Fréttablaðið - 25.04.2015, Blaðsíða 84
25. apríl 2015 LAUGARDAGUR| MENNING | 48
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Daníel Bjarnason, tón-skáld og hljómsveitar-stjóri, er einn þeirra ungu íslensku lista-manna sem hafa náð
alþjóðlegri hylli á undanförnum
árum. Starfsvettvangur Daníels
er í raun um víða veröld og nú
síðast frumflutti sinfóníuhljóm-
sveit Cincinnati eftir hann verk-
ið Collider, sem Daníel kennir
við Large Hadron Collider, einda-
hraðalinn í Cern. Verkið hlaut lof-
samlega dóma og verður það flutt
af Sinfóníuhljómsveit Íslands á
komandi hausti. Sá flutningur er
reyndar hluti af þeim verkefnum
sem Daníel tók nýverið að sér sem
staðarlistamaður Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands.
„Það eru reyndar nokkur hlut-
verk sem felast í því að vera
staðar listamaður. Þetta er
skemmti legt og fjölbreytt verk-
efni og að semja nýja tónlist fyrir
hljómsveitina er einungis eitt af
þeim hlutverkum.
Annað er svo að koma að verk-
um sem stjórnandi og taka þátt í
verkefnavali. Ég er í verkefnavals-
nefnd og tek þátt í daglegu samtali
um listræna stefnu hljómsveitar-
innar og framtíðarmótun.“
Peter Grimes og YRKJA
„En sem stjórnandi þá er Peter
Grimes eftir Benjamin Britten
stóra verkefnið á þessu starfsári
og þarna verða gríðarlega flottir
söngvarar. Það er mikið tilhlökk-
unarefni að fá að vinna með Stuart
Skelton á toppi ferilsins en sumir
hafa haft á orði að hann sé hinn
eini sanni Peter Grimes um þess-
ar mundir. Svo verða þarna líka
toppsöngvarar á borð við Susan
Gritton og Ólaf Kjartan Sigurðar-
son. Þetta er ein magnaðasta ópera
Ekkert sem ég vildi frekar gera
Stjarna Daníels Bjarnasonar hefur risið hratt á undanförnum árum í heimi sígildrar tónlistar. Verk hans eru fl utt um víða veröld, hann
er nýráðinn staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands og hann er gagnrýninn á ráðningarferli nýs óperustjóra.
STAÐARLISTAMAÐUR Þau eru mörg og fjölbreytt, verkin sem Daníel Bjarnason tekst á við sem staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ef við ætlum að
viðhalda þessu þá verðum
við líka að vera vakandi
fyrir því í hvaða átt við
þróumst og þroskumst. Það
er ekkert gefið í þessu. Við
verðum að gæta fag-
mennsku og gera miklar
kröfur til okkar sjálfra.
allra tíma. Áhrifarík saga og stór-
kostleg tónlist sem stækkar þessa
sögu. Það er það sem gerist svo
oft í óperunni – tónlistin og sagan
stækka hvort annað og það eykur á
gildi allrar upplifunarinnar.
Þriðja hlutverk mitt sem staðar-
listamanns er svo vinna með tón-
skáldum innan verkefnis sem
kallast YRKJA. Þangað inn verða
valin allt að þremur tónskáldum
sem koma svo til með að taka þátt
í níu mánaða ferli. Í þessu ferli
skrifa þau tónverk sem verður svo
flutt af hljómsveitinni vorið 2016.
Við eigum ótrúlega mikið af flott-
um tónskáldum svo þetta verður
skemmtilegt verkefni.“
Listalandið Ísland
Velgengni íslenskra listamanna á
erlendri grund er svo sannarlega
umhugsunarefni. Daníel segir að
hann fái oft þessa spurningu frá
erlendum miðlum hvernig á þessu
standi.
„Við þyrftum að eiga gott svar
við þessu til þess að geta varðveitt
og viðhaldið þessari íslensku vel-
gengni. En svarið er eflaust flókið
og margþætt. Í fyrsta lagi þá tókst
okkur að byggja upp gott tón-
listar menntunarkerfi og við verð-
um að hafa í huga að það kemur
enginn úr tómarúmi. Þetta er
ekki eitthvert sjálfsprottið fyrir-
bæri. Svo eru líka aðrar samfélags-
legar ástæður: Ákveðin nálægð og
stemning fyrir því og áhugi hjá
listamönnum fyrir að horfa út
fyrir ramman og vinna þvert á list-
greinar og í einhvers konar skap-
andi samlífi. Ég held að það skipti
miklu máli að við erum þannig ekki
bara föst í því sem við erum að gera
heldur erum að vinna og kynnast
þvert á listgreinar. Björk færði
svo athyglina á Ísland og það veitti
okkur eins konar heimssamhengi
sem við höfðum ekki áður hvað
varðar tónlistina en er hér enn.“
Fagmennska og hvatning
„Það hefur líka haft sína kosti
hvað við eigum okkur stutta tón-
listarsögu. Það veitir okkur frelsi
til þess að taka inn áhrif hvaðan
sem er. Ég sem tónskáld hef t.d.
alltaf borið mig saman við tón-
skáld úti í heimi. Ég hafði vissu-
lega fyrir myndir hér heima en
það góða fólk var flestallt kenn-
ararnir mínir, fólk sem ég þekkti,
og það er öðruvísi en að vera með
stóra og þunga sögu á bakinu.
Ef við ætlum að viðhalda þessu
þá verðum við líka að vera vak-
andi fyrir því í hvaða átt við þró-
umst og þroskumst. Það er ekk-
ert gefið í þessu. Við verðum að
gæta fagmennsku og gera mikl-
ar kröfur til okkar sjálfra. Ef
við horfum til að mynda til þess
hvernig nú nýverið var staðið að
ráðningu nýs óperustjóra þá var
það ekki vel gert. Að ég sé ósáttur
við það hefur ekkert að gera með
persónu þess sem hlaut starfið –
alls ekki. Þetta er spurning um
að við finnum að allir eigi jöfn
tækifæri – að allir séu metnir að
menntun, reynslu og verðleikum
og að fólk geti treyst því að verk-
ferlar í stærstu menningarstofn-
unum okkar séu faglegir á allan
hátt. Þannig sköpum við hvetj-
andi umhverfi sem hæft fólk vill
starfa í og telur eftirsóknarvert.
Það er til dæmis ekki ásættanlegt
að stjórn Óperunnar komi sér hjá
því að ræða við hæfa umsækjend-
ur og skjóti sér síðan á bak við
frumúrvinnslu einhverrar ráðn-
ingarskrifstofu.“
Reyni að vanda mig
Velgengni Daníels hefur verið
hröð á síðustu árum en það er auð-
finnanlegt að hann er með báða
fætur á jörðinni. Eftir að fyrsta
platan, Processions, kom út árið
2010 og gekk vel þá byrjaði snjó-
boltinn að rúlla. „Ég virðist eink-
um hafa náð í gegn í Bandaríkj-
unum en undanfarið hef ég einnig
haft mikið að gera í Evrópu. Ég fór
að fá pantanir frá hljómsveitum og
myndaði tengsl við ákveðna aðila,
m.a. L.A. Philharmonic sem hefur
pantað hjá mér nokkur verk og ég
er í góðu sambandi við. Það hefur
reynst mér alveg ómetanlegt, ekki
síst með tilliti til þess að þetta er
hljómsveit sem byggir upp trún-
aðar sambönd við tónskáld og er
hvað mest í að flytja nýja tónlist.
Eins og staðan er núna þá er ég
bókaður út 2017 og rúmlega það.
Þetta er kannski ákveðin pressa
en ég reyni að hugsa ekki um það.
Hugsa frekar um hvað ég er hepp-
inn að fá að gera það sem ég er
að gera því vandi fylgir vegsemd
hverri. Ég reyni einfaldlega að
vanda mig og vera opinn fyrir
umhverfinu.“
Mósaík og kokteill
Daníel segir að það sé erfitt að
negla niður einhvern einn áhrifa-
vald umfram aðra. „Slíkt er
einfaldlega síbreytilegt. Þetta
er meira eins og mósaíkverk í
stöðugri vinnslu, eitthvað sem
stækkar og breytist frá degi til
dags. Ég reyni að fylgjast með
og halda mér áhugasömum en
vissulega er þetta alltaf ákveðin
glíma og sjálfsskoðun sem felst í
því að semja nýja tónlist. Maður
þarf líka að spyrja sig spurninga.
Hvað á verkið að gera? Til hvers
er það?
Hvert verk sem maður vinnur
er kokteill af angist og efasemd-
um, sjálfstrausti og bjartsýni.
Samt er ekkert sem ég vildi frek-
ar vera að gera.“
www.banthai.is
THAILENSKUR MATUR
GÓÐUR
www.yummy.is www.yam.is
ÓKEYPIS AÐGANGUR
HÁDEGISTÓNLEIKAR
Í NORÐURLJÓSUM, HÖRPU
ÞRIÐJUDAGINN 28. APRÍL KL.12:15
DÍSELLA LÁRUSDÓTTIR
SÓPRAN
ANTONÍA HEVESI
píanó
STRAVINSKY - RAVEL - VERDI
ÁST Í ÖLLUM LITUM
MENNING
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
9
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
6
9
-6
F
7
C
1
7
6
9
-6
E
4
0
1
7
6
9
-6
D
0
4
1
7
6
9
-6
B
C
8
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
1
0
4
s
_
2
4
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K