Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2009, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2009, Blaðsíða 30
Miðvikudagur 22. júlí 200930 Hafðu samband í síma 515-5555 eða sendu tölvupóst á askrift@dv.is - inn í hlýjuna Fáðu DV heim í áskrift H ild ur H lín Jó ns dó tt ir / h ild ur @ dv .is vestfirðir Í náttúruparadísinni í Reykjanesi við Ísa-fjarðardjúp er rekið myndarlegt hót-el sem opið er allt árið og rúmar um 120 manns í uppbúnum rúmum. Fjölbreyttir möguleikar eru fyrir fólk að finna sér eitthvað skemmtilegt að gera. Sundlaug hefur verið á staðnum í 185 ár og nú er nýbúið að gera upp fimmtíu metra langa laug sem þjónað hefur í 85 ár. Sundkennsla hafði farið fram í Reykja- nesi í um hundrað ár áður en núverandi laug var byggð. AuknAr vinsældir „Það gengur vel hjá okkur og vinsældir hótels- ins aukast ár frá ári. Svo er mikið af fólki sem kemur og gistir á tjaldstæðinu hjá okkur og nú er verið að taka í notkun nýja aðstöðu fyrir þá sem vilja gista á eigin vegum hérna. Nýja tjald- svæðið mun rúma 60–80 tjöld og hátt í fimmtíu húsvagna og hjólhýsi með rafmagni og því sem til þarf,“ segir Jón Heiðar Guðjónsson, hótel- stjóri í Reykjanesi. Hann segir sundlaugina hafa ótrúlegt að- dráttarafl sem og hina einstöku náttúrufegurð og fjölbreytt dýralíf. Fólki finnist gaman að sjá selinn fylla fjörurnar í kring og umhverfið bjóði upp á margbreytilega möguleika á afþreyingu. „Fólk hefur komið hingað í stað þess að fara til útlanda þetta sumarið og notið hér laugar- innar og sólar, enda er þetta allt undir sömu sól, hér og í útlöndum. Hér kemur fólk líka til að leika sér í sjónum. Kajakamenn koma hér oft á ári og eru með námskeið og ævintýra- ferðir, leika sér hér á fjörðunum og ekki síður í briminu, fyrir nýliðana er oft byrjað á fyrstu áratogunum í sundlauginni, þar sem æfðar eru velturnar og rétt viðbrögð ef eitthvað klikkar.“ kAfArAr og kórAlAr Auk þess að kajakamenn finni sporti sínu stað í Reykjanesinu er þarna hrein dásemd fyrir kafara sem sækja mikið á svæðið, kóralar eru skammt undan ströndinni þar sem neðan- sjávarhverir eru, mörg gömul skipsflök sem áhugavert er að kafa niður að auk þess sem landslag sjávarbotnsins er mjög fjölbreytt. Í fjörunni neðan hótelsins eru kóralar sem hægt er að skoða á fjöru og sjórinn volgur af hverum í fjöruborðinu. Til að mæta þörfum kafara hef- ur hótelið komið sér upp búnaði til að hlaða súrefniskúta þeirra og gnægð er af heitu vatni og aðstöðu til að hreinsa og þurrka búninga að lokinni köfun. veiðipArAdís „Við reynum að mæta þörfum þeirra sem koma hingað og hjálpa þeim að njóta þeirr- ar paradísar sem hér er. Göngufólk finnur hér skemmtilegar leiðir með sérstökum klettabelt- um án þess þó að þurfa að fara í fjallgöngu, fuglalíf er mjög fjölbreytt og margir sem koma hingað eingöngu til að skoða fugla. Hrefnur og stærri hvalir sjást hér á Djúpinu og svo má ekki gleyma konungi fuglanna, haferninum, sem hér er mjög sýnilegur. Vatnaveiði er mikil hérna í nágrenninu og fólk getur fengið leyfi hér hjá okkur. Berjatínslufólk kemur mikið hingað síð- sumars enda miklar lendur bæði kræki- og að- albláberja hér. Fuglaveiðimenn finna sér bráð hérna, hvort heldur er lundi, rjúpa eða gæs- in. Sjóstangaveiði er hér skammt undan landi með gjöfulum miðum og fallegu umhverfi. Svo er hér kjörlendi fyrir vélsleðamenn að leika sér á vetrum,“ segir athafnamaðurinn í þessari af- þreyingarparadís vestur í Ísafjarðardjúpi. GS n Reykjanes við Ísafjarðardjúp er sannkölluð nátt- úruperla þar sem er að finna 85 ára gamla sundlaug. Í kring eru frábærar gönguleiðir og veiðiparadís. sundlAug í 185 ár Hótelið Einnig er nýtt tjaldsvæði á staðnum fyrir 60 til 80 manns. Mynd Gretar Þór SæÞórSSon Jón Heiðar GuðJónSSon, Hótel- StJóri í reykJaneSi Rekur hótel fyrir 120 manns í uppbúnum rúmum. 85 ára GöMul SundlauG Sundlaug hefur verið á staðnum í 185 ár.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.