Íslandi borin
saman við nágrannalöndin, m.a. í ljósi smæðar
og sérstöðu markaðarins.
Fundurinn fer fram á Icelandair hótel
Reykjavík Natura kl. 8.30-10.00.
Allir velkomnir, boðið verður upp á létta
morgunhressingu frá kl. 8.00.
Derek
Ridyard
Heimir Örn
Herbertsson
Bergþóra
Halldórsdóttir
Margrét
Kristmannsdóttir
Réttarstaða fyrirtækja
og inngrip í rekstur
MORGUNVERÐARFUNDUR 22. JANÚAR KL. 8.30-10
Innflytjendur
hræddir
við að kæra
hatursáróður
Marina de Quintanilha e Mendonça segir innflytj-
endur óttast um atvinnu sína og stöðu í samfélaginu
láti þeir á sér bera vegna hatursáróðurs eða fordóma
sem þeir verða fyrir. Hún hvetur þá hins vegar til
þess að tilkynna um allt slíkt.
VEIK STAÐA INNFLYTJENDA Marina segir þá sem verða fyrir fordómum veigra sér við því að leita réttar síns. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Fólk er
hrætt um að
missa atvinnu
sína, veikja
stöðu sína í
samfélaginu,
það óttast að
vera sent heim.
Marina de Quintanilha
e Mendonça.
ASKÝRING | 12
1 2 3 4FJÖLMENNING OG FORDÓMAR Á ÍSLANDI
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:5
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
7
C
-A
0
4
C
1
7
7
C
-9
F
1
0
1
7
7
C
-9
D
D
4
1
7
7
C
-9
C
9
8
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
0
6
4
s
_
2
0
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K