Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2009, Blaðsíða 10
10 miðvikudagur 22. júlí 2009 fréttir
Inflúensan A(H1N1) eða svínaflensa hefur greinst í 15 Íslendingum. 140 þúsund manns hafa smitast á heims-
vísu sem er mun minna en þegar hefðbundin inflúensa geisar. Flensan hefur enn ekki náð mikilli útbreiðslu
en Haraldur Briem sóttvarnalæknir segir að í versta falli gætu 25 prósent þjóðarinnar sýkst. DV hefur tekið
saman helstu einkenni, smitleiðir og aðrar upplýsingar um hina nýju inflúensu. Hreinlæti á borð við hand-
þvott er lykilatriði til að forðast smit.
Inflúensan A(H1N1), í daglegu tali
kölluð svínaflensa, hefur orðið 781
manneskju að bana í heiminum öll-
um. Samkvæmt nýjustu tölum Sótt-
varnastofnunar Evrópusambands-
ins hafa 139.566 staðfest tilfelli verið
greind á heimsvísu. Af þessum tölum
má sjá að tvö hundruð af hverjum
hundrað þúsund láta lífið.
Þegar þetta er skrifað hafa 15
greinst með svínaflensu á Íslandi.
Fyrsti Íslendingurinn greindist með
flensuna 23. maí, eftir að hafa verið á
ferðalagi í útlöndum.
800 gætu látist
Haraldur Briem sóttvarnalæknir
sagði í síðustu viku að miðað við allra
svörtustu spá gætu 25 prósent lands-
manna smitast af flensunni á tólf
vikna tímabili og dánartíðni gæti orð-
ið eitt prósent. Miðað við það gætu
liðlega 80 þúsund Íslendingar smit-
ast og 800 gætu þá látið lífið. Ítrekað
skal að þetta er miðað við allra verstu
hugsanlegu útkomu. Áhættumatið er
miðað við spænsku veikina sem varð
hátt í 500 Íslendingum að bana árin
1918 og 1919, auk 50 milljóna manna
á heimsvísu.
„Ef við gerum ekkert eins og var
gert árið 1918 vitum við hverjar af-
leiðingarnar yrðu. En við ætlum nú
að gera heilmikið þannig að ef við
fengjum eitthvað jafnsvakalegt og
spænsku veikina erum við að tala
um að við munum lækka sýkingar-
tíðnina úr 50 prósentum í 25 prósent
og lækka dánartíðnina meðal sjúk-
dómstilfella úr þremur prósentum
niður í eitt prósent,“ sagði Haraldur í
samtali við DV.
Mikilvægt er að taka fram að árleg
inflúensa veldur alvarlegum veikind-
um hjá um þremur til fimm milljón-
um einstaklinga og dregur 250 til 500
þúsund manns til dauða árlega.
Þvoið hendurnar
Ýmislegt er hægt að gera til að draga
úr hættunni á smiti. Samkvæmt upp-
lýsingum á vef Landlæknisembætt-
isins benda rannsóknir til þess að
miklu máli skipti að þvo sér reglulega
um hendurnar. Það getur dregið úr
sýkingum manna á milli. Hendurn-
ar skulu þvegnar með vatni og sápu
auk þess sem þær skulu þerraðar á
eftir. Þá má bera handspritt á hend-
urnar en það dregur einnig úr líkum
á smiti.
Mikilvægt er, þegar inflúensur
ganga, að hnerra eða hósta í einnota
pappírsþurrku og hreinsa hendur
strax á eftir í stað þess að hnerra út
í loftið. Þá er mikilvægt að halda sig
í að minnsta kosti metra fjarlægð
frá þeim sem eru með einkenni in-
flúensu, ef unnt er. Ráðlagt er einn-
ig að halda kyrru fyrir heima á með-
an veikindi standa yfir og í allt að sjö
daga eftir að veikindi hefjast. Þannig
er hægt að draga úr líkum á að smita
vinnufélaga og samferðamenn.
Sömu smitleiðir
Þótt hin svokallaða svínaflensa sé
ný gerð af inflúensuveiru er talið að
smitleiðir hennar séu þær sömu og
eldri gerða af inflúensuveirum. Hún
smitast með dropum og úða sem
berast frá sýktum einstaklingum með
hósta og hnerra, samkvæmt upp-
lýsingum af vef Landslæknisemb-
ættisins. „Veirurnar berast út í loftið
og falla síðan niður í umhverfi hins
sýkta og geta borist þaðan á hendur
annars einstaklings og valdið smiti ef
viðkomandi snertir slímhúð í munni,
nefi eða augum án þess að hafa þveg-
ið sér um hendur eða sprittað hend-
urnar eftir snertingu við mengað yf-
irborð. Þeir sem smitast af veirunni
eru taldir geta smitað aðra í allt að
einn sólarhring áður en einkenni
byrja og í allt að sjö daga eftir upphaf
veikindanna,“ segir þar enn fremur.
Sýkingarvarnir á heimilum
Inflúensa smitast auðveldlega
milli manna á heimilum. Hlífðar-
búnaður kemur sjaldnast í veg fyr-
ir það. Þess vegna er ekki mælt með
því að heimilisfólk noti hlífðarbún-
að ef veikur einstaklingur er á heim-
ilinu. Hins vegar má draga úr líkum á
smiti með því að þvo hendur reglu-
lega með sápu og/eða spritti, tak-
marka samneyti við hinn veika, til
dæmis með því að halda sig í hæfi-
legri fjarlægð eða vera ekki í sama
herbergi. Þá getur hjálpað að hafa
góða loftræstingu (opna glugga), sér-
staklega í sameiginlegum rýmum
eins og baðherbergi og eldhúsi. Það
getur borgað sig að þrífa vel sameig-
inleg rými og staði sem allir á heim-
ilinu snerta; borðplötur, handföng,
hurðarhúna og þess háttar. Forðast
ber beina snertingu við líkamsvessa
eins og slím úr öndunarvegi, hægðir,
uppköst eða blóð.
Þeir sem annast hinn veika ættu
að takmarka samskipti sín við aðra
eins og unnt er, á meðan veikindin
standa yfir. Ekki er mælt með fyrir-
byggjandi notkun veirulyfja.
Grímur falskt öryggi
Þær myndir, sem birst hafa í fjöl-
miðlum frá útlöndum, í tengslum
við svínaflensuna, sýna gjarnan að
fólk ber klúta eða andlitsgrímur fyr-
ir vit sín. Á vef Landlæknisembætt-
isins segir að andlitsgrímur komi að
notum í heilbrigðisþjónustunni, þar
sem þekking á réttri notkun þeirra er
fyrir hendi. Hins vegar hafi ekki verið
sýnt fram á nokkurn árangur af notk-
un þeirra meðal almennings. „Grím-
urnar geta gefið falskt öryggi og jafn-
vel hugsanlega aukið líkur á smiti
ef þær eru notaðar of lengi og/eða
komið er við þær með höndunum,“
segir á síðunni. Þar segir auk þess að
erfitt geti verið að þola andlitsgrímur
í lengri tíma við veikindi. Langtíma-
notkun sé ekki ráðleg.
Smitast ekki af svínakjöti
Þótt A(H1N1) sé kölluð svínaflensa
er ekki hægt að smitast af flensunni
af svínakjöti eða afurðum af svínum.
„Inflúensuveiran smitast ekki með
því að borða rétt meðhöndlað svína-
kjöt, sem er eldað á réttan hátt, né
heldur með öðrum afurðum svína-
kjöts. Ekki liggja fyrir nein vísindaleg
gögn sem benda til þess að menn geti
smitast af svínakjöti við neyslu þess
eða svínaafurða,“ segir á vefnum.
Þar segir einnig að dæmigerð
svínainflúensa sé ekki sjúkdómur í
mönnum heldur bráð veirusýking
í öndunarfærum svína sem orsak-
ist af öðrum inflúensuveirustofni en
nýja inflúensan sem við glímum við
nú. „Dánartíðnin er lág í svínum og
þau ná sér oftast innan 7 til 10 daga.
Sýkingar af völdum inflúensuveirna
með uppruna í svínum koma einn-
ig fyrir í villtum fuglum, hestum og
mönnum, en smit á milli tegunda er
talið sjaldséð.“
EinkEnni:
n Hiti
n Hálssærindi
n Hósti
n Hnerri
n Beinverkir
n Höfuðverkur
n Uppköst/niðurgangur (38% tilfella)
Hendurnar skulu
þvegnar með vatni og
sápu auk þess sem þær
skulu þerraðar á eftir.
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Flensan berst með dropum eða úða Mikilvægt er að bera pappírsþurrkur fyrir
vitin þegar hinn veiki þarf að hnerra eða hósta.
Gagnlitlar grímur „Grímurnar geta gefið
falskt öryggi og jafnvel hugsanlega aukið
líkur á smiti ef þær eru notaðar of lengi.“
Svona forðaStu SvínaflEnSuna