Fréttablaðið - 25.04.2015, Page 40

Fréttablaðið - 25.04.2015, Page 40
FÓLK| HELGIN Barnamenningarhátíð í Reykjavík var sett á þriðjudaginn og stendur yfir til sunnudagsins 26. apríl. Mjög fjölbreytt og viðamikil dagskrá er um helgina og óhætt að segja að barna- fjölskyldur og börn á öllum aldri geti fundið margt við sitt hæfi. Hátíðin var fyrst haldin árið 2010 og átti upphaflega að vera haldin annað hvert ár. Eftir hátíðina árið 2012, sem þótti heppnast óvenjuvel, var ákveð- ið að halda hana árlega að sögn Hörpu Rutar Hilmarsdóttur og Guðmundar Birgis Halldórssonar, verkefnastjóra hátíðarinnar í ár. „Nú er hátíðin orðin ein stærsta hátíðin í viðburðalandslagi borgarinnar. Markmið hennar hefur allt- af verið að efla menningarstarf barna og ungmenna í borginni og er hátíðin því kærkominn vettvangur fyrir menningu barna, menningu með börnum og menn- ingu fyrir börn. Í fyrra mættu rúmlega 42.000 gestir og tæplega 11.000 börn komu fram á hátíðinni,“ segir Harpa. Barnamenningarhátíðin er þátttöku- hátíð líkt og Menningarnótt og Vetrar- hátíð þar sem stofnanir og einstaklingar sem tengjast eða einfaldlega hafa áhuga á barnamenningu eru hvattir til þátt- töku. „Viðburðalandslag hátíðarinnar mótast af þátttakendum hennar sem eru meðal annars leik- og grunnskólar, frístundamiðstöðvar, dans-, myndlistar- og tónlistarskólar, menningar- og lista- stofnanir, sjálfstætt starfandi listhópar og listamenn, félagasamtök ýmiss konar sem og fjölmargir aðrir. Með því að skoða dagskrá hátíðarinnar má sjá að barnamenningu er ekkert óviðkomandi. Hún fléttast inn í öll svið samfélagsins allt frá listum til skipulags, frá gagnrýn- inni hugsun til leikja og (ó)láta,“ bætir Guðmundur við. Ókeypis er inn á alla viðburði helgarinnar. EITTHVAÐ FYRIR ALLA Fjölbreytt dagskrá er í boði í dag og á morgun um alla borg að sögn þeirra beggja. „Iðnó verður breytt í ævin- týrahöll þar sem má finna yfir fimmtíu smiðjur og sýningar af öllum stærðum og gerðum, meðal annars tónleika, dans- og leiksýningar og smiðjur á borð við legósmiðju, sirkussmiðju og brúðu- gerðarsmiðju.“ Í dag verður fjölskyldudiskó í Ævin- týrahöllinni í Iðnó þar sem frænkurnar Ragnheiður Eyja Ólafsdóttir (8 ára) og Margrét Erla Maack (31 ára) stýra fjölskyldudiskói. „Þar verður gleðin svo sannarlega við völd á dansgólfinu. Frænkurnar munu stýra ýmiss konar dansi, t.d. Bollywood og limbó.“ Bruninn mikli í Reykjavík árið 1915 verður viðfangsefni áhugaverðrar sýn- ingar sem haldin er í Ráðhúsinu í dag. „Þar gefst gestum kostur á að fræðast um atburði þessarar örlagaríku nætur þegar stór hluti miðbæjar Reykjavík- ur brann til grunna á einni nóttu. Á sýningunni verður einnig hægt að sjá gamla muni frá Slökkviliði höfuðborg- arsvæðisins auk þess sem hægt verður að skoða gamla og nýja slökkviliðsbíla við Austurvöll milli klukkan 13.00 og 17.00.“ Eins og undanfarin ár verður loka- hátíðin haldin í Laugardalslaug á sunnudegi. „Hún ber heitið Bullumsull en þar munu fjörugir tónar munu flæða um sundlaugarbakkana og skemmtilegir gestir gleðja unga sem aldna. Ofurhug- arnir í BMX BROS munu sýna listir sínar og hægt er að busla í vaðlauginni, taka salíbunu í vatnsrennibrautinni, hring á mínígolfbrautinni, prufa leiktækin og glíma við kolkrabbann!“ Fjölmargir aðrir viðburðir verða um helgina en dagskrána má nálgast á www.barnamenningarhatid.is. Nýjar fréttir má einnig finna á Facebook og Twitter (@barnamenning). VEISLA FRAM UNDAN HÁTÍÐ BARNANNA Lokadagar Barnamenningarhátíðar í Reykjavík eru um helgina. Fjölbreytt dagskrá er víða um borg og er ókeypis inn á alla viðburði. ÖLD SÍÐAN Bruninn mikli í Reykjavík árið 1915 verður við- fangsefni áhugaverðrar sýningar. MYND/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR FJÖLBREYTNI Mörg dansatriði og danssmiðjur eru í boði á hátíðinni. MYND/RAGNAR TH. SIGURÐSSON LITAGLEÐI Nemendur hvers grunn- skóla klæddust sama lit svo úr varð veisla fyrir augun. MYND/RAGNAR TH. SIGURÐSSON HÁTÍÐ Í BORG Harpa Rut Hilmarsdóttir og Guðmundur Birgir Halldórsson eru verkefnastjórar Barnamenningarhátíðarinnar í Reykjavík. MYND/ERNIR #BYLGJANBYLGJAN989 HLUSTAÐU HVAR SEM ER, HVENÆR SEM ER SIGURJÓN M. EGILSSON OG ÞJÓÐMÁLIN Í BEINNI SPRENGISANDUR ER Í LOFTINU MILLI KL. 10:00 - 12:00SUNNUDAG 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 9 F B 1 0 4 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 6 B -4 9 7 C 1 7 6 B -4 8 4 0 1 7 6 B -4 7 0 4 1 7 6 B -4 5 C 8 2 8 0 X 4 0 0 5 A F B 1 0 4 s _ 2 4 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.