Læknablaðið - 01.11.2015, Síða 40
&
Victoza (líraglútíð)
leiðir til allt að:1
1,5%
lækkunar á HbA1c
frá 8,4 % HbA1c til 6,9 % HbA1c
3,7 kg
þyngdartaps
Magi
Victoza seinkar
magatæmingu og
veitir því aukna
mettunartilnningu. 2,3
Briskirtill
Victoza virkjar
betafrumurnar sem
losa insúlín þegar
blóðsykur er hár. 2,3
Lifur
Victoza hamlar
seytingu glúkagons
og dregur úr útskilnaði
glúkósa frá lifur. 2,3
Matarlyst
Victoza dregur úr
matarlyst, sem leiðir til
minnkaðrar fæðuneyslu. 2
líraglútíð
Sykursýki tegund 2
IS
/L
R/
04
14
/0
17
9
540 LÆKNAblaðið 2015/101
Allir geta verið sammála um að lyfja
ávísanir verða að vera eins öruggar og
frekast er unnt. Á árum áður voru allir
lyfseðlar skrifaðir á pappír, síðan komu
símaávísanir, ávísanir með símbréfum og
ávísanir gegnum tölvukerfi eða á netinu.
Öll þessi kerfi hafa sína kosti og galla en
nú er stefnt að því að innan tíðar verði all
ar lyfjaávísanir rafrænar sem er talin vera
öruggasta og hagkvæmasta aðferðin. Allir
læknar hafa á einn eða annan hátt aðgang
að rafrænu lyfjaávísanakerfi þannig að
þetta markmið er raunhæft. Svipað má
segja um afhendingu lyfja í lyfjabúð eða
skömmtun í heimahús, gegn framvísun
skilríkja, sem teljast nægjanlega öruggar
aðferðir. Stöðugt fleiri læknar nota lyfja
gagnagrunn landlæknis en í september
2015 nýttu 867 læknar grunninn í starfi
sínu, í september 2014 var fjöldinn 412.
Ljóst er að aðgengi lækna að lyfjagagna
grunni hefur aukið öryggi ávísana og bætt
starfsumhverfi lækna en fleira þarf að
koma til.
Samskipti læknis og sjúklings
Áður hefur verið fjallað í þessum pistlum
um vandamál með sjálfvirkni í lyfjaávís-
unum sem oftast stafa af því að sambandi
læknis og sjúklings er ábótavant. Á vefsíð-
unni heilsuvera.is geta sjúklingar sjálfir séð
hvaða lyf þeir hafa verið að fá og hvað þeir
eiga óafgreitt en þannig geta þeir iðulega
sloppið við að leita til læknis að óþörfu.
Á sama hátt getur læknirinn séð hvað
viðkomandi sjúklingur er að fá af lyfjum,
frá sér og öðrum læknum, og hvað hann
á óafgreitt (sjá eldri pistla um það efni).
Allt þetta eykur öryggi og bætir samskipti
læknis og sjúklings. Stöðugt fleiri heilsu-
gæslustöðvar bjóða uppá endurnýjun lyf-
seðla með tengingu gegnum „heilsuveru“
og verða það að teljast örugg samskipti.
Stofnun og endurnýjun lyfseðla í gegnum
síma er ekki eins örugg aðferð nema ef
læknirinn talar við sjúklinginn sjálfan og
þekkir röddina. Sumir læknar eiga sam-
skipti við sjúklinga með tölvupósti sem er
sæmilega örugg aðferð.
Gallar á kerfinu og fyrirbyggjandi aðgerðir
Engin samskiptakerfi eru gallalaus og
þekktur er fjöldi tilvika þar sem beitt hef-
ur verið blekkingum eða fölsunum til að
útvega lyf, og þá er venjulega um að ræða
ávanabindandi lyf. Læknar þurfa að vera
sérstaklega varkárir þegar um er að ræða
ávísanir á ávanabindandi lyf, bæði nýjar
ávísanir og endurnýjun eldri ávísana.
Þegar um slík lyf er að ræða ættu læknar
helst ekki að fela öðrum heilbrigðisstarfs-
mönnum að taka við beiðnum heldur gera
það sjálfir.
Þekkt eru allmörg dæmi um að ein
staklingur með fíknivanda hringi í lækni
og villi á sér heimildir eða þykist vera
aðstandandi tiltekins sjúklings. Síðan
er beðið um lyfjaávísun sem þessi ein
staklingur leysir út í lyfjabúð. Dæmi eru
um að slíkar falsanir hafi viðgengist
mánuðum saman án þess að upp kæmist
og þær komast ekki endilega upp nema
fyrir einskæra tilviljun. Þetta undir
strikar að þegar um ávanabindandi lyf
er að ræða þurfa læknar að vera á verði
gagnvart einstaklingum sem reyna að
blekkja þá. Góð regla er að skrifa ekki
út ávanabindandi lyf í fyrsta skipti án
þess að hitta sjúkling. Önnur regla er að
hitta reglulega þá sjúklinga sem fá miklu
ávísað og fara yfir stöðuna. Þó læknar séu
komnir með aðgang að lyfjagagnagrunni
vantar enn upp á að þeir hafi heildarsýn.
Þannig hefur borið á því að læknar séu
skráðir fyrir vélskömmtun án þess að þeir
viti af því. Stutt er síðan vélskömmtun fór
að berast í nýja lyfjagagnagrunninn en nú
geta læknar séð skammtanir og í gáttinni
má sjá nafn þess læknis sem stendur fyrir
skömmtuninni. Telji læknir nauðsynlegt
að breyta skömmtun eða fella hana niður
getur hann fengið upplýsingar hjá Emb
ætti landlæknis um hvaðan skömmtun er
afgreidd (nafn skömmtunarfyrirtækis).
Samskipti læknis og Embættis landlæknis
Samskipti lækna við Embættið fara að
mestu fram bréfleiðis, með tölvupóstum
eða í gegnum síma. Mikið af þessum sam-
skiptum snúast um lyfjaávísanir. Bréf
með persónuupplýsingum eru, öryggisins
vegna, send í ábyrgðarpósti. Þessi bréf eru
send á heimili viðkomandi læknis vegna
þess að landlæknir hefur ekki aðgang að
skrá yfir starfsstöðvar lækna og þar að
auki verður að telja það öruggara vegna
minni hættu á að bréfið sé opnað af öðr-
um en lækninum sjálfum. Æskilegt væri
að koma á samskiptum milli lækna og
Embættis landlæknis sem væru þægilegri
og ódýrari en engu að síður örugg; það
mál er í skoðun.
Öryggi lyfjaávísana
Magnús Jóhannsson
læknir
magnus@landlaeknir.is
Ólafur b. Einarsson
sérfræðingur
lárus S. Guðmundsson
lyfjafræðingur
F R Á E M b æ T T i l a n D l æ k n i S 1 1 . p i s t i l l