Fréttablaðið - 25.04.2015, Page 80

Fréttablaðið - 25.04.2015, Page 80
25. apríl 2015 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 44 Fjörutíu ár eru liðin frá stofnun Hesta- mannafélagsins Feykis í Norður- Þingeyjasýslu. Starfssvæði þess er í Kelduhverfi, Öxarfirði, Núpasveit og Melrakkasléttu og meðlimir félagsins eru um 70 talsins og starfsemin nokk- uð viðburðarík. „Við gerum ýmislegt skemmtilegt,“ segir Úlfhildur Ída Helgadóttir, frá- farandi formaður félagsins, en skipt var um stjórn um síðastliðna helgi. „Ég var formaður í tvö ár og hef verið með- limur nánast frá fæðingu. Pabbi minn var mjög öflugur í starfinu og ég smit- aðist af honum.“ Úlfhildur segir að félagið haldi nokkrar árlegar uppákomur. „Árið byrjar á folaldasýningu hjá okkur. Hún er yfirleitt haldin í janúar eða febrúar. Það er fín afsökun fyrir því að hittast, fá sér súpu og bjór. Við höldum einnig gjarnan námskeið fyrir félagsmenn og fáum þá kennara annars staðar frá og yfirleitt höldum við hestamannamót ár hvert í júní eða júlí.“ Úlfhildur segir mótin skemmtileg og að fólk komi víða að. „Við fáum Akureyringa og Húsvíkinga til okkar. Stundum kemur fólk frá Þórshöfn á Langanesi.“ Auk hestamannamótsins segir Úlf- hildur að félagsferðirnar séu hvað vin- sælastar. „Við förum í þær yfirleitt í ágúst. Þá hittast félagarnir, ríða út, grilla og hafa gaman.“ Félagið sendir einnig keppendur á Landsmót hestamanna. „Við fáum að senda einn keppanda í hvern flokk. Við erum svo lítið félag,“ segir Úlfhildur kát í bragði. Félagið Feykir fertugt Fjörutíu ár eru liðin frá stofnun Hestamannafélagsins Feykis í Norður-Þingeyjasýslu. Það fer í félagsferðir og heldur árlegt hestamannamót þar sem stemningin er góð. BRUGÐIÐ Á LEIK Hér hafa aktygi verið lögð á einn skjóttan til að ferðast í vagni. Í ÚTREIÐARTÚR „Félagarnir hittast, ríða út, grilla og hafa gaman,” segir Úlfhildur Ída. MYNDIR AF HEIMASÍÐU FEYKIS Árið byrjar á folalda- sýningu hjá okkur. Hún er yfirleitt haldin í janúar eða febrúar. Það er fín afsökun fyrir því að hittast, fá sér súpu og bjór. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, INGA SIGURJÓNSDÓTTIR Stórahjalla 33, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi þann 21. apríl. Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík þann 30. apríl nk. Fyrir hönd aðstandenda, Eiríkur L. Ögmundsson Alfreð Erlingsson Birna Bragadóttir Sæunn Kalmann Erlingsdóttir Ragnar G.D. Hermannsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR Þórðarsveig 3, áður Borgarnesi, lést þriðjudaginn 21. apríl. Útför hennar fer fram frá Guðríðarkirkju miðvikudaginn 29. apríl kl. 13. Hallur Björnsson Sigurbjörn, Mjöll, Hafþór, Ágústa, Ingþór, Louise, Laufey, Betúel og barnabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEINÞÓR BJARNI INGIMARSSON bóndi og bifvélavirki, Miðhúsum, Innri-Akraneshrepp, andaðist á Sjúkrahúsi Akraness 18. apríl. Útförin fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 30. apríl kl. 14. Nína Ólafsdóttir Ingimar Kristján, Guðný Jódís, Sólveig, Rannveig, Bóthildur og fjölskyldur. Ástkær móðir okkar, RAGNA ÞORGERÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR lést á hjúkrunarheimilinu Eir sumardaginn fyrsta, þann 23. apríl. Útförin verður auglýst síðar. Ragnheiður Ármannsdóttir Sigríður Ármannsdóttir Sigurður Ármannsson Kristján Ármannsson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRHALLUR HALLDÓRSSON Árskógum 6, Reykjavík, lést sumardaginn fyrsta 23. apríl. Sigrún Sturludóttir Steinunn Þórhallsdóttir Auður Þórhallsdóttir Siggeir Siggeirsson Sóley Halla Þórhallsdóttir Kristján Pálsson Inga Lára Þórhallsdóttir Elvar Bæringsson Björg Þórhallsdóttir Gunnbjörn Ólafsson Bryndís Þórhallsdóttir Vilbergur Stefánsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, MARÍA FRIÐRIKSDÓTTIR Sólvöllum 13, Selfossi, lést á hjúkrunarheimilinu Eir að morgni þriðjudagsins 21. apríl. Útförin auglýst síðar. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Hafþór Magnússon Sólveig Höskuldsdóttir Einar Baldvin Sveinsson Jóna Sólmundsdóttir Guðný María Hauksdóttir Kristín Fjóla Bergþórsdóttir Guðmundur Örn Böðvarsson og barnabörnin öll. „Á svona hátíðartónleikum finnst okkur við hæfi að fara í sparifötin og við ætlum að klæðast glæsilegum, nýjum kórkjólum sem hannaðir voru af Snæ- dísi Guðmundsdóttur hjá Dís,“ segir Sigríður Þyrí Skúladóttir, formaður Kvennakórs Hafnarfjarðar. Kórinn heldur tvenna tónleika nú á vordögum og fagnar um leið tuttugu ára starfs- afmæli á þessu ári. Fyrri tónleikarnir verða í Hamars- sal Flensborgarskólans í Hafnarfirði á morgun, 26. apríl, og hefjast klukkan 16 en þeir síðari verða í Fella- og Hóla- kirkju laugardaginn 2. maí og hefjast klukkan 15. „Við ætlum að líta yfir farinn veg og rifja upp fjölmörg falleg lög frá liðn- um árum, lög sem hafa öðlast sérstak- an sess í hjörtum okkur kórkvenna á tuttugu ára starfsævi kórsins. Einnig ætlum við að frumflytja lag Þóru Mar- teinsdóttur við ljóð eftir Örn Árnason. Það var samið sérstaklega fyrir kórinn í tilefni afmælisins,“ upplýsir Sigríður Þyrí. Tveir hafnfirskir listamenn, þau Margrét Eir og Páll Rósinkrans, syngja með kórnum á tónleikunum en hljóð- færaleikarar verða Antonía Hevesi á píanó, Jón Rafnsson á kontrabassa og Kristrún Helga Björnsdóttir á flautu. Stjórnandi kórsins er Erna Guðmunds- dóttir. Sigríður Þyrí tekur fram að tónleikagestum verði boðið að þiggja afmæliskaffi og konfekt í hléinu. Miðar eru seldir í forsölu á 2.500 krónur hjá kórkonum. Miðaverð við inn- ganginn er 3.000 krónur en frítt er fyrir börn yngri en 12 ára. gun@frettabladid.is Í sparifötin á afmælistónleikum Kvennakór Hafnarfj arðar er tvítugur og á tónleikum á morgun ætla kórkonur að líta yfi r farinn veg og rifj a upp falleg lög sem öðlast hafa sess í hjörtum þeirra. KVENNAKÓR HAFNARFJARÐAR Þessi mynd er tekin á jólatónleikum og hér eru kórkonur ekki komnar í nýju kjólana. 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 9 F B 1 0 4 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 6 A -4 8 B C 1 7 6 A -4 7 8 0 1 7 6 A -4 6 4 4 1 7 6 A -4 5 0 8 2 8 0 X 4 0 0 8 B F B 1 0 4 s _ 2 4 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.