Fréttablaðið - 25.04.2015, Síða 96

Fréttablaðið - 25.04.2015, Síða 96
25. apríl 2015 LAUGARDAGUR| SPORT | 60 Mér fannst ég ekki vera tilbúin að fara út átján ára. Ég vildi fyrst fara annað og taka síðan stóra skrefið. Katrín Ásbjörnsdóttir. visir.is Meira um leiki gærkvöldsins Gengið síðustu sex tímabil | 2009 10. sæti (B-deild) | 2010 1. sæti (B) | 2011 12. sæti | 2012 6. sæti (B) | 2013 2. sæti (B) | 2014 4. sæti ● Íslandsmeistari 5 (síðast 1991) ● Bikarmeistari 1 (1971) PEPSI DEILDIN 2015 Hefst 3. maí 1. SÆTI ? 2. SÆTI ? 3. SÆTI ? 4. SÆTI ? 5. SÆTI ? 6. SÆTI ? Spá Fréttablaðsins 7. Víkingur 8. Keflavík 9. Fjölnir 10. ÍA 11. ÍBV 12. Leiknir EINKUNNASPJALDIÐ VÖRNIN ★★★★★ SÓKNIN ★★★ ★★ ÞJÁLFARINN ★★★★★ BREIDDIN ★★★ ★★ LIÐSSTYRKURINN ★★★★★ HEFÐIN ★ ★ ★ ★★ VÍKINGUR HAFNAR Í 7. SÆTI ➜ Binni bjartsýni ➜ Nýju andlitin Víkingi er spáð sjöunda sæti en það er þremur sætum lægra en liðið endaði síðustu leiktíð. Víkingar komu liða mest á óvart í fyrra og nældu sér í Evrópusæti í fyrsta sinn í 23 ár. Ólafur Þórðar- son þjálfar Víking þriðja árið í röð, en nú hefur Serbinn Milos Milojevic fengið stöðuhækkun og er orðinn samþjálfari Ólafs. Sam- starf þeirra hefur skilað Víkingum miklu síðustu ár. Miðjumaðurinn Igor Taskovic tók Pepsi-deildina síðasta sumar með trukki og dýfu og var einn besti leikmaður deildarinnar. Hann er algjör lykilmaður í Víkingsliðinu; fyrirliði þess og leiðtogi. Taskovic les leikinn ótrúlega vel, brýtur niður sóknir and- stæðinganna og ber upp boltann fyrir liðið. Igor er mikil- vægasti leikmaður Víkingsliðsins. Það missa öll góð íslensk lið sína bestu menn. Það er ekkert nýtt. Þótt margir leikmenn séu komnir var hópurinn klár þokkalega snemma og hefur liðið getað spilað á sínu sterkasta lengi. Andri R. Bjarnason BÍ/Bol. Atli Fannar Jónsson ÍBV Denis Cardaklija Fram Finnur Ólafsson Fylkir Hallgrímur Mar Steingr. KA Haukur Baldvinsson Fram Milos Zivkovic Serbíu Rolf Toft Stjarnan Stefán Þór Pálsson Breiðabl. Thomas Nielsen AaB Tómas Ingi Urbancic á láni Viktor B. Arnarsson Fram ➜ Siggi svartsýni Þetta er ekki sama liðið og náði í Evrópusæti í fyrra. Lið sem fá tólf leikmenn og missa tíu gera ekkert af viti eins og hefur sann- ast. Of mikil uppbygging í gangi. ➜ Lykilmaðurinn í sumar ÆTLAÐI ALLTAF ÚT Katrín Ásbjörnsdóttir hefur farið vel af stað í atvinnu- mennskunni í Noregi. Hér er hún með Þór/KA í bikarúrslitaleiknum gegn Breiða bliki sumarið 2013. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FÓTBOLTI Í gær var dregið í undan úrslit í Meistaradeild Evrópu. Real Madrid spilar við Juventus og Barcelona mætir Bayern München. Seinni rimman er ívið áhuga- verðari og verða leikirnir sér- staklega skemmtilegir fyrir þjálfara Bayern, Pep Guardiola, sem þjálfaði Barcelona áður en hann fór til Bayern. „Ég naut mikillar velgengni hjá Barcelona en ég er afar ánægður hjá Bayern. Þetta er í góðu lagi mín vegna. Barcelona er auð vitað besta liðið sem er eftir,“ sagði Guardiola auðmjúkur. „Það verður afar sérstakt. Ég mun aldrei gleyma þessum tveimur leikjum.“ - hbg Barcelona er besta liðið PEP GUARDIOLA SPORT FÓTBOLTI Knattspyrnukonan Katrín Ásbjörnsdóttir opnaði marka reikninginn sinn í norsku úrvalsdeildinni um síðustu helgi og lið hennar, Klepp, er með fullt hús á toppnum eftir þrjár fyrstu umferðirnar. „Þetta er ágæt byrjun og bara eins og við vildum. Það er fínt að vera með níu stig eftir þrjá leiki,“ segir Katrín en hún skoraði sitt fyrsta mark í sigrinum á Trond- heims-Örn á sunnudaginn var. „Ég opnaði markareikninginn loksins. Ég var farin að hafa svo- litlar áhyggjur því ég var ekkert búin að skora í æfingaleikjunum og var orðin svolítið pirruð á því. Svo loksins kom þetta í síðasta leik og það var smá léttir. Vonandi held ég bara áfram og þetta er alls ekki síðasta markið,“ segir Katrín sem steig stóra skrefið í vetur. „Þetta er miklu erfiðara, finnst mér, og það er meira tempó hérna. Maður fær ekki eins mikinn tíma með boltann og heima. Það er samt frábært fyrir mig sem knatt- spyrnukonu og það er líka gaman að prufa eitthvað nýtt og erfiðara. Það er fínt að komast hingað út og vonandi kemst ég meira inn í landsliðið með þessu skrefi,“ segir Katrín. Katrín er ekki eini Íslendingur- inn í liðinu því Jón Páll Pálmason þjálfar liðið og þá spilar hin norsk- íslenska María Þórisdóttir einnig með henni. „Ég veit að okkur var spáð níunda sætinu og það hafa ekki margir trú á okkur. Mér finnst gaman að sýna fólki hvað við getum. Mér finnst við vera með mjög gott lið þegar við eigum góðan dag. Við erum með marka- skorara í hverri einustu stöðu og allar geta skorað hjá okkur hvort sem það eru miðverðirnir eða bak- verðirnir.“ „Það er samkeppni alls staðar og þetta er góður hópur þar sem allar standa saman,“ segir Katrín. Katrín varð Íslandsmeistari með Þór/KA sumarið 2012 og skoraði alls 23 mörk í 42 deildar- leikjum með norðanliðinu. „Það gekk mjög vel fyrir norðan. Ég var þarna í þrjú ár og fyrsta árið gekk langbest þegar við urðum Íslands- meistarar. Ég átti góða tíma þar en það var bara milliskref. Ég ætlaði mér alltaf að fara út,“ segir Katrín og bætir við: „Mér fannst ég ekki vera tilbúin að fara út átján ára gömul. Ég vildi því fyrst fara annað og taka síðan stóra skrefið,“ segir Katrín. Hún er ekki þó ekki bara í fót- boltanum. „Ég er í fjarnámi við Háskólann á Akureyri í hjúkrunar- fræði. Ég læri þetta í gegnum netið. Það er líf eftir fótboltann og maður verður að mennta sig,“ segir Katrín. Meiðsli hafa sett mikinn svip á feril Katrínar og oft komið í veg fyrir að hún gæti nýtt sér kall í landsliðið. „Öll meiðslin hafa styrkt mig en ég var næstum því búin að gef- ast upp á tímabili. Þegar ég komst ekki með landsliðinu í lokakeppn- ina 2013 þá hugsaði ég hingað og ekki lengra,“ segir Katrín en hún hélt þó áfram. „Ég þurfti þá að taka á mínum málum en þetta eru aðallega hné- meiðsli. Ég er búin að vera að vinna í því mjög mikið í vetur. Ég tók mér alveg pásu í fótbolta fram í janúar. Ég einbeitti mér þess í stað að því að styrkja mig. Vonandi nýt- ist það bara en ég er búin að vera heil,“ segir Katrín. Klepp er við Stavanger en þar spilar Íslendingaliðið Viking í karladeildinni. „Viking-liðið er með fjóra Íslendinga í liðinu. Við erum mikl- ir félagar þeirra og höfum verið að grilla með þeim og svona,“ segir Katrín og hún kvartar ekki undan heimavellinum. „Við spilum á nýju gervigrasi sem kom í fyrra, annars voru þær á grasvelli áður. Mér finnst þetta gervigras algjör snilld. Það er fínt að æfa á svona nýju gervigrasi og mér finnst það eiginlega betra heldur en moldugt gras,“ segir Katrín og veðrið er heldur ekki að spilla fyrir. „Er ekki frost heima? Hérna eru tuttugu gráður. Ég var bara að stikna í síðasta leik. Sumarið er komið hér,“ sagði Katrín hlæjandi að lokum. ooj@frettabladid.is Var farin að hafa áhyggjur Atvinnumennskan byrjar vel hjá Katrínu Ásbjörnsdóttur í Noregi en lið hennar, Klepp, hefur komið mörgum á óvart í upphafi tímabilsins með því að vinna þrjá fyrstu leiki sína. FÓTBOLTI Fulltrúar KSÍ og 365 miðl- ar hf. undirrituðu í gær stærsta samning sem gerður hefur verið um sýningarrétt frá íslenskum knattspyrnumótum í sjónvarpi. Samningurinn tryggir að sýnt verði frá efstu deild, bikarkeppni, Meistara keppni KSÍ og deildar- bikar – bæði í karla- og kvenna- flokki – yfir sex tímabil frá 2016 til 2021. Samningurinn tryggir íslensk- um félögum hátt í milljarð króna yfir samningstímann en um stór- aukningu er að ræða fyrir þau að sögn Geirs Þorsteinssonar, for- manns KSÍ. „Þetta rennir styrkum stoðum undir afreksstarf félaganna. Þetta er líka mikil viðurkenning því við höfum aldrei fengið slíkar upp- hæðir áður,“ sagði Geir. Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri 365, segir að það sé skynsamlegt að fjárfesta í íslenskri knattspyrnu. „Alveg klárlega. Íslenskur fót- bolti er á mikilli uppleið og við vilj- um njóta góðs af því að taka þátt í þeirri uppsveiflu.“ Meðal þess sem nýi samningur- inn gerir ráð fyrir er sá möguleiki 365 að sýna beint frá öllum 132 leikjunum í efstu deild karla. „Það er eitt af því sem við erum að skoða vel hvort við eigum að nýta okkur,“ sagði Sævar. „Við viljum gjarnan efla umfjöllun um íslenska knattspyrnu eins mikið og mögulegt er.“ Geir segir að það myndi breyta miklu fyrir félögin sjálf, sem og stuðningsmenn þeirra, að hafa alla leiki sína í beinni sjónvarps- útsendingu. „Það mun breyta miklu, ekki síst varðandi sýnileika og verð- mæti deildarinnar. Það er mikið markaðsstarf innan félaganna og skiptir þau gríðarlega miklu máli að þeirra leikir séu sýnilegir í sjónvarpi,“ segir formaður Knatt- spyrnusambandsins. - esá Nýr samningur færir íslenskum félögum milljarð króna 365 miðlar hf. og Knattspyrnusamband Íslands undirrituðu í gær samning um sýningarrétt frá mótum á vegum KSÍ frá 2016 til 2021. TÍMAMÓT Geir Þorsteinsson og Sævar Freyr Þráinsson handsala samkomulagið. Til vinstri er Ásgeir Ásgeirsson, formaður Íslensks toppfótbolta, og til hægri Hörður Magnússon frá Stöð 2 Sport. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR ÚRSLIT DOMINO‘S-DEILD KVENNA LOKAÚRSLIT, 2. LEIKUR KEFLAVÍK - SNÆFELL 76-85 Keflavík: Carmen Tyson-Thomas 43/11 fráköst/7 stolnir, Sara Rún Hinriksdóttir 16/10 fráköst, Bryndís Guðmundsdóttir 9/7 fráköst, Sandra Lind Þrastardóttir 6, Hallveig Jónsdóttir 2. Snæfell: Kristen Denise McCarthy 43/11 fráköst/5 stoðsendingar/5 stolnir, Hildur Sigurðardóttir 17/13 fráköst, Gunnhildur Gunnarsdóttir 9/7 fráköst, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 5, Alda Leif Jónsdóttir 5/6 fráköst/6 stoðsendingar, María Björnsdóttir 4, Berglind Gunnarsdóttir 2. Staðan í einvíginu er 2-0 fyrir Snæfell. NÆSTI LEIKUR Snæfell - Keflavík mán. kl. 19.15 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 9 F B 1 0 4 s _ P 0 9 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 6 9 -F 9 B C 1 7 6 9 -F 8 8 0 1 7 6 9 -F 7 4 4 1 7 6 9 -F 6 0 8 2 8 0 X 4 0 0 7 B F B 1 0 4 s _ 2 4 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.