Fréttablaðið - 25.04.2015, Page 6
25. apríl 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
STJÓRNSÝSLA Útlendinga stofnun
leitar nú að húsnæði á höfuð-
borgar svæðinu sem nota á sem
vistarverur fyrir hælisleitendur.
Fram kemur í auglýsingu Ríkis-
kaupa, fyrir hönd ríkissjóðs, sem
tekur húsnæðið á leigu fyrir
Útlendingastofnun, að miðað sé
við að húsnæðið verði tekið á
leigu til tólf mánaða með mögu-
leika á framlengingu til annarra
tólf mánaða.
„Gerð er krafa um að hús næðið
sé á höfuðborgarsvæðinu, sé í
göngufæri við matvöruverslun/
verslanir og nálægt almennings-
samgöngum,“ segir á vef Ríkis-
kaupa. Þá er miðað við að hús-
næðið verði um 500 fermetrar að
stærð, miðað við lágmarksloft-
hæð gildandi byggingarreglu-
gerðar. „Í húsnæðinu skulu vera
25 til 30 herbergi,“ segir þar jafn-
framt.
Þá kemur fram á vef Rauða
kross Íslands að þar á bæ sé leit-
að að sjálfboðaliðum til að starfa
með hælisleitendum og flóttafólki.
„Verkefnin eru fjölbreytt og gef-
andi en staðið er fyrir ýmsum við-
burðum sem draga úr félagslegri
einangrun flóttamanna og hælis-
leitenda,“ segir á vef Rauða kross-
ins. Tekið er fram að reglulega sé
staðið fyrir viðburðum á borð við
spilakvöld, spurningaleiki, matar-
menningarhátíðir, kvikmynda-
kvöld og jafnvel dagsferðir þar
sem flóttamenn og hælisleitendur
fái tækifæri til að sjá helstu nátt-
úruperlur landsins.
- óká
Útlendingastofnun óskar eftir að taka á leigu á höfuðborgarsvæðinu vistarverur fyrir hælisleitendur:
Verslun og strætó þarf að vera í göngufæri
HJÁLPARSTARF Rauði krossinn í
Hafnarfirði leitar sjálfboðaliða í
svokölluð „heimsóknarvinaverk-
efni“. Hlutverk heimsóknarvinar
er fyrst og fremst sagt að veita
félagsskap, nærveru og hlýju.
„Einsemd er alvarlegt vanda-
mál í íslensku samfélagi. Aðstæð-
ur fólks geta orðið til þess að það
missir samband við aðra og ein-
angrast,“ segir á vef Rauða kross-
ins. Starfið gangi út á að rjúfa
slíka einangrun.
- óká
Leita að sjálfboðaliðum:
Einsemdin er
sögð alvarleg
HVATNINGARVERÐLAUN
JAFNRÉTTISMÁLA 2015
ÓSKUM EFTIR
TILNEFNINGUM
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, landsnefnd
UN Women á Íslandi, Samtök atvinnulífsins og Festa – miðstöð
um samfélagsábyrgð óska eftir tilnefningum til Hvatningar-
verðlauna jafnréttismála 2015 sem verða afhent þann
28. maí 2015 á morgunfundinum „Eru til karla- og kvennastörf“
á Nauthóli. Verðlaunin afhendir Ragnheiður Elín Árnadóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Markmið með Hvatningarverðlaunum jafnréttismála er að vekja
jákvæða athygli á fyrirtækjum sem sett hafa jafnrétti á oddinn
og jafnframt að hvetja önnur fyrirtæki til að gera slíkt hið sama.
Leitað er eftir tilnefningum um fyrirtæki sem hafa stuðlað að:
· Auknum möguleikum beggja kynja til starfsframa
· Jöfnum launum kynjanna
· Jöfnum hlutföllum kynjanna í stjórnendastöðum
· Aukinni vitund um þann ávinning sem jafnrétti hefur fyrir
fyrirtækið og samfélagið
Sérstaklega er leitað að fyrirtækjum sem uppfylla
eftirfarandi skilyrði:
· Verkefnin hafa skýran tilgang og markmið
· Jafnrétti hefur fest rætur og sýnt er fram á varanleika
· Vakin er athygli á rekstrarlegum ávinningi af jafnrétti
· Verkefnið er hvetjandi fyrir önnur fyrirtæki
Tilnefningar skulu sendast á rafrænan hátt með því að fylla
út eyðublað á unwomen.is fyrir 16. maí 2015.
Nánari upplýsingar má finna á www.unwomen.is
DÓMSMÁL Akureyrar-
bær mun áfrýja
dómi Héraðsdóms
Norðurlands eystra í
máli bæjarins gegn
Snorra Óskarssyni til
Hæstaréttar.
Ákvörðun þess
efnis var tekin á
fundi bæjarráðs í
gær.
Snorri, sem var
vikið úr starfi kenn-
ara við Brekkuskóla,
vann í byrjun apríl
mál sem bærinn
höfðaði gegn honum.
Gunnar Gíslason, bæjarfulltrúi
og fyrrverandi fræðslustjóri
Akureyrar, lýsti sig vanhæfan til
að fjalla um málið. Vék Gunnar
Akureyrarbær unir ekki dómi í máli grunnskólakennara:
Fara með Snorra fyrir Hæstarétt
SNORRI ÓSKARSSON Vikið úr starfi kennara eftir
ummæli á netinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
því af fundinum. Gunnar var
starfandi fræðslustjóri sveitar-
félagsins þegar Snorra var sagt
upp störfum. - sa
FIT HOSTEL Hælisleitendur hafa síð-
ustu ár flestir haft aðsetur í Reykja-
nesbæ. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ARMENÍA Þýska þingið samþykkti
í gær ályktun þar sem fjöldamorð
á Armenum í Tyrklandi á árum
fyrri heimsstyrjaldarinnar eru
sögð hafa verið þjóðarmorð. Hug-
takið þjóðarmorð hefur, þegar
rætt er um þessa atburði, staðið
bæði í tyrkneskum stjórnvöldum
og leiðtogum fjölmargra annarra
ríkja, sem ekki hafa viljað styggja
Tyrki.
Armenar segja að um ein og
hálf milljón Armena hafi verið
myrt eða hrakin frá Tyrklandi.
Tyrknesk stjórnvöld hafa hins
vegar ekki viljað fallast á að þess-
ir atburðir hafi verið þjóðarmorð
og segja átökin milli Tyrkja og
Armena hafa kostað mörg manns-
líf úr röðum beggja.
Töluvert munar þó um rödd
Þjóðverja í þessu samhengi, þar
sem Þýskaland er helsta við-
skiptaland Tyrklands. Ekki er þó
einhugur á meðal þýskra ráða-
manna um þetta, því Frank Walter
Steinmeir utanríkisráðherra segir
ekki rétt að tala um þjóðarmorð:
„Flóknar minningar er sjaldan
hægt að setja undir eitt hugtak,“
sagði hann í tímaritinu Der Spie-
gel í gær.
Forsetar Frakklands og Rúss-
lands, þeir Francois Hollande og
Vladimir Pútín, eru á meðal þeirra
sem hafa hiklaust talað um þjóðar-
morð á Armenum. Og báðir heim-
sóttu þeir minnismerki um þjóðar-
morðið í Armeníu í gær. Barack
Obama Bandaríkjaforseti hefur
hins vegar viljað hlífa Tyrkjum
við að tala um þjóðarmorð.
Á fimmtudaginn flutti Joachim
Gauck Þýskalandsforseti ræðu þar
sem hann minntist fjöldamorð-
anna, sem hófust 24. apríl árið
1915 og stóðu yfir í nokkur ár.
„Með því að minnast erum við
ekki að setja neinn sem nú er á lífi
á sakamannabekk,“ sagði Gauck.
„En það sem afkomendur fórnar-
lambanna eiga rétt á að vonast til
er viðurkenning á sögulegum stað-
reyndum og þar með einnig sögu-
legri sekt.“
Gauck minnti á að Adolf Hit-
ler hefði í ágúst 1939, þegar hann
gaf fyrirskipanir um að „senda án
miskunnar pólskumælandi karla,
konur og börn af pólsku ætterni í
dauðann“, vísað máli sínu til stuðn-
ings í atburðina í Tyrklandi tuttugu
árum áður: „Hver talar enn í dag
um útrýminguna á Armenum?“
Ræða hans var harðlega gagn-
rýnd í tyrkneskum fjölmiðlum í gær.
Þrengt að Tyrkjum
Þýskaland hefur nú bæst í hóp þeirra ríkja sem hafa viðurkennt að Tyrkir hafi
framið þjóðarmorð á Armenum á árum fyrri heimsstyrjaldarinnar. Forsetar
Frakklands og Rússlands tóku báðir þátt í minningarathöfn í Armeníu í gær.
MINNINGARATHÖFN Í ARMENÍU Fjöldi fólks lagði leið sína að Tsitsernakaberd-minnismerkinu í Jerevan, höfuðborg Armeníu, í
gær þar sem efnt var til minningarathafnar. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Guðsteinn
Bjarnason
gudsteinn@frettabladid.is
Erzurum
Hundreds
of thousands
of Armenians were
killed in 1915 by forces
of disintegrating Ottoman
Empire. Many died in massacres
while many others were deported
to barren desert regions where they
died of starvation or thirst
ARMENIAN GENOCIDE DISPUTE
Most non-Turkish scholars and
more than 20 countries, including
France, Italy, Russia and Canada,
regard events as genocide
Armenia says up to 1.5 million
people were killed.
Turkey rejects genocide term,
insisting there was no orchestrated
campaign to wipe out Armenians
by Ottoman authorities
© GRAPHIC NEWS
Svartahaf
Miðjarðarhaf
Ankara
Istanbúl
Sivas
Deir el-Zor
200 km
Muş
Bitlis Íran
Írak
Sýrland
anídsjAserba
andRússl
meníaAr
úverandin
landamæri
Georgía
Tyrkland
FJÖLDAMORÐ: Stærð hringsins
táknar hlutfall dauðsfalla
(nákvæmar tölur ekki þekktar)
Armenar
hraktir burt
Sögulegt
svæði Armena
Hersveitir Tyrkjav ldis
drápu hundruð þúsunda
Arme a árið 1915. Margir
létu lífið í fjöl amorðum, aðrir
voru hr ktir út í gróðursnauðar
óbyggðir þar sem þeir létust vegna
hungur eða þ rsta.
Deilt um hugtök
Flestir sagnfræðingar, aðri en tyrk-
neskir, segja þjóðarmorð hafa verið framið.
Meira en 20 ríki taka undir, þar á meðal
Frakkland, Ítalí , Rússlan og Kanada.
Armenía segir allt að 1,5 mi ljónir
manns hafa verið drepnar. Tyrkir segja
þetta ýkjur, bæði Armenar og Tyrkir
hafi látist í borgaraátökum.
Tyrknesk stjórnvöld hafna þjóðar-
morðshugtakinu og segja enga skipu-
lagða herferð af hálfu stjórnvalda um
útrýmingu Armena hafa verið til.
ÞJÓÐARMORÐ Á ARMENUM
Í gær var þess minnst að rétt öld er liðin frá því fjöldamorð á Armenum
hófust í Tyrklandi. Víða utan Tyrklands eru fjöldamorðin kölluð þjóðar-
morð, en Tyrkir neita að fallast á það hugtak.
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
9
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
6
9
-3
E
1
C
1
7
6
9
-3
C
E
0
1
7
6
9
-3
B
A
4
1
7
6
9
-3
A
6
8
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
1
0
4
s
_
2
4
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K