Fréttablaðið - 21.01.2015, Blaðsíða 28
FÓLK|FERÐIR
Sigríður Þóra og eiginmaður hennar höfðu farið á hverju ári í heldriborgaraferðir Sumar-ferða til Benidorm. Þetta eru þriggja vikna
ferðir þar sem sérstakur skemmtanastjóri skipu-
leggur fjölbreytta dagskrá fyrir farþega. Ferðirnar
eru ætlaðar 60 ára og eldri og alltaf er gist á sama
hótelinu. „Ég hef farið í heldriborgaraferðir í tíu
ár, stundum tvisvar á ári. Í þessum ferðum er
mikið öryggi og skemmtilegur félagsskapur. Mér
líður vel í hitanum og það er alltaf eitthvað um
að vera. Skemmtanastjórinn, Jenný Ólafsdóttir, er
yndisleg manneskja og það er ekki síst hún sem
dregur sama fólkið í þessar ferðir aftur og aftur.
Hún skipuleggur öfluga dagskrá fyrir okkur heldri
borgara alla dagana. Maður ræður auðvitað hvort
maður tekur þátt og flestir kjósa að gera það,“ segir
Sigríður Þóra.
Þegar hún er spurð hvað dagskráin feli í sér,
svarar hún: „Farþegar eru alveg upp í 85 ára í
þessum ferðum og dagskráin er sniðin fyrir alla.
Það er gönguferð á hverjum degi sem gerir manni
mjög gott, annaðhvort hröð eða hæg eftir því sem
hentar fólki. Leikfimi er í boði annan hvern dag,
minigolf, bingó, spil og svo er alltaf farið út að
borða á kínverskum stað í Albír. Þá kemur rúta og
sækir okkur og við köllum það að „sækja og senda“.
Það eru virkilega skemmtileg kvöld. Við erum með
strandpartí og svo er alltaf lokahátíð í lok ferðar-
innar. Margir eru farnir að þekkjast í ferðunum en
svo eru alltaf ný andlit. Það blanda allir geði og það
er ekkert mál að vera einn á ferð, þarna er náunga-
kærleikur,“ segir Sigríður Þóra.
„Maðurinn minn lést í ágúst 2010 og við áttum
miða fyrir okkur um haustið í þessa ferð. Ég var
tvístígandi í fyrstu hvort ég ætti að fara ein en tók
síðan ákvörðun um að skella mér. Ferðin var erfið
fyrir mig svona stuttu eftir makamissi en það er
vel haldið utan um mann. Ég hef farið í allar ferðir
síðan,“ segir Sigríður Þóra og mælir með því að fólk
komi í hópferð þótt það sé eitt. „Kjarninn sem fer
í þessar ferðir er gott fólk. Sumum finnst hótelið
út úr en það hentar vel fyrir svona hóp. Hálft fæði
er innifalið en maður ræður hvort það er tekið í
hádegi eða á kvöldi. Enginn þarf að fara svangur
frá borði á hótelinu. En það er alltaf hægt að fara út
að borða ef fólk kýs tilbreytingu og verðlag er hag-
stætt. Ég er gigtarsjúklingur og sólin og hitinn gera
mér mjög gott auk þess sem hreyfingin er heilsu-
bót,“ segir Sigríður Þóra. ■ elin@365.is
AÐ FERÐAST EIN
EFTIR MAKAMISSI
HEILSUBÓT Mörgum finnst erfitt að ferðast eftir að maki fellur frá og ein-
angra sig. Sigríður Þóra Ingadóttir missti eiginmann sinn árið 2010 og hefur
haldið áfram að ferðast. Hún velur að fara í sérstakar heldriborgaraferðir.
KÆRLEIKUR Sigríður hefur stundum farið með vinkonum
sínum í heldriborgaraferð. Hún segir engu skipta hvort fólk fari
eitt, með maka eða vinum, mikill náungakærleikur sé í slíkri ferð.
Alltaf sé eitthvað um að vera og engum þarf að leiðast.
GOTT Í SÓLINNI
Sigríður Þóra er
gigtarsjúklingur
og segir að hitinn
geri sér gott.
MYND/GVA
Bílaumboðið Askja heldur glæsilega bílasýningu
laugardaginn 24. janúar í húsakynnum sínum að
Krókhálsi 11 í Reykjavík. Þar verða sýndar nokkr-
ar gerðir sendibíla frá Mercedes-Benz en mest
áhersla verður lögð á nýju línuna af Vito-sendi-
bílum. Mercedes-Benz Vito er í boði sem sendibíll,
fjölnota bíll og einnig sem fólksbíll. Hann fæst fram-
hjóla-, afturhjóla- og fjórhjóladrifinn og er boðið
upp á fimm vélarútfærslur og þrjár lengdir. Merc-
edes-Benz Vito býr að öðru leyti yfir þeim kostum
sem hægt er að ganga út frá hjá Mercedes-Benz,
svo sem framúrskarandi aksturseiginleikum, spar-
neytni, þægindum og tæknilegri fullkomnun.
Hliðarvindsbúnaður er staðalbúnaður í Sprinter,
Vito og V-Class bílum og er Mercedes-Benz eini
framleiðandinn sem býður upp á slíkan búnað.
Hann aðstoðar ökumenn sem glíma við sterkan
hliðarvind og vindhviður með sjálfvirku inngripi
hemlakerfisins sem stuðlar að því að bíllinn haldist
á réttri akrein.
Meðal aukabúnaðar þegar kemur að öryggismál-
um má nefna árekstrarvara, akreinavara, blinda-
blettsvara og hágeislavara.
Á sömu sýningu verða einnig til sýnis aðrar
gerðir frá Mercedes-Benz, til dæmis Citan, Sprinter
og nýr V-Class.
Sýningin stendur yfir milli kl. 12 og 16 næsta
laugardag. Nánari upplýsingar má finna á vef Öskju,
www.askja.is.
BÍLASÝNING ÖSKJU Á LAUGARDAG
SÝNING Sýndar verða nokkrar gerðir sendibíla frá Mercedes-
Benz en mest áhersla verður lögð á nýju línuna af Vito-sendi-
bílum.
KOOL´n´SOOTHE gelblöðin veita kælingu
við mígreni og svæsnum höfuðverk í allt að 8 klst.
NÁTTÚRULEG lausn
FRÁBÆRT Í FERÐALAGIÐ
FÆST Í HELSTU APÓTEKUM
Dreifingaraðili NOZ ehf
Ótrúlegt
úrval íbúða til sölu
eða leigu!
STÆRSTI
HÚSNÆÐISVEFUR
LANDSINS
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:5
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
7
C
-E
F
4
C
1
7
7
C
-E
E
1
0
1
7
7
C
-E
C
D
4
1
7
7
C
-E
B
9
8
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
6
4
s
_
2
0
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K