Fréttablaðið - 25.04.2015, Page 35

Fréttablaðið - 25.04.2015, Page 35
Soffía Björg er ein átta systkina frá bænum Einarsnesi, rétt utan við Borgarnes. Tónlistin hefur ávallt verið ríkur þáttur á heimilinu og þessi stóri hópur kemur gjarnan saman, syngur og leikur tónlist. Móðir hennar er Björg Karitas Jónsdóttir sópransöngkona og amma er Soffía Karlsdóttir, leik- og söngkona. Faðir hennar, Óðinn Sigþórsson, grípur gjarnan í nikkuna, píanó og gítar. Þá er systir Soffíu, Kristín Birna, einnig söng- kona. Það er því óhætt að segja að þetta sé tónelsk stórfjölskylda í Borgarfirðinum. „Ég held að það sé tónlist í okkur öllum systkinunum. Það er tónelskt fólk í báðum ættum,“ segir Soffía. „Það hefur alltaf verið líf og fjör á þessum bæ.“ PLATA Í VINNSLU Soffía er 29 ára og býr heima um þessar mundir eftir tíu ára búsetu í höfuðborginni. „Ég saknaði kyrrðarinnar í sveitinni á meðan ég bjó í borginni. Núna sakna ég stundum erilsins í Reykjavík,“ segir Soffía og bætir við að þægilega stutt sé að skjótast í bæinn, enda þarf hún oft að vera á ferðinni á milli. „Ég útskrifaðist í tónsmíðum frá Listaháskóla Ís- lands síðastliðið vor. Platan sem ég er að vinna er partur af lokaverkefni mínu þar,“ segir hún. „Mér fannst sóun að setja upp tónleika fyrir útskriftina og nýta þá ekkert frekar. Þess vegna ákvað ég að vinna efnið frekar með plötu í huga. Önnur lög á plötunni hef ég verið að flytja með hljómsveit minni.“ TÓK LANGAN TÍMA AÐ STÍGA Á SVIÐ SVEITASTELPA Soffía Björg Óðinsdóttir, söngkona, laga- og textahöfundur, nýtur sín best heima í sveitinni þegar hún semur lögin sín. Fyrsta platan er væntanleg í byrjun sumars en Soffía Björg hefur undirbúið hana í heilt ár. Á UPPLEIÐ Soffía Björg er ung og hæfileikarík. Hún er bæði laga- og texta- höfundur og fyrsta platan á leiðinni. MYND/BIRTA RÁN Hátíð barnanna Lokadagar Barna- menningarhátíðar í Reykjavík eru um helgina. Síða 6 Söguganga í Hafnarfirði Páll Bjarnason arkitekt leiðir hönnunargöngu um Hafnarfjörð. Síða 4 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 9 F B 1 0 4 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 6 A -E 1 C C 1 7 6 A -E 0 9 0 1 7 6 A -D F 5 4 1 7 6 A -D E 1 8 2 8 0 X 4 0 0 3 A F B 1 0 4 s _ 2 4 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.