Fréttablaðið - 25.04.2015, Page 10

Fréttablaðið - 25.04.2015, Page 10
25. apríl 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10 Kjartan Hallgeirsson lögg. fasteignasali GSM 824 9093 kjartan@eignamidlun.is Hilmar Þór Hafsteinsson lögg. leigumiðlari lögg. fasteignasali GSM 824 9098 hilmar@eignamidlun.is Höfum fengið til leigu þetta glæsilega 4.042 fm hús sem nýlega hefur verið endurbyggt á ein- staklega glæsilegan hátt. Staðsetning er mjög góð, skammt frá miðborginni. Fallegt útsýni yfir Reykjavíkurhöfn. Stórar svalir sjávarmegin. Húsið skiptist í fjórar einingar og þar af tvær þakhæðir og býður upp á ýmiskonar notkun. Opin vinnurými. Mikil lofthæð. Góð loft ræsting. Sala fasteigna frá 588 9090 . www.eignamidlun.is . Grensásvegi 11 . 108 Reykjavík Nánari upplýsingar veita: KJARAMÁL Kjúklingabændur bjuggu sig undir yfirvofandi verkfall dýra- lækna með því að auka slátrun. Magnús Huldar Ingþórsson, fram- leiðslustjóri hjá Reykjagarði, seg- ist búast við að ástandið verði orðið slæmt á kjúklingabúum um miðja næstu viku vegna plássleysis þegar ekki fæst undanþága til slátrunar. Framleiðsluferlið er þannig að við bætast um og yfir 100 þúsund kjúk- lingar í viku hverri. Samkvæmt gögn- um Hagstofunnar komu hér á landi úr eggi að jafnaði rúmlega 427 þúsund ungar í hverjum mánuði í fyrra. Þá vaxa fuglarnir hratt og verða pláss- frekari. Hildur Traustadóttir, fram- kvæmdastjóri félaga eggja- og kjúk- lingabænda, segir stöðuna flókna, því ekki megi slátra fuglum nema að dýralæknir sé viðstaddur, hvort held- ur sé um að ræða til manneldis eða vegna grisjunar í búunum sjálfum. „Vandamálið er að fuglinn stækkar fljótt í húsinu og þá eru menn líka að brjóta lögin því ekki má hafa þá svona stóra inni. Svo eykst líka sjúkdóma- hætta gríðarlega,“ segir hún. „Þetta er bara pattstaða og engin lausn í sjónmáli.“ Hildur segir bændur hafa sótt um leyfi til undanþága til að fá að slátra en fengið synjun hingað til. Hún vonast þó til þess að undanþága fáist til að létta á hús- unum. Þá auki vanda framleiðslunnar að bændur fái ekki heldur leyfi til að flytja inn stofna sína sem komi til með að raska framleiðslunni þegar fram í sækir. „Það stendur til að flytja inn stofna og átti að flytja inn stofna í fyrstu viku maí. Og fáist ekki leyfi fyrir því þá verð- ur foreldrafuglalaust eftir svona hálft ár eða svo. Það er líka vandamál.“ Magnús H. Ingþórsson, hjá Reykja- garði, segir ljóst að framleiðsluhús hænsnabænda yfirfyllist næstu dag- ana. „Við undirbjuggum okkur hins vegar undir þetta verkfall og vorum ekki með áætlaða slátrun í byrjun þessarar viku, en ástandið fer að verða slæmt hjá okkur með tilliti til dýraverndunarsjónarmiða strax um miðja næstu viku.“ Magnús segir að framleiðendum og bændum komi á óvart að kjarabarátta dýralækna sé rekin af slíkri hörku að bitni á þriðja aðila sem ekki sé aðili að deilunni. „Að menn gangi það langt að brjóta lög og reglur sem þeir sjálfir eiga að sjá um að séu virtar,“ segir hann og vísar til þess að í gær hafi ekki enn fengist heimild frá undan- þágunefnd til slátrunar fugla. „Ég hef áhyggjur af trúverðugleika þeirra þegar þeir koma aftur til starfa.“ Ágúst Andrésson, formaður Félags sláturleyfishafa, segir verkfall dýra- lækna fyrsta kastið koma harðast niður á kjúklingaræktinni, en fram- leiðsluhraði sé einnig svo mikill í svínarækt að sú grein þoli ekki langa sláturtöf. Hins vegar sé ekki sláturtíð í sauðfé fyrr en næsta haust og nautgripir þoli betur bið en svín og kjúklingur. „Þetta bítur ekki á bændur í þeim geirum á næstunni, en þetta mun sjálfsagt bitna á neyt- endum,“ segir hann. Þess verði ekki langt að bíða þar til nautakjöt verður upp urið í versl- unum og hættir að fást á veitingastöðum. „En maður óttast það óneitanlega að þetta verkfall hafi áhrif á velferð dýranna,“ bætir Ágúst við. „Þótt menn segi að það eigi ekki að hafa áhrif, þá finnst mér menn gera lítið úr því sem gert er til að gæta að velferð dýra, ef hægt er að taka sig bara til og fara í verkfall.“ olikr@frettabladid.is Viðbótin er um 100.000 á viku Hér bætast við um 100.000 kjúklingar á viku. Þeir stækka hratt og þrengir strax að þeim tefjist slátrun. Dýra- verndarsjónarmið undir, segir framleiðslustjóri Reykjagarðs. Vilja slátra fyrir markaðinn, segja dýralæknar. Undanþágunefnd Dýralæknafélagsins hafði um miðjan dag í gær, frá því verkfall hófst á mánudag, ekki borist beiðnir um slátrun á kjúklingum á grundvelli dýraverndarsjónarmiða, segir Charlotta Oddsdóttir, dýralæknir og talsmaður félagsins. Beiðnirnar hafi snúið að því að framleiðendur hafi viljað koma fuglum sínum í sláturhús og á markað. „En við bendum á að dýraeigenda sé að tryggja velferð dýra sinna og að bændur hafi það úrræði að aflífa, til dæmis til þess að grisja í húsum sínum.“ Slíkar beiðnir hafi ekki borist, en sé grunur um að brotið sé gegn velferð dýra, þá sé rétta ferlið að tilkynna um slíkt til Matvælastofnunar, sem svo myndi óska eftir því að hægt væri að setja starfs- mann í að kanna málið. Undanþágur segir Charlotta hins vegar að hafi verið veittar, svo sem til innflutnings á brjóstamjólk fyrir fyrirbura og nýbura hér á landi. „Slíkan innflutning þarf alltaf að samþykkja. Allt sem varðar einhverja neyð er vissulega tekið alvarlega og afgreitt eins og því ber.“ Brjóstamjólkurundanþága KJÚKLINGI PAKKAÐ Vaxtarhraði kjúklinga er mikill og framleiðsla hröð. FRÉTTA- BLAÐIÐ/HARI HILDUR TRAUSTADÓTTIR ÁGÚST ANDRÉSSON MAGNÚS H. INGÞÓRSSON 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 9 F B 1 0 4 s _ P 0 9 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 6 9 -C 8 5 C 1 7 6 9 -C 7 2 0 1 7 6 9 -C 5 E 4 1 7 6 9 -C 4 A 8 2 8 0 X 4 0 0 7 A F B 1 0 4 s _ 2 4 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.