Fréttablaðið - 25.04.2015, Side 84

Fréttablaðið - 25.04.2015, Side 84
25. apríl 2015 LAUGARDAGUR| MENNING | 48 Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is Daníel Bjarnason, tón-skáld og hljómsveitar-stjóri, er einn þeirra ungu íslensku lista-manna sem hafa náð alþjóðlegri hylli á undanförnum árum. Starfsvettvangur Daníels er í raun um víða veröld og nú síðast frumflutti sinfóníuhljóm- sveit Cincinnati eftir hann verk- ið Collider, sem Daníel kennir við Large Hadron Collider, einda- hraðalinn í Cern. Verkið hlaut lof- samlega dóma og verður það flutt af Sinfóníuhljómsveit Íslands á komandi hausti. Sá flutningur er reyndar hluti af þeim verkefnum sem Daníel tók nýverið að sér sem staðarlistamaður Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands. „Það eru reyndar nokkur hlut- verk sem felast í því að vera staðar listamaður. Þetta er skemmti legt og fjölbreytt verk- efni og að semja nýja tónlist fyrir hljómsveitina er einungis eitt af þeim hlutverkum. Annað er svo að koma að verk- um sem stjórnandi og taka þátt í verkefnavali. Ég er í verkefnavals- nefnd og tek þátt í daglegu samtali um listræna stefnu hljómsveitar- innar og framtíðarmótun.“ Peter Grimes og YRKJA „En sem stjórnandi þá er Peter Grimes eftir Benjamin Britten stóra verkefnið á þessu starfsári og þarna verða gríðarlega flottir söngvarar. Það er mikið tilhlökk- unarefni að fá að vinna með Stuart Skelton á toppi ferilsins en sumir hafa haft á orði að hann sé hinn eini sanni Peter Grimes um þess- ar mundir. Svo verða þarna líka toppsöngvarar á borð við Susan Gritton og Ólaf Kjartan Sigurðar- son. Þetta er ein magnaðasta ópera Ekkert sem ég vildi frekar gera Stjarna Daníels Bjarnasonar hefur risið hratt á undanförnum árum í heimi sígildrar tónlistar. Verk hans eru fl utt um víða veröld, hann er nýráðinn staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands og hann er gagnrýninn á ráðningarferli nýs óperustjóra. STAÐARLISTAMAÐUR Þau eru mörg og fjölbreytt, verkin sem Daníel Bjarnason tekst á við sem staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Ef við ætlum að viðhalda þessu þá verðum við líka að vera vakandi fyrir því í hvaða átt við þróumst og þroskumst. Það er ekkert gefið í þessu. Við verðum að gæta fag- mennsku og gera miklar kröfur til okkar sjálfra. allra tíma. Áhrifarík saga og stór- kostleg tónlist sem stækkar þessa sögu. Það er það sem gerist svo oft í óperunni – tónlistin og sagan stækka hvort annað og það eykur á gildi allrar upplifunarinnar. Þriðja hlutverk mitt sem staðar- listamanns er svo vinna með tón- skáldum innan verkefnis sem kallast YRKJA. Þangað inn verða valin allt að þremur tónskáldum sem koma svo til með að taka þátt í níu mánaða ferli. Í þessu ferli skrifa þau tónverk sem verður svo flutt af hljómsveitinni vorið 2016. Við eigum ótrúlega mikið af flott- um tónskáldum svo þetta verður skemmtilegt verkefni.“ Listalandið Ísland Velgengni íslenskra listamanna á erlendri grund er svo sannarlega umhugsunarefni. Daníel segir að hann fái oft þessa spurningu frá erlendum miðlum hvernig á þessu standi. „Við þyrftum að eiga gott svar við þessu til þess að geta varðveitt og viðhaldið þessari íslensku vel- gengni. En svarið er eflaust flókið og margþætt. Í fyrsta lagi þá tókst okkur að byggja upp gott tón- listar menntunarkerfi og við verð- um að hafa í huga að það kemur enginn úr tómarúmi. Þetta er ekki eitthvert sjálfsprottið fyrir- bæri. Svo eru líka aðrar samfélags- legar ástæður: Ákveðin nálægð og stemning fyrir því og áhugi hjá listamönnum fyrir að horfa út fyrir ramman og vinna þvert á list- greinar og í einhvers konar skap- andi samlífi. Ég held að það skipti miklu máli að við erum þannig ekki bara föst í því sem við erum að gera heldur erum að vinna og kynnast þvert á listgreinar. Björk færði svo athyglina á Ísland og það veitti okkur eins konar heimssamhengi sem við höfðum ekki áður hvað varðar tónlistina en er hér enn.“ Fagmennska og hvatning „Það hefur líka haft sína kosti hvað við eigum okkur stutta tón- listarsögu. Það veitir okkur frelsi til þess að taka inn áhrif hvaðan sem er. Ég sem tónskáld hef t.d. alltaf borið mig saman við tón- skáld úti í heimi. Ég hafði vissu- lega fyrir myndir hér heima en það góða fólk var flestallt kenn- ararnir mínir, fólk sem ég þekkti, og það er öðruvísi en að vera með stóra og þunga sögu á bakinu. Ef við ætlum að viðhalda þessu þá verðum við líka að vera vak- andi fyrir því í hvaða átt við þró- umst og þroskumst. Það er ekk- ert gefið í þessu. Við verðum að gæta fagmennsku og gera mikl- ar kröfur til okkar sjálfra. Ef við horfum til að mynda til þess hvernig nú nýverið var staðið að ráðningu nýs óperustjóra þá var það ekki vel gert. Að ég sé ósáttur við það hefur ekkert að gera með persónu þess sem hlaut starfið – alls ekki. Þetta er spurning um að við finnum að allir eigi jöfn tækifæri – að allir séu metnir að menntun, reynslu og verðleikum og að fólk geti treyst því að verk- ferlar í stærstu menningarstofn- unum okkar séu faglegir á allan hátt. Þannig sköpum við hvetj- andi umhverfi sem hæft fólk vill starfa í og telur eftirsóknarvert. Það er til dæmis ekki ásættanlegt að stjórn Óperunnar komi sér hjá því að ræða við hæfa umsækjend- ur og skjóti sér síðan á bak við frumúrvinnslu einhverrar ráðn- ingarskrifstofu.“ Reyni að vanda mig Velgengni Daníels hefur verið hröð á síðustu árum en það er auð- finnanlegt að hann er með báða fætur á jörðinni. Eftir að fyrsta platan, Processions, kom út árið 2010 og gekk vel þá byrjaði snjó- boltinn að rúlla. „Ég virðist eink- um hafa náð í gegn í Bandaríkj- unum en undanfarið hef ég einnig haft mikið að gera í Evrópu. Ég fór að fá pantanir frá hljómsveitum og myndaði tengsl við ákveðna aðila, m.a. L.A. Philharmonic sem hefur pantað hjá mér nokkur verk og ég er í góðu sambandi við. Það hefur reynst mér alveg ómetanlegt, ekki síst með tilliti til þess að þetta er hljómsveit sem byggir upp trún- aðar sambönd við tónskáld og er hvað mest í að flytja nýja tónlist. Eins og staðan er núna þá er ég bókaður út 2017 og rúmlega það. Þetta er kannski ákveðin pressa en ég reyni að hugsa ekki um það. Hugsa frekar um hvað ég er hepp- inn að fá að gera það sem ég er að gera því vandi fylgir vegsemd hverri. Ég reyni einfaldlega að vanda mig og vera opinn fyrir umhverfinu.“ Mósaík og kokteill Daníel segir að það sé erfitt að negla niður einhvern einn áhrifa- vald umfram aðra. „Slíkt er einfaldlega síbreytilegt. Þetta er meira eins og mósaíkverk í stöðugri vinnslu, eitthvað sem stækkar og breytist frá degi til dags. Ég reyni að fylgjast með og halda mér áhugasömum en vissulega er þetta alltaf ákveðin glíma og sjálfsskoðun sem felst í því að semja nýja tónlist. Maður þarf líka að spyrja sig spurninga. Hvað á verkið að gera? Til hvers er það? Hvert verk sem maður vinnur er kokteill af angist og efasemd- um, sjálfstrausti og bjartsýni. Samt er ekkert sem ég vildi frek- ar vera að gera.“ www.banthai.is THAILENSKUR MATUR GÓÐUR www.yummy.is www.yam.is ÓKEYPIS AÐGANGUR HÁDEGISTÓNLEIKAR Í NORÐURLJÓSUM, HÖRPU ÞRIÐJUDAGINN 28. APRÍL KL.12:15 DÍSELLA LÁRUSDÓTTIR SÓPRAN ANTONÍA HEVESI píanó STRAVINSKY - RAVEL - VERDI ÁST Í ÖLLUM LITUM MENNING 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 9 F B 1 0 4 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 6 9 -6 F 7 C 1 7 6 9 -6 E 4 0 1 7 6 9 -6 D 0 4 1 7 6 9 -6 B C 8 2 8 0 X 4 0 0 6 A F B 1 0 4 s _ 2 4 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.