Fréttablaðið - 25.04.2015, Blaðsíða 72
25. apríl 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 36
FLÆKJUSAGA
Illugi Jökulsson
er vanur keis-
urum sem gera
hvaðeina til
að halda í
völd sín. En
keisarinn í
Brasilíu var
öðruvísi.
Ég skal viðurkenna að mér finnst fátt furðulegra og tilgangslausara en kóngafólk nútildags. Eiginlega er það hugmyndafræðileg ósvinna að einhverjir skuli á vorum dögum vera „fæddir til valda“ og gildir
þá einu þótt þau völd sem kóngar og drottn-
ingar hafa nú séu í fæstum tilfellum mikil,
og oft ekki nema nafnið eitt. En á fyrri
öldum voru arfakóngar hvarvetna, og því
hlýtur eitthvað að hafa verið nýtilegt við
þetta stjórnarfar, ella hefði það varla við-
gengist svo lengi og svo víða. Í Evrópu var
sautjánda öldin líklega blómatími kónga á
seinni öldum; þá var einveldi þeirra einna
öflugast og fram á átjándu öld en á þeirri
nítjándu fóru menn fyrir alvöru að sjá hve
fáránlegt var að veita einhverjum öll völd
í heilu ríki á grundvelli ætternis, nema þá
helst í Rússlandi, þar sáu menn ekki neitt og
voru afleiðingarnar skelfilegar og Rússar
súpa enn af því seyðið að hafa ekki afskaffað
sína gagnslausu Romanov-keisara löngu fyrr
en þeir gerðu.
Hér segir frá einum keisara sem var
afskaffaður þegar leið að lokum nítjándu
aldar og svo undarlega og óvenjulega brá við
að hann var eiginlega hjartanlega sammála
KEISARINN
SEM VILDI EKKI
VERA KEISARI
Hann
var einhver
menntaðasti
og víðsýnasti
einvaldur
sögunnar
bæði fyrr og
síðar og á
meðal vina
hans og
pennavina
voru menn
eins og
Charles
Darwin,
Richard
Wagner,
Louis Pas-
teur, Victor
Hugo og sá
þýski heim-
spekiskálkur
Friedrich
Nietzsche.
haldið að þungum bókum til að undirbúa hann
sem best fyrir starfið, en fyrsta áratuginn
fóru ríkisstjórar með eiginleg völd. Það tókst
ekki betur en svo að þegar Pétur II var ekki
nema 14 ára gamall árið 1840 stefndi í óefni
í Brasilíu vegna innbyrðis sundurþykkis og
óstjórnar, og var þá piltur spurður hvort hann
vildi kannski taka strax við óskiptu embætti
sínu en ekki bíða þar til hann yrði formlega
myndugur 18 ára. Og Pétur II var til í það,
uppfullur af skyldurækni, og raunin varð
sú að táningskeisarinn hafði góð áhrif, heil-
mikil völd og áhrif söfnuðust á hans hendur
sem áður höfðu farið um víðan völl, og tók nú
Brasilía öll að eflast og styrkjast.
Pétur II hafði erft frjálslyndar skoðanir
föður síns og varð með tímanum jafnvel
enn frjálslyndari. Hann hélt áfram að lesa
reiðinnar býsn og varð mjög vel að sér á fjöl-
mörgum sviðum og ekki einungis á sviðum
stjórnsýslu og stjórnvisku, heldur grúskaði
hann líka í vísindum margvíslegum. Hann
varð einhver menntaðasti og víðsýnasti
einvaldur sögunnar bæði fyrr og síðar og á
meðal vina hans og pennavina voru menn
eins og Charles Darwin, Richard Wagner,
Louis Pasteur, Victor Hugo og sá þýski heim-
spekiskálkur Friedrich Nietzsche. Sjálfur
skrifaði hann að hann væri fæddur til að
helga sig menningu og vísindum, en stjórn-
arstörfin leit hann á sem þungan kross sem
hann hugðist þó rogast með eftir bestu getu.
Ekkert bruðl
Á keisarastóli þótti Pétur II stálheiðarlegur og
hafði skömm á öllu bruðli, og hann gerði ýmis-
legt gagn, það er ljóst. Upp úr miðri nítjándu
öld rann upp mikið blómaskeið í Brasilíu, fólki
fjölgaði stórlega, atvinnuástand og efnahagur
tóku kipp og sumir vildu að Íslendingar flytt-
ust í stórhópum þangað suður eftir. Ekki fengu
frumbyggjar Brasilíu mikinn þátt í því góð-
æri, en fyrir aðra var blómatími. Einhvern
þátt í þessari velgengni átti Pétur II með því
að viðhalda stöðugleika. En hins vegar gekk
illa að banna þrælahaldið. Keisarinn í Bras ilíu
var ekki einvaldur þótt hann hefði umtalsverð
völd og þrælahald var mjög útbreitt og forrík-
ir plantekrueigendur úti um allt þetta víðáttu-
mikla land streittust svo gegn afnámi þræla-
halds að það var ekki fyrr en 1888 sem það var
að fullu bannað, og varð Brasilía síðast ríkja til
þess í Evrópu og Ameríku. Aldrei hafði farið
milli mála að Pétur keisari vildi afnema þessa
ósvinnu og lét sig einu gilda þó hann væri sak-
aður um að stefna að „þjóðar sjálfsmorði“ með
afnámi þrælahalds, svo mikilvægir sem þræl-
arnir væru fyrir efnahag landsins.
Og þótt Pétur væri fyrst og fremst bók-
hneigður gat hann líka sýnt röggsemi og
jafnvel hörku. Árið 1864 lýstu Paragvæjar
yfir stríði gegn Brasilíu, þeir vildu koma sér
í hóp stórvelda álfunnar og eignast umdeild
héröð á landamærum ríkjanna. Í fyrstu
vegnaði Brasilíumönnum illa, en Pétur
keisari átti svo sinn þátt í að snúa stríðs-
gæfu þeirra við. Hann sýndi óvænta ákveðni
og fór sjálfur á vígstöðvarnar til að hvetja
dáta sína áfram af mikilli festu og ekki leið
á löngu þar til yfirburðir Brasilíumanna og
bandamanna þeirra sögðu til sín.
Steypt af stóli
Pétur varð með tímanum æ lúnari og þreytt-
ari á keisaratigninni. Og hann tók að efast
stórlega um að keisaraembættið ætti nokkra
framtíð fyrir sér. Hann hafði eignast tvo syni
sem dóu ungir og það fannst honum að hluta
til merki þess að keisaraembættið hlyti að
deyja út með sér. Hann átti að vísu mjög gáf-
aða dóttur, sem mátti lögum samkvæmt erfa
keisaratignina, en þrátt fyrir alla hans víðsýni
á mörgum sviðum leit hann svo á að kona gæti
með engu móti setið í slíku starfi. Og ríkti þó
Viktoría nokkur yfir breska heimsveldinu ein-
mitt um þær mundir. Þegar Pétri var steypt
alveg óvænt af stóli árið 1889 eftir 58 ár í
hásætinu, þá gerði hann hvorki tilraun til að
halda sjálfur í völdin né koma þeim í hend-
ur Ísabellu dóttur sinnar, heldur fór umyrða-
laust í útlegð til Evrópu, og þar bjó hann við
lítil efni á hótelum í Frakklandi þar til hann
dó tveimur árum seinna. Hann hafði náttúr-
lega alls ekki látið sér til hugar koma að lauma
peningum undan á leynireikninga í Evrópu,
slíkt hefði verið andstætt öllu hans eðli.
Valdaránið kom talsvert á óvart, enda stóð
einungis lítil klíka lýðveldissinna á bak við
það. Pétur hafði að vísu sætt vaxandi gagn-
rýni síðustu árin af því mörgum fannst
hann þá orðinn helstil afskiptasamur um
stjórn landsins – þótt í rauninni hefði hann
í engu breytt háttum sínum – það voru bara
runnir upp nýir tímar og þótt Brasilíumönn-
um þætti vænt um Pétur fannst þeim ekki
lengur sjálfsagt að arfakóngur hefði eigin-
leg völd. Því var honum steypt en á næstu
áratugum þegar landið rambaði oft á barmi
stjórnleysis, þá sáu menn stundum eftir
þessum hægláta kurteisa keisara. Hann var
að mati Machado de Assis, eins fremsta rit-
höfundar Brasilíu bæði þá og síðar, „auð-
mjúkur, heiðarlegur og menntaður föður-
landsvinur sem kunni að gera úr hásæti
keisarans [hógværlegan] stól án þess að
draga úr mikilfengleik þess eða virðuleik“.
HINIR FÁTÆKUSTU Kabóklóar, afkomendur frumbyggja og innflytjenda.
KEISARINN Gjarnan heldur þreytulegur á
mynd um.
ÍSABELLA Fékk ekki að spreyta sig; hún var jú
kona!
því sjálfur að vera settur af og lyfti ekki
litlafingri til að sporna gegn því – enda er
mála sannast að honum fannst bæði leiðin-
legt og erfitt að vera keisari og lýsti því oft
yfir að hann hefði miklu frekar viljað vera
kennari.
Hann var af evrópskum háaðli eins og
hann þótti fínastur, þessi keisari; í ætt-
bókinni hans mátti finna spænska kónga,
germanska keisara og franska Loðvíka. Afi
hans var Jóhann VI Portúgalskóngur sem
flúði undan Napóleon til Brasilíu 1808, þegar
franskir herir lögðu undir sig Portúgal.
Brasilía hafði þá í tæpar þrjár aldir verið
nýlenda Portúgalsmanna. Jóhann taldi ekki
óhætt að snúa aftur heim til Portúgals fyrr
en 1821 og skildi þá Pétur son sinn eftir í
Brasilíu til að stýra þar málum. Ári seinna
lýsti Pétur yfir sjálfstæði Brasilíu og tók sér
keisaratign: Pétur I hét hann eftirleiðis.
Ekki var Brasilía mjög burðugt ríki um
þær mundir, íbúar kannski fjórar milljónir
og stór hluti landsins óbyggður, en menn
þóttust þó sjá í hendi sér að auðlindir væru
miklar og möguleikar á vexti ótæpilegir í
öllu þessu flæmi; því taldi Pétur I réttast að
kalla sig keisara en ekki réttan og sléttan
kóng. Pétur þessi var kvæntur Maríu Leó-
poldínu keisaradóttur frá Austurríki, systir
hennar var María Lovísa síðari eiginkona
Napóleons, og sonur þeirra var Pétur II.
Hann varð svo keisari yfir Brasilíu aðeins
fimm ára gamall árið 1831 þegar faðir hans
sagði af sér og hélt aftur til Portúgals að
skipta sér af málum sem ekki koma efni
þessarar greinar við. En Pétur I hafði verið
að mörgu leyti merkur maður, hann var óró-
leg sál en sem keisari var hann afar frjáls-
lyndur miðað við kóngadót þess tíma, og af
dánarbeði sínum í Portúgal 1834 skrifaði
hann til dæmis fyrrverandi þegnum sínum
í Brasilíu og hvatti þá eindregið til að leggja
af þrælahald og hann þvertók fyrir að fæð-
ing hans í kóngshöll þýddi að hann væri öðru
fólki æðri: „Ég veit að blóð mitt er eins á
litinn og blóð sérhvers svertingja.“ Var slíkt
róttæk hugsun í þá daga, ekki síst úr keis-
aramunni.
Þungur kross
Sonurinn Pétur II átti frekar einmanalega
æsku og var hinum barnunga keisara mjög
iPhone 6 Plus
16GB
Tilboðsverð
124.990.-*
Fullt verð: 139.990.-
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
9
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
6
A
-5
C
7
C
1
7
6
A
-5
B
4
0
1
7
6
A
-5
A
0
4
1
7
6
A
-5
8
C
8
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
1
0
4
s
_
2
4
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K