Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2009, Blaðsíða 21
vestfirðir Miðvikudagur 22. júlí 2009 21
A llt byrjaði þetta með að pabbi hafði safnað göml-um munum frá því í barn-æsku, fyrst í stað var þetta
allt heima hjá okkur en á tíunda
áratug liðinnar aldar var ráðist í að
byggja yfir safnið og með því gera
það aðgengilegt öllum sem leið eiga
um sveitina,“ segir Rakel Valgeirs-
dóttir þjóðfræðingur, safnstjóri í
safna- og handverkshúsinu Kört í
Árneshreppi á Ströndum.
Undir leiðsögn verður fólki ekki
skotaskuld úr að setja sig inn í hina
gríðarlega erfiðu lífsbaráttu sem fólk
háði á fyrri tímum í afskekktri sveit
út við ysta haf, hvernig nýta þurfti
allt sem landið og hafið buðu upp á.
Sjá má listaverk gerð úr hráefni fjör-
unnar þar sem viður og steinar frá
fjarlægum heimshlutum leika stórt
hlutverk í menningarlífi sveitarinn-
ar enda hefur hafísinn borið margt
forvitnilegt á strendur og svo hafa
skógarhöggsmenn í Síberíu verið
óþreytandi að sjá fólki fyrir rekaviði
sem nýst hefur meðal annars í skip
og hús í gegnum aldir. Á tíu ára af-
mæli safnsins var húsið orðið allt
of lítið og því ráðist í að liðlega tvö-
falda húsakostinn og enn var efnið
sótt í fjöruna þannig að safnahúsið
er heimasmíðað bjálkahús og í raun
safngripur út af fyrir sig.
Það eru hjónin Valgeir Bene-
diktsson og Hrefna Þorvaldsdóttir,
ábúendur í Árnesi, sem eiga safnið
en Rakel dóttir þeirra er þar safn-
stjóri og tekur á móti sívaxandi
fjölda gesta, mest ber á íslensk-
um ferðalöngum. Hún segir ferða-
mannatímann lítillega vera að teygj-
ast fram á sumarið frá því sem áður
var. Safnið er opið alla daga á sumr-
um en vetrargestir geta bankað upp
á og fengið leiðsögn um liðna tíð og
og samtímann.
„Auk safnsins seljum við hand-
verk eftir fólk hér á svæðinu sem
unnið er í stein, rekavið, silfurmuni
og margt fleira. Svæðið býður upp
á svo mikið hráefni í listmuni, fjar-
an er óþrjótandi uppspretta eins og
fjöllin hér þar sem finnst jaspis og
margt fleira sem heillar í skart.“
Safnahúsið er umvafið einhverri
mestu náttúrufegurð sem finnst,
stórbrotnir og fjölbreyttir kletta-
drangar skreyta hæstu fjöll og fjöru-
borð. Óhætt er að segja að sveitin
sé í mikilfenglegum ramma nátt-
úrunnar þar sem ný undur birtast í
hverju skrefi.
GS
minnisvarði um
harða lífsbaráttu
n Safnið Kört í Árneshreppi byrjaði í
heimahúsi á síðustu öld.
Rakel ValgeiRsdóttiR
Þjóðfræðingur og safnstjóri
við þjóðminjasafn þeirra
Árneshreppsbúa, Kört í
Árnesi á Ströndum.
Ferðafólk!
Verið velkomin
til Súðavíkur
Sjáumst í Súðavík!
www.sudavik.is