Læknablaðið - 01.11.2015, Qupperneq 3
LÆKNAblaðið 2015/101 503
læknablaðið
the icelandic medical journal
www.laeknabladid.is
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Engilbert Sigurðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Gerður Gröndal
Hannes Hrafnkelsson
Magnús Gottfreðsson
Sigurbergur Kárason
Tómas Guðbjartsson
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
Tölfræðilegur ráðgjafi
Thor Aspelund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður og
ljósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Sigdís Þóra Sigþórsdóttir
sigdis@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1800
Áskrift
12.900,- m. vsk.
Lausasala
1290,- m. vsk.
Prentun, bókband
og pökkun
Prenttækni ehf.
Vesturvör 11
200 Kópavogi
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta
og geyma efni blaðsins á rafrænu
formi, svo sem á netinu. Blað þetta má
eigi afrita með neinum hætti, hvorki að
hluta né í heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru
skráðar (höfundar, greinarheiti og
útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna:
Medline (National Library of Medicine),
Science Citation Index (SciSearch),
Journal Citation Reports/Science
Edition, Scopus og Hirsluna, gagna-
grunn Landspítala.
The scientific contents of the Icelandic
Medical Journal are indexed and abst-
racted in Medline (National Library
of Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation Reports/
Science Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
Á forsíðu blaðsins að þessu sinni er vefverk eftir Örnu
Óttarsdóttur (f. 1986) frá árinu 2013, Stelputeppi. Verkið
sýnir teikningabrot úr skissubók Örnu þar sem krotað er
yfir myndina og fyrir neðan má lesa „nei, nei“. Við gerð
verksins kviknuðu frekari hugmyndir
um yfirfærslu hálfkaraðs krots yfir í
margslunginn myndvefnað og hefur
listakonan unnið að nokkrum slíkum
verkum undanfarið. Þess utan hefur
Arna fengist við ýmsa aðra list-
miðla. Við gerð veggteppanna hefur
hugmyndin viðkomu á milli skissu-
bókar og vefnaðar í tölvuforriti þar
sem uppröðun og úrvinnsla á sér
stað. Þar er átt við heildarmyndina
eins og sjá má í stórum, aflituðum
skellum sem koma fram við klippi-
vinnu eða útstrokun á tölvuskjá.
Þessu er öllu haldið til haga í
endanlegri útfærslu. Þegar heildar-
myndin er fullgerð sem skissa í
tölvu hefst Arna síðan handa við að
vefa. Í grunninn notar hún íslenska ull sem ofin er saman
við sænska bómull. Hún notar allajafna fíngerðan þráð
og fyrir vikið verður veggteppið létt og hálfgagnsætt. Þá
hefur hún komist upp á lag með að lita ullarbandið og
ná þannig fram hinni fölleitu litapallettu. Verkin eru ekki
unnin í vefstól heldur í frístandandi ramma en þar gildir
sama hugsun, samspil á lóðréttum og láréttum ásum.
Í myndvefnaði sínum reynir Arna stöðugt að ögra þeirri
grunnreglu með því að velja
inn misflóknar myndir með
skálínum, spírölum og hring-
formum. Hún leikur sér að því
að draga fram hversdagslega
þætti úr starfi listamanna
sem yfirleitt eru máðir út áður
en listaverk lítur endanlega
dagsins ljós. Brottkastinu,
skissubókum og Photoshop-
skjölum, er gert hátt undir
höfði. Samsuða þessi verður
síðan efniviður í verkum sem
hún er langtímum saman
að fullklára. Þetta misræmi
myndar forvitnilega spennu í
verkunum sem og togstreitan
á milli hefðbundins handverks
og hugmyndafræðilegra aðferða samtímalistar. Nú á
vetrarmánuðum má sjá sýningu Örnu Óttarsdóttur á
veggteppum í i8 gallerí á Tryggvagötu.
Markús Þór andrésson
L I S T A M A Ð U R M Á N A Ð A R I N S
Hildibrandur Bjarnason bóndi og
safnstjóri hákarlasafnsins í Bjarnar-
höfn á Snæfellsnesi tók glaðbeittur
á móti fundarmönnum aðalfundar
LÍ sem haldinn var í Stykkishólmi
1.-2. október síðastliðinn. Hildi-
brandur og hans fólk hefur komið
upp myndarlegri aðstöðu í stórum
skála til að taka á móti ferða-
mönnum sem vilja fræðast um
hákarlaveiðar við Íslandsstrendur
fyrr og nú og verkun hákarlsins er
skýrð í máli og myndum, og útlist-
uð öll þau not sem forfeður okkar
höfðu af skepnunni. Hildibrandur
fór á kostum í frásögnum sínum af
hákarlaveiðum og sagði það lítinn
hákarl sem ekki næði einu tonni að
þyngd, hákarlaveiðar væru þó með
öllu aflagðar við Ísland og hann
fengi sitt hráefni af grænlenskum
togurum þar sem hákarlinn kæmi
sem meðafli með öðrum fiski.
Sýnikennsla Hildibrands hvernig
konur gætu notað skráppjötlu sem
áhrifaríka vörn gegn fjölþreifnum
karlmönnum vakti ómælda kátínu
þó ólíklegt sé að þar megi finna
viðskiptatækifæri á nútímavísu.
Gestum var boðið upp á bæði skyr-
Hákarl og brennivín í Bjarnarhöfn
og glerhákarl, harðfisk og hákarlalýsi fyrir þá sem það vildu
og einnig selspik og svo var öllu skolað niður með staupi af
íslensku brennivíni (í boði Læknafélagsins). Hildibrandur sagði
hákarlalýsi mun betra viðbit með harðfiski en smér en tókst þó
ekki að sannfæra neinn viðstaddan um ágæti hugmyndarinnar.
Eftir skemmtilega viðdvöl var svo haldið til baka þar sem beið
framreiddur nútímakvöldverður á Hótel Stykkishólmi.
ábendingar1
Pradaxa®(dabigatran)
5
NÝ
IS
-P
R
A-
14
-0
1-
30
, A
U
G
14
Meðferð hjá
fullorðnum við segamyndun í
djúplægum bláæðum og(DVT)
til fyrirbyggjandi meðferðar við
endurtekinni segamyndun í
djúplægum bláæðum
Meðferð hjá
fullorðnum við lungnasegareki
og til fyrirbyggjandi(PE)
meðferðar við endurteknu
lungnasegareki
Forvörn
gegn bláæðasegareki (VTE)
hjá fullorðnum sjúklingum sem
hafa gengist undir valfrjáls
mjaðmarliðskipti
Forvörn
gegn bláæðasegareki (VTE)
hjá fullorðnum sjúklingum sem
hafa gengist undir valfrjáls
hnéliðskipti
Fyrirbyggjandi
meðferð gegn heilaslagi og
segareki í slagæðum hjá fullorðnum
sjúklingum með gáttatif sem ekki
tengist hjartalokum, ásamt einum
eða fleiri áhættuþáttum*
Varðandi heimild og nánari upplýsingar er vísað í stytta samantekt á eiginleikum lyfsins á bls. XX
* Til að mynda að hafa áður fengið heilaslag eða tímabundna blóðþurrð í heila (transient
ischaemic attack, TIA); aldur 75 ára; hjartabilun (NYHA (New York Heart Association)≥
�okkur II); sykursýki; háþrýstingur.≥