Fréttablaðið - 25.04.2015, Síða 78

Fréttablaðið - 25.04.2015, Síða 78
25. apríl 2015 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 42TÍMAMÓT Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, PÁLL SKÚLASON prófessor í heimspeki, lést miðvikudaginn 22. apríl á Landspítalanum við Hringbraut. Jarðarförin verður auglýst síðar. Auður Birgisdóttir Birgir Pálsson Regína Ásvaldsdóttir Kolbrún Þ. Pálsdóttir Róbert H. Haraldsson Andri Páll Pálsson Brynja Þóra Guðnadóttir og barnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, KRISTJANA JÓHANNA JÓNSDÓTTIR lést miðvikudaginn 15. apríl sl. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu þann 22. apríl sl. Jónína Björk Óskarsdóttir Jóhann Sigurður Sigurdórsson Rósa Kristín Óskarsdóttir Ásbjörn Jónsson Geir Óskarsson Ingunn Sigurbjörnsdóttir Konráð Herner Óskarsson Olga Guðlaug Pálsdóttir Guðlaug María Óskarsdóttir Jónas Jónsson Sólrún Óskarsdóttir Drífa Guðrún Halldórsdóttir og aðrir afkomendur. Útfararþjónusta í 20 ár Hinrik Valsson Svanhildur Eiríksdóttir Gísli G. Guðmundsson Vistvænar íslenskar kistur, krossar og duftker Hinrik: Sími 892 0748 / Gísli: Sími 482 4300 Þjónusta allan sólarhringinn Útfararþjónusta síðan 1996 Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, SIGRÍÐAR EBENESARDÓTTUR frá Tjaldtanga í Folafæti. Randver Jónsson Valgeir Ómar Jónsson Sólveig Þorvaldsdóttir Ebeneser Aðalsteinn Jónsson Lára Viðarsdóttir Guðmundur Páll Jónsson Ásta Ósk Þorvaldsdóttir Elísabet María Jónsdóttir Jens Níelsson barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæri BOGI ÞÓRIR GUÐJÓNSSON lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð þann 19. apríl sl. Útför hans fer fram frá Digranes- kirkju mánudaginn 27. apríl kl. 13.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á minningarkort hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíðar. Sjöfn Sigurjónsdóttir Guðjón Bogason Heiða Bogadóttir Robert Ickes Sólveig Bogadóttir Páll Einarsson Þórunn Bogadóttir Heba Bogadóttir Þórhallur I. Hrafnsson Linda Lea Bogadóttir og aðrir ástvinir. Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, tengdadóttir, amma og langamma, NANNA SIGRÍÐUR OTTÓSDÓTTIR sjúkraliði, Smyrlahrauni 44, Hafnarfirði, lést mánudaginn 20. apríl á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 29. apríl kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Bjarnar Ingimarsson Jóhann Guðni Bjarnarsson Þórunn Huld Ægisdóttir Guðný Bjarnarsdóttir Karl Óskar Magnússon Ingibjörg Bjarnarsdóttir Sigurður Pétur Sigurðsson Ottó Albert Bjarnarsson Guðný Jóna Þorbjörnsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Boris Jeltsín, forseti Rússlands, var jarðsunginn þennan mánaðar- dag árið 2007 að viðstöddum fjölmörgum þjóðarleiðtogum heims. Hann var kjörinn fyrsti forseti Rússlands 12. júní árið 1991. Efnahagsástandið í landinu hafði verið afar bágborið allan níunda áratuginn en nú var runninn upp nýr tími. Miklar breytingar fylgdu kjörinu á Jeltsín sem breytti efnahagnum og þá helst á þann veg að leyfa almenningi að njóta góðs af. Upp spruttu ný fyrirtæki og efnahagurinn varð stöðugri. Jeltsín var litríkur persónuleiki og ólíkur þeim stjórnmála- mönnum sem voru við völd á undan honum. Hann var maður fólksins og oft birtust myndir af honum þar sem hann lék á als oddi, yfirleitt undir áhrifum áfengis. Jeltsín lét af störfum árið 2000 vegna heilsubrests og Vladimír Pútin tók við völdum. ÞETTA GERÐIST 25. APRÍL 2007 Jeltsín var kvaddur „Þetta verður mjög skemmtileg sýn- ing, það er svo mikil gleði í henni,“ segir Anna Júlíana Sveinsdóttir söng- kennari. Þar er hún líka að tala um Töfraflautuna eftir Mozart sem verð- ur frumsýnd í Salnum síðdegis í dag, á vegum Tónlistarskóla Kópavogs, í íslenskri þýðingu. Flytjendur eru nem- endur í skólanum. Töfraflautan snýst um egypska prinsinn Tamino sem er villt- ur í ókunnu landi og verður ást- fanginn af Paminu, dóttur nætur- drottningarinnar. Papageno þarf að leggja ýmislegt á sig og hreppir loks sína eigin Papagenu. Anna Júlíana segir um tilvalda fjöl- skylduskemmtun að ræða. „Þetta er ævintýri,“ segir hún. „Jón Pétur Frið- riksson er í hlutverki hins gamansama Papagenos og milli söngatriða rekur hann söguþráðinn til að auðvelda börn- um að átta sig á efninu. Hann Jón Pétur er svo skemmtilegur og leikrænn að á generalprufunni á sumardaginn fyrsta voru börnin farin að svara honum, þau lifðu sig svo inn í það sem hann var að segja.“ Næturdrottningin er í höndum Bryn- dísar Guðjónsdóttur og er æðisleg líka, að sögn Önnu Júlíönu. „Bryndís var að ljúka námi við skólann hér og stefnir á nám erlendis í framhaldinu. Það er gott fyrir hana að hafa þetta hlutverk í farteskinu þangað,“ segir hún. Rík hefð er fyrir því að óperur séu settar á svið í Kópavogi á vegum tón- listarskóla bæjarins enda nýtur hann þess að hafa aðgang að Salnum. „Ég er búin að setja upp 25 óperur með nem- endunum gegnum árin. Sumar þeirra hafa aldrei verið settar upp í annan tíma á Íslandi en við settum upp Töfra- flautuna líka fyrir tíu árum,“ segir Anna Júlíana. Frumsýningin er í dag klukkan 17 í Salnum og önnur sýning á morgun, sunnudag, klukkan 20. Aðgangur er ókeypis fyrir alla. gun@frettabladid.is Börnin voru byrjuð að svara sögumanninum Töfrafl autan eft ir Mozart er ævintýrasýning á íslensku fyrir alla fj ölskylduna og verður sýnd í Salnum í dag og á morgun á vegum Tónlistarskóla Kópavogs. Aðgangur er ókeypis. Á SVIÐINU Hugrún Hanna Stefánsdóttir og Bryndís Guðjónsdóttir í hlutverkum Paminu og næturdrottningarinnar. SKOTIN? Tinna Jóhanna Magnusson og Jón Pétur Friðriksson leika Papagenu og Papageno. MERKISATBURÐIR 1719 Róbinson Krúsó eftir Daniel Defoe kemur út. 1915 Eldsvoði verður í Reykjavík er Hótel Reykjavík og ellefu önnur hús við Austurstræti, Pósthússtræti og Hafnarstræti brenna og tveir menn farast. 1940 Færeyski fáninn, Merkið, er gerður að opinberum fána eyjanna. 1944 Fyrsta íslenska óperettan, Í álögum, er frumsýnd. 1953 Grein birtist í vís- indatímaritinu Nature um byggingu kjarnsýrunnar DNA. Höfundarnir eru Watson og Crick, sem síðar fengu Nóbels- verðlaun. 1974 Nellikubyltingin hefst í Portúgal þar sem einræðisstjórn landsins er steypt af stóli. 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 9 F B 1 0 4 s _ P 0 8 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 6 9 -9 B E C 1 7 6 9 -9 A B 0 1 7 6 9 -9 9 7 4 1 7 6 9 -9 8 3 8 2 8 0 X 4 0 0 6 B F B 1 0 4 s _ 2 4 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.