Fréttablaðið - 25.04.2015, Qupperneq 66
FÓLK|HELGIN
Níunda plata hljómsveitarinnar Pink Floyd, Wish You Were Here, er talin ein besta plata rokksögunnar
og hefur selst í yfir fimmtán milljónum
eintaka. Platan kom út á því herrans ári
1975 og er því fjörutíu ára í ár. Af því til-
efni mun hljómsveitin Dúndurfréttir halda
veglega tónlistarveislu í Eldborgarsal
Hörpu í kvöld klukkan níu og flytja verkið
í heild sinni ásamt mörgum bestu lögum
Pink Floyd.
„Þegar við stofnuðum Dúndurfréttir
árið 1995 þá var fyrsta lagið sem fluttum
á tónleikum einmitt fyrsta lag Wish You
Were Here, Shine on You Crazy Diamond,
þannig að við erum búnir að spila hluta
af þessu verki í tuttugu ár og því kominn
tími á að taka það í heild sinni,“ segir
Matthías Matthíasson, söngvari Dúndur-
frétta.
Hann segir Wish You Were Here vera
persónulega og flotta plötu sem fjalli að
mörgu leyti um Syd Barret, aðalsprautu
hljómsveitarinnar, en hann hafði hætt í
hljómsveitinni nokkrum árum áður vegna
andlegra veikinda. „Lagið Shine on You
Crazy Diamond er lag annarra hljóm-
sveitarmeðlima Pink Floyd til Syd Barrets.
Wish You Were Here er með vinsælli lög-
um rokksögunnar og platan er talin með
allra bestu plötum rokksögunnar. Pink
Floyd voru einstakir í því að gera plötur
sem eru heildstæð verk og þess vegna er
svo gaman að flytja verkin þeirra í heild.“
EFTIRMINNILEGIR OG EPÍSKIR
Wish You Were Here hefur hlotið ýmsar
viðurkenningar og er til dæmis á lista
Rolling Stone yfir 500 bestu plötur allra
tíma. Bæði Richard Wright, hljómborðs-
leikari Pink Floyd, og David Gilmour
gítarleikari hafa sagt að Wish You Were
Here sé uppáhalds Pink Floyd-platan
þeirra.
Matti segir tónleikagesti í kvöld geta bú-
ist við eftirminnilegum og epískum tónleik-
um. „Við héldum þessa tónleika í Hofi fyrst
fyrir tveimur vikum. Við vorum smá stress-
aðir yfir því að þetta væri ekki allra því við
erum svolítið að brynna nördunum. Fyrsta
lagið er til dæmis 23 mínútur,“ segir hann
og hlær.
Dúndurfréttir hafa með sér í kvöld þrjár
frábærar bakraddasöngkonur, þær Ölmu
Rut, Írisi Hólm og Guðrúnu Árnýju. Eins
verða þeir Haraldur V. Sveinbjörnsson og
Steinar Sigurðarson saxófónleikari með í
för til að gera þessa tónleika sem flottasta.
Þar sem Wish You Were Here er aðeins um
45 mínútur mun þessi stórgóði tónlistar-
hópur taka ýmis vel valin lög og tónverk
eftir snillingana í Pink Floyd fyrir hlé. Því
má ætla að lög af The Wall, Dark Side of
the Moon og fleiri plötum Pink Floyd muni
hljóma í Eldborg í kvöld.
Matti segir að eftir hlé verði allt verkið
Wish You Were Here flutt í heild og svo
verði endað á flugeldasýningu í lokin. „Fólk
má búast við að verða vitni að bæði tón-
listarlegri og sjónrænni veislu. Við munum
sýna myndbönd allan tímann sem eru
búin til í kringum tónlistina og skapar það
aukin hughrif. Pink Floyd voru þekktir fyrir
mikil ljósasjó, leisera og vídjósýningar á
tónleikum sínum og við ætlum að halda í
það. Fólk á að geta komið og gjörsamlega
gleymt sér í tvo og hálfan klukkutíma í
kvöld. Þetta verða ekki beint stuðtónleikar
en allir ættu að geta hrifist með, þetta
snýst ekki um hvort fólk elskar Pink Floyd
heldur erum við að búa til heim geðshrær-
ingar, hláturs og gráts,“ segir Matti.
HLJÓÐRÆN OG SJÓNRÆN VEISLA
DÚNDURFRÉTTIR Í ELDBORG Meistarastykki hljómsveitarinnar Pink Floyd, Wish You Were Here, er fjörutíu ára í ár. Í tilefni af
tímamótunum mun hljómsveitin Dúndurfréttir taka verkið eins og henni einni er lagið í Hörpu í kvöld.
WISH YOU WERE HERE Plötuumslag meistara-
stykkis Pink Floyd, Wish You Were Here, sem er
fjörutíu ára í ár.
EFTIRMINNILEGT KVÖLD MEÐ MATTA Matti segir alla eiga að geta hrifist með á tónleikunum í kvöld, þeir
verði algjör veisla. Þeir sem vilja sjá og upplifa Pink Floyd í flutningi Dúndurfrétta í öllu sínu veldi geta keypt
miða á harpa.is og í síma 528 50 50.
12 vænar gulrætur
handfylli ferskt timjan,
dill eða ferskt krydd að
eigin vali
¼ bolli ólífuolía
sjávarsalt
Kljúfið hverja gulrót í tvennt
eða fernt (fer eftir þykkt).
Ef gulræturnar eru nýupp-
teknar og lífrænar er fallegt
að halda þeim heilum.
Dreifið úr gulrótunum
á pappírsklædda ofnplötu.
Dreypið ólífuolíu yfir og
stráið ferskum kryddjurtum
og salti jafnt yfir. Bakið við
220 gráður í 20-25 mínútur
eða þar til gulræturnar eru
orðnar gullinbrúnar.
SUMARLEGT OG
SÆTT UNDIR TÖNN
Ristaðar gulrætur eru úrvals meðlæti og passa vel
með hvers kyns grillkjöti. Við baksturinn verða
þær sætar en sjávarsaltið og fersku kryddjurtirnar
vega skemmtilega upp á móti.
● TÓNLEIKAR
Karlakór Kjalnesinga heldur vor-
tónleika í Norðurljósasal Hörpu í
dag klukkan 16. Á efnisskránni eru
sígild karlakóralög í bland við létt-
ara efni.
Andrea Gylfadóttir mun syngja
nokkur lög með kórnum við
undirleik hljómsveitar. Rúsínan í
pylsuendanum verður flutningur á
Todmobile-lögum ásamt kórnum.
Lögin voru útsett sérstaklega fyrir
kórinn af Kjartani Valdemarssyni.
Kórstjóri er Örlygur Atli
Guðmundsson.
KARLAKÓR KJALNESINGA
SYNGUR LÖG TODMOBILE
w
w
w
.s
up
er
be
et
s.
is
-
v
it
ex
.is
Rauðrófu kristall
Betra blóðflæði - Betri heilsa
Superbeets Nitric Oxide allt að 5 sinnum öflugra
1. dós superbeets jafngildir 30 flöskum af 500 ml rauðrófusafa
Nitric Oxide
Nóbelsverðlaun 1998
Sameind ársins 1992
Uppgötvun á Nitric Oxide
var upphafið á framleiðslu
rislyfja
Eftir fertugt
framleiðir líkaminn
50% minna Nitric Oxide
Fæst í flestum apótekum og heilsubúðum
Upplýsingar í síma
896 6949 og www.vitex.is
Fæst í flestum apótekum og heilsubúðum
NÝTT
w
w
w
.z
en
be
v.
is
-
U
m
bo
ð:
v
it
ex
e
hf
Betri og dýpri
svefn
Engin eftirköst eða ávanabinding
Melatónin
Upplýsingar í síma 896 6949 og www.vitex.is
úr graskersfræjum
ZenBev - náttúrulegt Triptófan
Vísindaleg sönnun á virkni
sjá vitex.is
Tvær bragðtegundir
sítrónu og súkkulaði
Melatónín er talið minnka líkur
á blöðruhálskirtilskrabbameini
sjá vitex.is
Breyting nítrats úr fæðu í Nitric Oxide
byrjar í munni, þess vegna er
SuperBeets tekið inn í vökvaformi,
en ekki töfluformi.
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
9
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
6
B
-6
7
1
C
1
7
6
B
-6
5
E
0
1
7
6
B
-6
4
A
4
1
7
6
B
-6
3
6
8
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
1
0
4
s
_
2
4
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K