Fréttablaðið - 25.04.2015, Qupperneq 78
25. apríl 2015 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 42TÍMAMÓT
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
PÁLL SKÚLASON
prófessor í heimspeki,
lést miðvikudaginn 22. apríl á Landspítalanum
við Hringbraut. Jarðarförin verður auglýst
síðar.
Auður Birgisdóttir
Birgir Pálsson Regína Ásvaldsdóttir
Kolbrún Þ. Pálsdóttir Róbert H. Haraldsson
Andri Páll Pálsson Brynja Þóra Guðnadóttir
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
KRISTJANA JÓHANNA JÓNSDÓTTIR
lést miðvikudaginn 15. apríl sl. Útförin fór
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu þann
22. apríl sl.
Jónína Björk Óskarsdóttir Jóhann Sigurður Sigurdórsson
Rósa Kristín Óskarsdóttir Ásbjörn Jónsson
Geir Óskarsson Ingunn Sigurbjörnsdóttir
Konráð Herner Óskarsson Olga Guðlaug Pálsdóttir
Guðlaug María Óskarsdóttir Jónas Jónsson
Sólrún Óskarsdóttir Drífa Guðrún Halldórsdóttir
og aðrir afkomendur.
Útfararþjónusta
í 20 ár
Hinrik Valsson Svanhildur Eiríksdóttir Gísli G. Guðmundsson
Vistvænar íslenskar kistur, krossar og duftker
Hinrik: Sími 892 0748 / Gísli: Sími 482 4300
Þjónusta allan sólarhringinn
Útfararþjónusta síðan 1996
Þökkum innilega samúð og hlýhug við
andlát og útför móður okkar,
SIGRÍÐAR EBENESARDÓTTUR
frá Tjaldtanga í Folafæti.
Randver Jónsson
Valgeir Ómar Jónsson Sólveig Þorvaldsdóttir
Ebeneser Aðalsteinn Jónsson Lára Viðarsdóttir
Guðmundur Páll Jónsson Ásta Ósk Þorvaldsdóttir
Elísabet María Jónsdóttir Jens Níelsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri
BOGI ÞÓRIR GUÐJÓNSSON
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð þann
19. apríl sl. Útför hans fer fram frá Digranes-
kirkju mánudaginn 27. apríl kl. 13.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á
minningarkort hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíðar.
Sjöfn Sigurjónsdóttir
Guðjón Bogason
Heiða Bogadóttir Robert Ickes
Sólveig Bogadóttir Páll Einarsson
Þórunn Bogadóttir
Heba Bogadóttir Þórhallur I. Hrafnsson
Linda Lea Bogadóttir
og aðrir ástvinir.
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
tengdadóttir, amma og langamma,
NANNA SIGRÍÐUR OTTÓSDÓTTIR
sjúkraliði,
Smyrlahrauni 44, Hafnarfirði,
lést mánudaginn 20. apríl á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi. Útför hennar fer
fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 29. apríl kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag
Íslands.
Bjarnar Ingimarsson
Jóhann Guðni Bjarnarsson Þórunn Huld Ægisdóttir
Guðný Bjarnarsdóttir Karl Óskar Magnússon
Ingibjörg Bjarnarsdóttir Sigurður Pétur Sigurðsson
Ottó Albert Bjarnarsson
Guðný Jóna Þorbjörnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Boris Jeltsín, forseti Rússlands, var jarðsunginn þennan mánaðar-
dag árið 2007 að viðstöddum fjölmörgum þjóðarleiðtogum heims.
Hann var kjörinn fyrsti forseti Rússlands 12. júní árið 1991.
Efnahagsástandið í landinu hafði verið afar bágborið allan níunda
áratuginn en nú var runninn upp nýr tími. Miklar breytingar fylgdu
kjörinu á Jeltsín sem breytti efnahagnum og þá helst á þann veg
að leyfa almenningi að njóta góðs af. Upp spruttu ný fyrirtæki og
efnahagurinn varð stöðugri.
Jeltsín var litríkur persónuleiki og ólíkur þeim stjórnmála-
mönnum sem voru við völd á undan honum.
Hann var maður fólksins og oft birtust myndir af honum þar
sem hann lék á als oddi, yfirleitt undir áhrifum áfengis.
Jeltsín lét af störfum árið 2000 vegna heilsubrests og Vladimír
Pútin tók við völdum.
ÞETTA GERÐIST 25. APRÍL 2007
Jeltsín var kvaddur
„Þetta verður mjög skemmtileg sýn-
ing, það er svo mikil gleði í henni,“
segir Anna Júlíana Sveinsdóttir söng-
kennari. Þar er hún líka að tala um
Töfraflautuna eftir Mozart sem verð-
ur frumsýnd í Salnum síðdegis í dag,
á vegum Tónlistarskóla Kópavogs, í
íslenskri þýðingu. Flytjendur eru nem-
endur í skólanum.
Töfraflautan snýst um egypska
prinsinn Tamino sem er villt-
ur í ókunnu landi og verður ást-
fanginn af Paminu, dóttur nætur-
drottningarinnar. Papageno þarf að
leggja ýmislegt á sig og hreppir loks
sína eigin Papagenu.
Anna Júlíana segir um tilvalda fjöl-
skylduskemmtun að ræða. „Þetta er
ævintýri,“ segir hún. „Jón Pétur Frið-
riksson er í hlutverki hins gamansama
Papagenos og milli söngatriða rekur
hann söguþráðinn til að auðvelda börn-
um að átta sig á efninu. Hann Jón Pétur
er svo skemmtilegur og leikrænn að á
generalprufunni á sumardaginn fyrsta
voru börnin farin að svara honum, þau
lifðu sig svo inn í það sem hann var að
segja.“
Næturdrottningin er í höndum Bryn-
dísar Guðjónsdóttur og er æðisleg líka,
að sögn Önnu Júlíönu. „Bryndís var að
ljúka námi við skólann hér og stefnir
á nám erlendis í framhaldinu. Það er
gott fyrir hana að hafa þetta hlutverk
í farteskinu þangað,“ segir hún.
Rík hefð er fyrir því að óperur séu
settar á svið í Kópavogi á vegum tón-
listarskóla bæjarins enda nýtur hann
þess að hafa aðgang að Salnum. „Ég er
búin að setja upp 25 óperur með nem-
endunum gegnum árin. Sumar þeirra
hafa aldrei verið settar upp í annan
tíma á Íslandi en við settum upp Töfra-
flautuna líka fyrir tíu árum,“ segir
Anna Júlíana.
Frumsýningin er í dag klukkan 17
í Salnum og önnur sýning á morgun,
sunnudag, klukkan 20.
Aðgangur er ókeypis fyrir alla.
gun@frettabladid.is
Börnin voru byrjuð að
svara sögumanninum
Töfrafl autan eft ir Mozart er ævintýrasýning á íslensku fyrir alla fj ölskylduna og verður
sýnd í Salnum í dag og á morgun á vegum Tónlistarskóla Kópavogs. Aðgangur er ókeypis.
Á SVIÐINU Hugrún Hanna Stefánsdóttir og
Bryndís Guðjónsdóttir í hlutverkum Paminu
og næturdrottningarinnar.
SKOTIN? Tinna Jóhanna Magnusson og Jón Pétur Friðriksson leika Papagenu og Papageno.
MERKISATBURÐIR
1719 Róbinson Krúsó eftir Daniel Defoe kemur út.
1915 Eldsvoði verður í Reykjavík er Hótel Reykjavík og ellefu
önnur hús við Austurstræti, Pósthússtræti og Hafnarstræti
brenna og tveir menn farast.
1940 Færeyski fáninn,
Merkið, er gerður að
opinberum fána eyjanna.
1944 Fyrsta íslenska
óperettan, Í álögum, er
frumsýnd.
1953 Grein birtist í vís-
indatímaritinu Nature um
byggingu kjarnsýrunnar
DNA. Höfundarnir eru Watson og Crick, sem síðar fengu Nóbels-
verðlaun.
1974 Nellikubyltingin hefst í Portúgal þar sem einræðisstjórn
landsins er steypt af stóli.
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
9
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
6
9
-9
B
E
C
1
7
6
9
-9
A
B
0
1
7
6
9
-9
9
7
4
1
7
6
9
-9
8
3
8
2
8
0
X
4
0
0
6
B
F
B
1
0
4
s
_
2
4
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K