Fréttablaðið - 25.04.2015, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 25.04.2015, Blaðsíða 24
25. apríl 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 24 Það er komin einhver framvinda í reynsluna sem er auðveldara að vera í samræðu við í staðinn fyrir stóran klump af svartri þögn. Oddný Eir rithöfundur segir á opinskáan og einlægan hátt frá sinni djúpu þrá til að eignast barn og mis-heppnuðum tilraunum til að verða barnshafandi í nýrri bók sinni Blátt blóð – í leit að kátu sæði. Bókin er lítil og Oddný kallar hana rit- gerð eða esseyju. En textinn er áhrifa- ríkur, bæði nístandi sannur og heillandi hlýr. „Ég leyni því ekkert að sagan fjallar að mestu um mig og fyrrverandi ást- mann minn. En ritgerðin er líka á sviði skáldskaparins. Hún dansar þarna á milli. Við reyndum að eignast barn í átta ár en áður en við byrjuðum saman var ég farin að huga að barneignum. Mig hefur alltaf langað að eignast barn og mér fannst sjálfsagt að eignast tvö börn. Það var fyrirframgefin hugmynd.“ Erfiðleikarnir við að eignast barn lögðust ólíkt á parið. Oddný var með miklar áhyggjur af hækkandi aldri og að hennar tími myndi renna út. „Ég held að við konur, og ég í þessu tilfelli, upplifum þetta á allt annan hátt. Tíminn spilar stærri rullu og maður hefur minni þolinmæði fyrir heimspeki- legum vangaveltum um fjölskylduform- ið. Þessi ákveðni í að eignast barn verður auðveldlega að stressi og smám saman að örvæntingu. Sú örvænting er mjög ósexí og erfið. Svo er það líka oft í sam- böndum að annar tekur að sér einhverja tilfinningu og ef hún verður ráðandi hjá öðrum þá getur hinn leyft sér að vera slakari. Þannig leitar fólk að jafnvægi og vegur hvert annað upp.“ Gróf undan sambandinu Eftir árangurslausar tilraunir til að verða barnshafandi leitaði parið sér aðstoðar. Oddný fór í tækni- og glasa- frjóvganir og þau leituðu líka annars konar aðstoðar. Varstu tilbúin til að gera hvað sem er til að verða ólétt? „Nei, ekki hvað sem er. En næstum því. Það breytist nefnilega svo margt á leiðinni. Fyrst setur maður mörk og ég gat ekki hugsað mér gjafasæði, gjafaegg eða neina tæknihjálp. Svo breytist það, sem betur fer. Maður fer inn í einhvern annan veruleika og það sem skiptir máli verður skýrara fyrir manni og hitt verð- ur aukaatriði. Ég leik mér að því í þess- ari bók að skoða mörkin og alls kyns til- finningar sem vakna þegar maður er að finna sín mörk. Svo þarf maður auð- vitað líka að velta fyrir sér siðferðileg- um mörkum málsins.“ Fjöldi misheppnaðra tilrauna til að eignast barn varð að lokum til þess að sambandið liðaðist í sundur. „Sambandið snerist samt um margt annað en þetta og var almennt mjög frjósamt og ánægju- legt. Okkur tókst að láta ófrjósemina ekki smita allt með uppgjöf og þessu sem ekki heppnaðist. Það var nefnilega margt annað sem heppnaðist. En maður sér það eftir á að þetta gróf undan okkur, eins og undiralda.“ Stór klumpur af svartri þögn Oddný skrifar opinskátt um tilfinn ingar þeirra beggja og viðbrögð við barn- leysinu. Er þessi opinberun gerð í sátt við hina aðalpersónuna? „Já, annars myndi ég ekki gefa þetta út. Ég bað hann um að lesa yfir og lof- aði að ég myndi ekki gefa þetta út ef hann væri á einhvern hátt ósáttur. Þegar ég ætlaði að hætta við útgáf- una hvatti hann mig til að gefa þetta út. Maður finnur nefnilega ákveðinn létti ef maður nær að segja sögu af einhverju sem er mjög flókið, sárt og erfitt. Þetta er ekki lygasaga en samt á einhvern hátt mikil einföldun. Það er komin einhver framvinda í reynsl- una sem er auðveldara að vera í sam- ræðu við í staðinn fyrir stóran klump af svartri þögn. Ég bara vona að hann muni segja sína eigin sögu líka.“ Í undirheimum ófrjóseminnar Oddný Eir Ævarsdóttir skrifaði opinskáa bók um reynslu sína af ófrjósemi. Henni létti við að segja sögu af einhverju sem er svo flókið og sárt, og fann sátt. Í þeirri sátt sleppti hún tökunum af þránni eftir barni og varð stuttu seinna barnshafandi. FÆÐING Á NÆSTA LEITI Oddný Eir varð loksins sátt við barnleysið og varð ólétt þremur vikum síðar. Hún er heltekin af gleði og líka ótta. Ófrjó óbyrja Er ófrjósemi tabú í samfélaginu? „Já, þetta var leyndarmál í nokkur ár. Það fannst mér mjög erfitt. Eins og ég segi í sögunni þá velti ég fyrir mér hvort þetta hafi verið meira leyndar- mál því þetta var okkar sameiginlega vandamál. Ófrjósemi karla er meira tabú en ófrjósemi kvenna. Og það eru margir sem lifa með þessari sorg án þess að tala um hana. Því sorgin snýst ekki eingöngu um barnleysið heldur í mörgum tilfellum ítrekaðan fóstur- missi. Það kviknar líf og slokknar aftur. Það er ofsalegt álag. Það er aftur á móti jákvætt að nú er farið að tala meira um ófrjósemi. Þagnarhjúpnum er lyft og skömm- inni hleypt út svo fólk lokist ekki inni í þessum persónulega sársauka, í undir- heimum ófrjóseminnar. Það er merki- legt að kynnast þeim fjölmenna heimi, þar búa margir í tímabundinni eða ótímabundinni ófrjósemi. Hvert við- tal skiptir máli. Ég man að ég hám- aði í mig allar reynslusögur af ófrjó- semi. Þess vegna langaði mig að skrifa bókina. Þótt það sé hárfín lína á milli þess að deila reynslu og að kvarta. Ég vil ekki kvarta við umheiminn og vor- kenna mér. Ég hef aldrei hugsað sem svo að ég eigi skilið að eignast börn eða geti krafist þess. Vinkona mín sagði mér að undirbúa mig undir að finna fyrir biturleika, reiði og öfund þegar ég sæi allar óléttu konurnar á falleg- um sumardegi í flaksandi kjólum. Og ég þessi ó-eitthvað. Ófrjó. Óbyrja. Ég fann þessa tilfinningu einu sinni og ég varð eiginlega fegin því þá átti ég það ekki eftir á dánarbeðinum. En tilfinn- ingin fór skjótt frá mér, sem betur fer.“ Varð sátt og svo ólétt Eftir að sambandinu lauk flutti Oddný í sveit undir Eyjafjöllum og hóf að skrifa um reynslu sína. „Það er jafn- gamalt mannkyninu að játa og létta á sér með skriftum. Og það gerði ég. Það hafði mjög góð áhrif á mig því ég fann loksins þessa sátt. Ég var oft búin að þykjast vera hætt að hugsa um þetta og hélt ég væri löngu orðin sátt við barnleysið. En þarna fann ég að sáttin varð í alvöru og mér fannst ég geta dáið sátt þótt ég myndi aldrei eignast börn. Það gaf mér æðruleysi og ég ákvað að vera þakklát fyrir allt sem ég hefði og ekki einu sinni hugsa um það sem ég hefði ekki. Þremur vikum eftir þetta uppgjör mitt varð ég ólétt,“ segir Oddný hlæjandi og segir mér í kjölfarið frá manninum sem hún kynntist í sveitinni og á nú von á barni með á allra næstu dögum. „Með titlinum, Blátt blóð, er ég að leika mér að hugmyndum um aðals- blóð og furðuleg blóðblöndunarævin- týri heimsins. En líka að í lok bókar- innar finn ég minn kóng og maðurinn sem maður elskar er manns kóngur og hans blóð er manns bláa blóð.“ Galdurinn að gefast upp Oddný hefur fengið símtöl frá vinkon- um sem vilja vita hver galdurinn er, hvernig hún gat loksins orðið ólétt. „Það er mjög erfitt að svara því. Kannski að skrifa þessa bók, flytja úr stressinu í borginni út í náttúruna, hætta að vera undir álagi. Eða fá litlar tíkur á heimilið og finna gleðihormón- in flæða. Eða taka inn jurtir sem örva skjaldkirtilinn og vera með einmitt þessum manni. Ég veit það ekki. Ætli það snúist ekki um að sleppa tökun- um og gefast upp, sem er ráð sem ég hafði mörgum sinnum fengið. En ég get ómögulega ráðlagt hvernig maður gefst upp. Ég vona bara að bókin geti hjálpað þeim sem eru að eiga við þessa sorg, þótt þetta sé ekki sjálfs- hjálparbók eða bók full af einhverjum trixum. En vonandi er eitthvað í henni Þessi ákveðni í að eignast barn verður auðveldlega að stressi og smám saman að örvæntingu. Sú örvænting er mjög ósexí og erfið. 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 9 F B 1 0 4 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 6 A -4 8 B C 1 7 6 A -4 7 8 0 1 7 6 A -4 6 4 4 1 7 6 A -4 5 0 8 2 8 0 X 4 0 0 8 B F B 1 0 4 s _ 2 4 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.