Fréttablaðið - 25.04.2015, Page 36

Fréttablaðið - 25.04.2015, Page 36
FÓLK| Þegar Soffía er beðin að útskýra eigin lög, svarar hún: „Þetta er þjóðlagapopptónlist en svo- lítil sveitatónlist líka. Með annarri hljómsveit, Brother Grass, hef ég leikið gömul Suðurríkjalög en sá stíll hentar mér mjög vel. Ég er svo melankólísk, lögin mín og textar eru lituð af því. Ég á annars erfitt með að skilgreina þessa tónlist en frá unga aldri hef ég alltaf litið upp til Erics Clapton. Ég var hugfangin af hljómfallinu og textunum í lögum hans. Ég held að fyrstu áhrifin séu frá honum komin. Með aldrinum hef ég farið um víðan völl í tónlistinni. Ég lærði á gítar fyrir fimm árum og hef þjálfast í gegnum lögin sem ég er að semja,“ út- skýrir Soffía Björg. TÓNELSK, FEIMIN SVEITASTÚLKA Soffía Björg er alin upp í Borgarfirði og segist vera mikil sveitastúlka. „Mér líður einstaklega vel í sveitinni. Ég var orðin mjög þreytt á leigumarkaðn- um í Reykjavík, mig langaði að skipta um umhverfi. Það var því dásamlegt að flytja aftur heim,“ segir hún. „Ég er mikil hestakona og nýt þess að vera í kringum hrossin. Fjölskyldan fór alltaf í árlega hestaferð og þá var gjarnan mikið sungið og leikið á hljóðfæri. Alltaf mikil gleði í slíkum ferðum. Ég segi oft að ég hafi alist upp á hestbaki,“ segir hún. Soffía Björg stundaði nám í fjölbrautaskólanum á Akranesi. Flutti síðan til Reykjavíkur til að vinna og kláraði skólann í fjarnámi. „Þá hóf ég nám við Söngskólann í Reykjavík hjá Dagrúnu Hjaltadóttur óperusöngkonu. Þarna fetaði ég fyrstu sporin í tón- listarnámi og var alveg skíthrædd vegna feimni. Mér hafði aldrei dottið í hug að ég færi þessa leið. Mamma hvatti mig hins vegar til að fara í söngnám til að ná úr mér feimninni. Þetta var eitthvað það erfiðasta sem ég hef gert. Ég titraði svo mikið á fyrstu prufunni að lappirnar gáfu sig bókstaflega,“ segir Soffía sem sótti síðan um inngöngu hjá FÍH og lærði þar djass- og blússöng. „Ég heillaðist mjög af blús,“ segir hún. MARGT AÐ GERAST „Síðan komst ég inn á tónsmíðabraut í Listaháskól- anum haustið 2011 undir handleiðslu Tryggva M. Baldvinssonar tónskálds. Eftir námið hef ég verið að spila og syngja með Brother Grass og við höfum haft heilmikið að gera. Ég hef meira og minna unnið við tónlist undanfarin ár og hef nýtt þekk- ingu mína til að útsetja lögin á væntanlegri plötu minni. Einnig samdi ég kórverk fyrir Dómkórinn í Reykjavík síðasta haust sem var einstaklega skemmtilegt. Það var flutt á tónlistardögum Dóm- kirkjunnar,“ segir Soffía. Síðasta sumar fór hún til New York og söng á útgáfutónleikum fyrir söngleikinn Revolution in the Elbow of Ragnar Agnarsson Furniture Painter sem var settur upp „off Broadway“. Þá lék hún sömuleiðis á Reykjavík Folk-festival. „Í fyrra kom ég fram á Aldrei fór ég suður og aftur núna sem bakraddarsöngkona með Boogie Trouble. Það var alveg gífurlega gaman, mikið dansað,“ útskýrir hún. „Núna 2. maí verð ég með tónleika í Mengi á Óðinsgötu en systir mín, Sigríður Þóra, sem er listakona verður með vídeóverk sem verður varpað á vegg staðarins. Síðar í maí kem ég fram á hátíðinni Saga-Fest á Stokkseyri.“ SPENNANDI DAGAR Soffía kom fram á barnamenningarhátíðinni í Hörpu í vikunni. Þar söng hún lög í Upptaktinum, tónsmíðakeppni krakka. „Ég fékk í hendur dásam- leg lög frá börnum og þetta var svo skemmtilegt. Um helgina ætla ég að spila fyrir hóp í Borgarfirði. Mæti með gítarinn og syng skemmtilega blöndu fyrir fólkið,“ segir hún. Soffía hefur sungið heil- mikið í heimabyggð. Brother Grass hefur til dæmis oft verið með tónleika í Landnámssetrinu. Einnig hefur hún haldið tónleika með systur sinni, Krist- ínu Birnu. Þá hafa þær komið fram á þorrablótum við góðar undirtektir. Systurnar voru sömuleiðis með tónleika á Rósenberg um síðustu jól svo þær hafa unnið talsvert saman. „Tónlistin er svo fjölbreytt að maður getur gert alls konar,“ segir Soffía. „Það er allt að gerast í tónlistinni hjá mér. Þetta er ótrúlega spennandi og ég fæ fiðring fyrir hvert einasta gigg. Ég gæti ekki hugsað mér að vinna við neitt nema tónlist þrátt fyrir að þetta sé hark og óvissa.“ Soffía Björg segir að hún sé að mestu búin að ná úr sér feimninni. „Það tók alveg nokkur ár að sættast við að standa á sviði, láta mér líða vel og njóta. Núna hlakka ég til að koma fram.“ Þegar hún er spurð hvort hún hafi ekki sungið í grunn- og framhaldsskóla, svarar hún: „Nei, Guð minn góður. Ég hefði aldrei getað gert það. Það verður allt að hafa sinn tíma. Mann langaði auðvitað alltaf að verða eins og þessar flottu söngdívur en mér fannst það óraunhæfur draumur.“ NÁTTÚRUBARN „Ég er afskaplega þakklát fyrir að hafa alist upp í sveit og sæki margt í náttúruna. Lögin mín verða til í sólskála móður minnar. Það er svo fallegt útsýni frá honum sem gefur mér innblástur. Svo er ég með vinnuaðstöðu í Borgarnesi, í nýsköp- unar- og frumkvöðlasetri sem heitir Hugheimar, og þangað fer ég oft. Ég lifi í núinu og læt hlutina hafa sinn gang. Mér finnst óþarfi að stressa sig,“ segir þessa unga söngkona. ■ elin@365.is Á TÓNLEIKUM Soffía á sviði. Það tók hana langan tíma að þora að stíga á svið vegna feimni. MYND/KRISTÍN JÓNSDÓTTIR SVEITIN Soffíu líður best í sveitinni heima. Hún er alin upp í Borgarfirði og stendur hér fyrir utan bæinn. Í NEW YORK Útgáfutónleikar í New York á síðasta ári. MYND/DAVID BURLACU HELGIN FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 Aðalfundur NLFR Aðalfundur Náttúrulækningafélags Reykjavíkur verður haldinn í Norræna húsinu þriðjudaginn 28. apríl 2015 kl. 17:00. Dagskrá: Hefðbundin aðalfundarstörf. Sérstakur gestur fundarins: Magnús Aðalsteinn Sigurðsson, sagnfræðingur flytur fróðlegt erindi um Jónas lækni og áhrifavalda hans. Léttar veitingar í boði félagsins. Stjórn NLFR Berum ábyrgð á eigin heilsu Vísir.is er hluti af NÆRANDI ÞÆTTIR Þorbjörg Hafsteins veitir góð ráð um hvernig megi efla lífsorkuna, bæta útlit og viðhalda vellíðan. Fylgstu með þessum fróðlegu örþáttum á visir.is/heilsuvisir. Heilsuvísir er vefsvæði á Vísi tileinkað heilsu, hreyfingu, hollu mataræði og kynlífi. Kíktu í heimsókn. Á NÝJU VEFSVÆÐI VÍSIS 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 9 F B 1 0 4 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 6 A -F 5 8 C 1 7 6 A -F 4 5 0 1 7 6 A -F 3 1 4 1 7 6 A -F 1 D 8 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 1 0 4 s _ 2 4 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.