Læknablaðið - 01.11.2015, Page 21
LÆKNAblaðið 2015/101 521
Tölfræðiúrvinnsla
Þegar unnið var úr gögnum eftir íhlutunartímabil voru þær
kröfur gerðar varðandi gönguþjálfunina að þátttakandi þurfti að
hafa gengið að minnsta kosti 20 mínútur tvo daga í viku alla rann-
sóknina svo hægt væri að nýta niðurstöður við úrvinnslu gagna.
Varðandi líkamsræktarþjálfunina þurfti þátttakandi að hafa mætt
að minnsta kosti tvö skipti í viku og vera alla vega 20 mínútur
í hvert skipti svo hægt væri að nýta niðurstöður við úrvinnslu
gagna. Gerð var krafa um 80% mætingu á alla fræðslufyrirlestra.
Við úrvinnslu gagna var notað tölfræðiforritið SPSS 17.0 (Stat-
istical Package for the Social Sciences). Við greiningu gagna var
notað parað t-próf fyrir mælingar innan sama hóps, þar sem for-
senda um normaldreifingu gagna var til staðar (Shapiro-Wilk ś).22
Meðaltöl og staðalfrávik voru reiknuð. Marktækni var miðuð við
5% marktektarmörk (p<0,05). Áhrifastærð var reiknuð með Cohen ś
d á eftirfarandi hátt fyrir endurteknar mælingar: Áhrifastærð =
Meðaltalsmunur/((staðalfráviki 1 + staðalfrávik 2)/2).23
Tekin voru sex einstaklingsviðtöl. Viðtölin voru hljóðrituð, tóku
á bilinu 25 til 52 mínútur og voru opin og óstöðluð. Notast var við
viðtalsherbergi sem kunnugt var þátttakendum. Við greiningu og
úrvinnslu viðtala var unnið eftir skýru verklagi og rannsóknarað-
ferð Vancouver-skólans í fyrirbærafræði.21
Niðurstöður
Niðurstöður úr greiningarviðtalinu PANSS má sjá í töflu I. Þar
kemur fram að þátttakendur skoruðu lægra hvað viðkemur nei-
kvæðum einkennum t(10) = 2,68, p<0,05 og almennum geðrænum
einkennum t(10) = 3,46, p<0,05 eftir 20 vikna íhlutun. Ekki varð
breyting á jákvæðum einkennum. Í töflu I má sjá að hvíldarpúls
þátttakenda lækkaði að meðaltali um 7 slög á mínútu t(13) =
5,06, p<0,05 yfir íhlutunartímabilið. Ekki urðu breytingar á þyngd,
efri eða neðri mörkum blóðþrýstings, mittisummáli né líkams-
þyngdarstuðli yfir rannsóknartímabilið.
Heildarniðurstöður úr kvörðum sem lagðir voru fyrir í upp-
hafi og lok íhlutunar má sjá í töflu I. Það dró úr þunglyndi t(12) =
2,79, p<0,05 og kvíða t(12) = 2,34, p<0,05 og jákvæð breyting varð á
þeim þremur hlutum CORE-OM-kvarðans sem notast var við, líðan
t(13) = 2,46, p<0,05, vandamál t(13) = 3,02, p<0,05 og virkni t(13) =
3,95 p<0,05. Þar að auki jukust lífsgæði, t(13) = 4,40, p<0,05 eftir
íhlutunina en engar breytingar urðu á sjálfstrausti (RSES), vonleysi
(Becks) né streitu (DASS).
Hreyfing þátttakenda jókst eftir því sem leið á rannsóknina
eins og sjá má á mynd 1. Í fyrstu vikunni hreyfði hver þátttakandi
sig í að meðaltali 39 mínútur, eða um 14 mínútur þrisvar sinnum
í viku. Í lok rannsóknar hreyfði hver þátttakandi sig að meðaltali
133 mínutur á viku eða um 44 mínútur þrisvar sinnum í viku.
Dæmi um svör sem komu fram í einstaklingsviðtölum má sjá í
töflu II. Í viðtölunum lýstu þátttakendur betri stjórn á jákvæðum
einkennum geðklofa eins og að hafa betri stjórn á hugsunum og
að eiga auðveldara með að leiða hjá sér ofskynjanir. Þar kom fram
að þátttakendur voru almennt mjög ánægðir með íhlutunina,
þeim fannst gaman að hreyfa sig og fundu mikinn mun á sér bæði
andlega og líkamlega. Hreyfingin hafði góð áhrif þar sem þátt-
takendum fannst auðveldara að umgangast annað fólk, að sjálf-
traust þeirra yxi og að drægi úr kvíða og þunglyndi.
Umræða
Niðurstöður sýna heilsufarslegan ávinning að lokinni 20 vikna
íhlutun hjá sjúklingum með geðklofa. Breytingar til batnaðar urðu
á neikvæðum einkennum geðklofa, þunglyndi, kvíða, streitu og
Tafla I. Meðaltöl (staðalfrávik) á mælingum fyrir og eftir íhlutun.
Mælitæki Fyrir Eftir Áhrifastærð
(Cohen´s d)
P-gildi
Þyngd (kg) 90,9 (27,9) 89,8 (25,7) 0,1 0,301
Líkamsþyngdarstuðull
(kg/m²)
28,7 (23,4) 28,3 (22,1) 0,1 0,420
Mittisummál (cm) 98,5 (19,1) 97,1 (16,9) 0,2 0,225
Blóðþrýstingur
Efri mörk (mmHg) 131,4 (19,0) 126,6 (9,1) 0,3 0,235
Neðri mörk (mmHg) 82,6 (16,3) 83,9 (15,5) 0,1 0,710
Hvíldarpúls (slög á mín) 90,3 (15,8) 82,8 (12,0) 0,5* 0,001
PANSS
jákvæð einkenni 11,7 (3,7) 10,8 (3 ,6) 0,2 0,064
Neikvæð einkenni 19,2 (3,5) 17,7 (4,1) 0,4* 0,023
Alm. geðræn einkenni 45,5 (8,1) 42,2 (7,8) 0,4* 0,006
dASS
Þunglyndi 14,7 (11,2) 5,3 (7,3) 0,8* 0,016
kvíði 12,0 (10,7) 6,2 (4,6) 0,5* 0,037
Streita 10,5 (9,4) 7,5 (5,9) 0,3 0,060
CoRE-oM
Virkni 32,7 (3,7) 25,6 (4,1) 1,9* 0,029
Líðan 10,0 (2,0) 7,6 (2,6) 1,3* 0,020
Vandamál 23,6 (6,0) 17,2 (3,8) 1,1* 0,010
QoLS 50,0 (4,7) 56,8 (4,7) 1,4* 0,001
Rosenberg 23,5 (5,6) 25,7 (2,8) 0,4 0,090
BHS 9,9 (2,0) 9,0 (1,6) 0,4 0,385
Gildi: Meðaltal (staðalfrávik), *p<0,05
dASS: depression, Anxiety, Stress Scale; CoRE-oM: The Clinical outcomes in Routine
Evaluation outcome Measure; QoLS: Quality of Life Scale; Rosenberg: Rosenberg Self-
Esteem Scale; BHS: Beck Hopelessness Scale. PANSS: Positive and Negative Syndrome
Scale.
Mynd 1. Meðaltal og staðalfrávik fyrir vikulega hreyfingu þátttakenda yfir íhlutunar-
tímabilið.
R A N N S Ó K N