Fréttablaðið - 25.04.2015, Síða 74
25. apríl 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 38
TEIKNAR ÞÚ
FLOTTAR
MYNDIR?
Sendu okkur myndina þína í pósti til
Fréttablaðsins, Skaft ahlíð 24, 105 Reykjavík
eða með tölvupósti á krakkar@frettabladid.is
Bragi Halldórsson
145
„Jæja Konráð,“ sagði Kata. „Þú sem allt veist, hvað á að gera hér?“ „Við eigum
að klippa út þessi fjögur form og litla tígulinn líka“ sagði Konráð. „Og raða þeim
öllum þannig saman að þau myndi nýjan tening.“ „Er ekki einfaldast að setja litla
teninginn bara ofan á,“ sagði Kata og virtist áhugalaus um að glíma við þessa
þraut. Róbert klóarði sér í kollinum. Hann gat ekki séð hvernig þetta væri hægt.
„Það má snúa formunum á alla kanta og líka snúa þeim á hvolf,“ bætti Konráð
við. „En þau meiga ekki leggjast ofan á hvort annað.“ „Þar fór sá möguleiki,“ sagði
Kata en áhugi hennar hafði samt vaknað og hún náði sér í skæri. „Klippi, klipp,
leysum þetta.“
Getur þú raðað saman öllum fimm formunum upp á nýtt svo úr verði einn nýr
teningur?
Hafi ð þið heyrt um mara-
þonhlauparann sem hljóp í
spik?
Eða hafi ð þið heyrt um
bakarann sem bakaði bara
vandræði?
Þið hljótið að hafa heyrt um
trommarann sem sló í gegn?
Og rafvirkjann sem var í
stuði?
Svo ég tali nú ekki um
rakarana tvo sem fóru í hár
saman?
Hafi ð þið heyrt um minka-
búið sem minnkaði og
minnk aði þangað til það var
búið?
Brandarar
Hvað er skemmtilegast við að
eiga heima á Akureyri?
Ellen Klara: Hér á ég svo marga
vini og það er líka svo góður
skóli sem ég er í.
Krister Máni: Það er fótbolta-
völlur nálægt húsinu mínu,
góðir vinir allt í kringum mig
og stutt að fara allt sem mig
langar.
Hvað er best við að vera
systkin og hvað er skemmti-
legast að gera saman?
Krister Máni: Það er gott að
hafa alltaf einhvern að leika
við og mér finnst skemmti-
legast þegar við förum í sund
og út að borða.
Ellen Klara: Þá er ég ekki alltaf
ein og skemmtilegast finnst
mér þegar við spilum og leikum
saman.
Hvað langar ykkur að verða
þegar þið verðið stór?
Ellen Klara: Ískona og vinna í
stórri ísbúð.
Krister Máni: Ég ætla að verða
fótboltamaður eða bóndi,
kannski bara bæði.
Hvað ætlið þið að gera í
sumar?
Krister Máni: Æfa fótbolta,
fara í Arsenalskólann, keppa á
mótum, fara í sveitina og fara í
ferðalög.
Ellen Klara: Ég ætla að fara
í sumarbúðir á Hólavatn og í
útilegur, kannski á ættarmót.
Svo ætlum við til Frakklands
að heimsækja vini okkar í lok
sumarsins.
Hvert er uppáhaldsdýrið
ykkar?
Ellen Klara: Mér finnst hvolpar
og kettlingar mjög sætir.
Krister Máni: Það er kind.
Hvolpar, kettlingar og
kind eru í uppáhaldi
Systkinin Ellen Klara Ívarsdóttir, átta ára, og Krister Máni Ívarsson, tíu ára, eiga
heima á Akureyri. Í sumar ætla þau í sveitina og að ferðast til Frakklands.
SYSTKININ Þeim finnst gott að hafa alltaf einhvern að leika við, spila við og fara með í sund. MYND/AUÐUNN
2 dl kókosmjöl
2 ½ dl haframjöl
1 ½ dl flórsykur
2 msk. kakó
2 msk. vatn
100 g smjör
1 tsk. vanilla
Blandið saman þurrefn-
unum, bræðið smjör og
hellið út í ásamt vatni.
Hrærið vel.
Geymið deigið í ísskáp og
látið það kólna í minnst
hálftíma. Búið þá til
kúlur og veltið þeim upp
úr kókosmjöli.
Kókoskúlur sem bragð er að
Meðal þess sem gaman er að gera í eldhúsinu er kókoskúlur. Þær eru líka góðar.
KÓKOSKÚLUR Ef
þessar klárast ekki
strax er betra að
geyma þær í ísskáp.
MYND/GETTY
Uppskrift
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
9
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
6
8
-5
A
F
C
1
7
6
8
-5
9
C
0
1
7
6
8
-5
8
8
4
1
7
6
8
-5
7
4
8
2
8
0
X
4
0
0
2
B
F
B
1
0
4
s
_
2
4
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K