Fréttablaðið - 25.04.2015, Page 72

Fréttablaðið - 25.04.2015, Page 72
25. apríl 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 36 FLÆKJUSAGA Illugi Jökulsson er vanur keis- urum sem gera hvaðeina til að halda í völd sín. En keisarinn í Brasilíu var öðruvísi. Ég skal viðurkenna að mér finnst fátt furðulegra og tilgangslausara en kóngafólk nútildags. Eiginlega er það hugmyndafræðileg ósvinna að einhverjir skuli á vorum dögum vera „fæddir til valda“ og gildir þá einu þótt þau völd sem kóngar og drottn- ingar hafa nú séu í fæstum tilfellum mikil, og oft ekki nema nafnið eitt. En á fyrri öldum voru arfakóngar hvarvetna, og því hlýtur eitthvað að hafa verið nýtilegt við þetta stjórnarfar, ella hefði það varla við- gengist svo lengi og svo víða. Í Evrópu var sautjánda öldin líklega blómatími kónga á seinni öldum; þá var einveldi þeirra einna öflugast og fram á átjándu öld en á þeirri nítjándu fóru menn fyrir alvöru að sjá hve fáránlegt var að veita einhverjum öll völd í heilu ríki á grundvelli ætternis, nema þá helst í Rússlandi, þar sáu menn ekki neitt og voru afleiðingarnar skelfilegar og Rússar súpa enn af því seyðið að hafa ekki afskaffað sína gagnslausu Romanov-keisara löngu fyrr en þeir gerðu. Hér segir frá einum keisara sem var afskaffaður þegar leið að lokum nítjándu aldar og svo undarlega og óvenjulega brá við að hann var eiginlega hjartanlega sammála KEISARINN SEM VILDI EKKI VERA KEISARI Hann var einhver menntaðasti og víðsýnasti einvaldur sögunnar bæði fyrr og síðar og á meðal vina hans og pennavina voru menn eins og Charles Darwin, Richard Wagner, Louis Pas- teur, Victor Hugo og sá þýski heim- spekiskálkur Friedrich Nietzsche. haldið að þungum bókum til að undirbúa hann sem best fyrir starfið, en fyrsta áratuginn fóru ríkisstjórar með eiginleg völd. Það tókst ekki betur en svo að þegar Pétur II var ekki nema 14 ára gamall árið 1840 stefndi í óefni í Brasilíu vegna innbyrðis sundurþykkis og óstjórnar, og var þá piltur spurður hvort hann vildi kannski taka strax við óskiptu embætti sínu en ekki bíða þar til hann yrði formlega myndugur 18 ára. Og Pétur II var til í það, uppfullur af skyldurækni, og raunin varð sú að táningskeisarinn hafði góð áhrif, heil- mikil völd og áhrif söfnuðust á hans hendur sem áður höfðu farið um víðan völl, og tók nú Brasilía öll að eflast og styrkjast. Pétur II hafði erft frjálslyndar skoðanir föður síns og varð með tímanum jafnvel enn frjálslyndari. Hann hélt áfram að lesa reiðinnar býsn og varð mjög vel að sér á fjöl- mörgum sviðum og ekki einungis á sviðum stjórnsýslu og stjórnvisku, heldur grúskaði hann líka í vísindum margvíslegum. Hann varð einhver menntaðasti og víðsýnasti einvaldur sögunnar bæði fyrr og síðar og á meðal vina hans og pennavina voru menn eins og Charles Darwin, Richard Wagner, Louis Pasteur, Victor Hugo og sá þýski heim- spekiskálkur Friedrich Nietzsche. Sjálfur skrifaði hann að hann væri fæddur til að helga sig menningu og vísindum, en stjórn- arstörfin leit hann á sem þungan kross sem hann hugðist þó rogast með eftir bestu getu. Ekkert bruðl Á keisarastóli þótti Pétur II stálheiðarlegur og hafði skömm á öllu bruðli, og hann gerði ýmis- legt gagn, það er ljóst. Upp úr miðri nítjándu öld rann upp mikið blómaskeið í Brasilíu, fólki fjölgaði stórlega, atvinnuástand og efnahagur tóku kipp og sumir vildu að Íslendingar flytt- ust í stórhópum þangað suður eftir. Ekki fengu frumbyggjar Brasilíu mikinn þátt í því góð- æri, en fyrir aðra var blómatími. Einhvern þátt í þessari velgengni átti Pétur II með því að viðhalda stöðugleika. En hins vegar gekk illa að banna þrælahaldið. Keisarinn í Bras ilíu var ekki einvaldur þótt hann hefði umtalsverð völd og þrælahald var mjög útbreitt og forrík- ir plantekrueigendur úti um allt þetta víðáttu- mikla land streittust svo gegn afnámi þræla- halds að það var ekki fyrr en 1888 sem það var að fullu bannað, og varð Brasilía síðast ríkja til þess í Evrópu og Ameríku. Aldrei hafði farið milli mála að Pétur keisari vildi afnema þessa ósvinnu og lét sig einu gilda þó hann væri sak- aður um að stefna að „þjóðar sjálfsmorði“ með afnámi þrælahalds, svo mikilvægir sem þræl- arnir væru fyrir efnahag landsins. Og þótt Pétur væri fyrst og fremst bók- hneigður gat hann líka sýnt röggsemi og jafnvel hörku. Árið 1864 lýstu Paragvæjar yfir stríði gegn Brasilíu, þeir vildu koma sér í hóp stórvelda álfunnar og eignast umdeild héröð á landamærum ríkjanna. Í fyrstu vegnaði Brasilíumönnum illa, en Pétur keisari átti svo sinn þátt í að snúa stríðs- gæfu þeirra við. Hann sýndi óvænta ákveðni og fór sjálfur á vígstöðvarnar til að hvetja dáta sína áfram af mikilli festu og ekki leið á löngu þar til yfirburðir Brasilíumanna og bandamanna þeirra sögðu til sín. Steypt af stóli Pétur varð með tímanum æ lúnari og þreytt- ari á keisaratigninni. Og hann tók að efast stórlega um að keisaraembættið ætti nokkra framtíð fyrir sér. Hann hafði eignast tvo syni sem dóu ungir og það fannst honum að hluta til merki þess að keisaraembættið hlyti að deyja út með sér. Hann átti að vísu mjög gáf- aða dóttur, sem mátti lögum samkvæmt erfa keisaratignina, en þrátt fyrir alla hans víðsýni á mörgum sviðum leit hann svo á að kona gæti með engu móti setið í slíku starfi. Og ríkti þó Viktoría nokkur yfir breska heimsveldinu ein- mitt um þær mundir. Þegar Pétri var steypt alveg óvænt af stóli árið 1889 eftir 58 ár í hásætinu, þá gerði hann hvorki tilraun til að halda sjálfur í völdin né koma þeim í hend- ur Ísabellu dóttur sinnar, heldur fór umyrða- laust í útlegð til Evrópu, og þar bjó hann við lítil efni á hótelum í Frakklandi þar til hann dó tveimur árum seinna. Hann hafði náttúr- lega alls ekki látið sér til hugar koma að lauma peningum undan á leynireikninga í Evrópu, slíkt hefði verið andstætt öllu hans eðli. Valdaránið kom talsvert á óvart, enda stóð einungis lítil klíka lýðveldissinna á bak við það. Pétur hafði að vísu sætt vaxandi gagn- rýni síðustu árin af því mörgum fannst hann þá orðinn helstil afskiptasamur um stjórn landsins – þótt í rauninni hefði hann í engu breytt háttum sínum – það voru bara runnir upp nýir tímar og þótt Brasilíumönn- um þætti vænt um Pétur fannst þeim ekki lengur sjálfsagt að arfakóngur hefði eigin- leg völd. Því var honum steypt en á næstu áratugum þegar landið rambaði oft á barmi stjórnleysis, þá sáu menn stundum eftir þessum hægláta kurteisa keisara. Hann var að mati Machado de Assis, eins fremsta rit- höfundar Brasilíu bæði þá og síðar, „auð- mjúkur, heiðarlegur og menntaður föður- landsvinur sem kunni að gera úr hásæti keisarans [hógværlegan] stól án þess að draga úr mikilfengleik þess eða virðuleik“. HINIR FÁTÆKUSTU Kabóklóar, afkomendur frumbyggja og innflytjenda. KEISARINN Gjarnan heldur þreytulegur á mynd um. ÍSABELLA Fékk ekki að spreyta sig; hún var jú kona! því sjálfur að vera settur af og lyfti ekki litlafingri til að sporna gegn því – enda er mála sannast að honum fannst bæði leiðin- legt og erfitt að vera keisari og lýsti því oft yfir að hann hefði miklu frekar viljað vera kennari. Hann var af evrópskum háaðli eins og hann þótti fínastur, þessi keisari; í ætt- bókinni hans mátti finna spænska kónga, germanska keisara og franska Loðvíka. Afi hans var Jóhann VI Portúgalskóngur sem flúði undan Napóleon til Brasilíu 1808, þegar franskir herir lögðu undir sig Portúgal. Brasilía hafði þá í tæpar þrjár aldir verið nýlenda Portúgalsmanna. Jóhann taldi ekki óhætt að snúa aftur heim til Portúgals fyrr en 1821 og skildi þá Pétur son sinn eftir í Brasilíu til að stýra þar málum. Ári seinna lýsti Pétur yfir sjálfstæði Brasilíu og tók sér keisaratign: Pétur I hét hann eftirleiðis. Ekki var Brasilía mjög burðugt ríki um þær mundir, íbúar kannski fjórar milljónir og stór hluti landsins óbyggður, en menn þóttust þó sjá í hendi sér að auðlindir væru miklar og möguleikar á vexti ótæpilegir í öllu þessu flæmi; því taldi Pétur I réttast að kalla sig keisara en ekki réttan og sléttan kóng. Pétur þessi var kvæntur Maríu Leó- poldínu keisaradóttur frá Austurríki, systir hennar var María Lovísa síðari eiginkona Napóleons, og sonur þeirra var Pétur II. Hann varð svo keisari yfir Brasilíu aðeins fimm ára gamall árið 1831 þegar faðir hans sagði af sér og hélt aftur til Portúgals að skipta sér af málum sem ekki koma efni þessarar greinar við. En Pétur I hafði verið að mörgu leyti merkur maður, hann var óró- leg sál en sem keisari var hann afar frjáls- lyndur miðað við kóngadót þess tíma, og af dánarbeði sínum í Portúgal 1834 skrifaði hann til dæmis fyrrverandi þegnum sínum í Brasilíu og hvatti þá eindregið til að leggja af þrælahald og hann þvertók fyrir að fæð- ing hans í kóngshöll þýddi að hann væri öðru fólki æðri: „Ég veit að blóð mitt er eins á litinn og blóð sérhvers svertingja.“ Var slíkt róttæk hugsun í þá daga, ekki síst úr keis- aramunni. Þungur kross Sonurinn Pétur II átti frekar einmanalega æsku og var hinum barnunga keisara mjög iPhone 6 Plus 16GB Tilboðsverð 124.990.-* Fullt verð: 139.990.- 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 9 F B 1 0 4 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 6 A -5 C 7 C 1 7 6 A -5 B 4 0 1 7 6 A -5 A 0 4 1 7 6 A -5 8 C 8 2 8 0 X 4 0 0 1 A F B 1 0 4 s _ 2 4 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.