Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2009, Qupperneq 4
Sandkorn
n Jónas Kristjánsson bloggari,
fyrrverandi ritstjóri DV, hefur
tekið slaginn með Sigmundi
Erni Rúnarssyni alþingis-
manni í nauðum hans. „Tek
einn drukkinn þingmann, sem
fer með rök,
fram yfir tíu
þingmenn,
sem flissa
og skríkja
eins og
skólapíkur“.
Þetta þykir
drengskap-
arbragð af
Jónasi sem
á sínum tíma var rekinn af DV
til að koma Sigmundi Erni í
starf hans.
n Björn Bjarnason eftirlauna-
þegi hrósar á bloggi sínu fram-
göngu Lýðs Guðmundsson-
ar í Exista í Kastljósi. Björn á
sumarhús í Fljótshlíðínni sem
hann byggði ásamt tengdasyni
sínum, Heiðari Má Guðjóns-
syni, útrásarvíkingi og einum
nánasta samverkamanni Björ-
gólfs Thors. Nágranni þeirra
tengdafeðga er áðurnefndur
Lýður sem reisti sér villu þar
upp á þúsund fermetra. Annar
nágranni er gamall samherji
Björns, Brynjólfur Bjarnason,
maðurinn sem sagt er að hafi
fyrst komið auga á þá Bakka-
bræður, fundið þá upp. Tengsl
Björns við víkingana hafa orð-
ið til þess að gárungar kalla
hann tengdaföður útrásar-
innar.
n Hinar ýmsu ókeypis skemmt-
anir, stórar sem smáar, hafa
verið vinsælar að undanförnu
og telja sumir sig sjá merki
kreppunnar á breyttu afþrey-
ingarmynstri landans. Með-
al þeirra sem efna til hátíða
er Kjörís sem efnir til árlegs
Ísdags í Hveragerði upp úr
hádegi á laugardag. Það væri
kannski ekki í frásögur færandi
nema fyrir
að boðið
verður upp
á óvenju-
lega ísa, til
dæmis með
bjórbragði,
túnfisk-
bragði, ORA
grænna
bauna bragði og kreppuís
með grjónagraut svo eitthvað
sé nefnt. Ýmis skemmtiatriði
verða í boði. Gunni og Felix
verða kynnar, sönghópur úr
Söngvaseiði mætir á svæðið,
Hara-systur, Magnús Þór og
ýmsar hljómsveitir. Búast að-
standendur við allt að 10.000
gestum. Sérstök ísleiðsla verð-
ur lögð beint frá verksmiðjunni
og út á plan og mun fólk geta
borðað eins mikinn ís og það
getur í sig látið.
4 föstudagur 28. ágúst 2009 fréttir
Yfir 500 bílhræ eru í bílakirkjugarðinum að Garðsstöðum við Ísafjarðardjúp og hefur
Súðavíkurkaupstaður samþykkt að láta fjarlægja þau vegna mengunarhættu. Einar
Ásgeirsson hjá Hringrás segir bóndann á Garðsstöðum ekki hafa notið sannmælis og
vera „ókrýndan handhafa umhverfisverðlauna“ fyrir óeigingjarnt starf sitt við söfn-
un bílhræja og sölu varahluta.
UMHVERFISSINNI Í
KIRKJUGARÐINUM
„Ég vil nú meina að hann sé ókrýnd-
ur handhafi umhverfisverðlauna.
Hann er búinn að gera mikið gagn
í sveitinni og er að vinna þjóðþrifa-
verk,“ segir Einar Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri endurvinnslufyrir-
tækisins Hringrásar. Hann álítur
Þorbjörn Steingrímsson, eiganda
bílakirkjugarðsins á Garðsstöðum
í Ögurvík, vera mikinn umhverfis-
sinna og undrast þá miklu gagnrýni
sem starfsemi hans hefur fengið.
Í árafjöld hefur staðið styr um þau
hundruð bílhræja sem standa við
Garðsstaði. Á síðasta fundi sveitar-
stjórnar Súðavíkurhrepps var enn og
aftur ályktað að fjarlægja skuli hræin.
Þorbjörn hefur þar safnað gömlum
bílum og selt úr þeim varahluti.
Algjör misskilningur
Hringrás hefur lengi þjónustað
bóndann á Garðsstöðum og flutt
þaðan bílhræ til endurvinnslu. Einar
telur umræðu um umhverfisspjöll á
svæðinu vera á misskilningi byggða.
„Hann hreinsar alla sveitina í kring-
um sig. Ég held að menn séu bara
ekki upplýstir um það mikla magn
sem við erum búnir að flytja það-
an. Bara á þessu ári erum við búnir
að flytja frá honum hvorki meira né
minna en sex hundruð tonn. Hann
er búinn að standa við að fjarlægja
það sem hann ætlaði sér en það kem-
ur alltaf meira. Það er meiri þörf fyr-
ir þessa þjónustu en menn grun-
aði. Hann virkilega heldur sveitinni
hreinni og fínni,“ segir Einar.
Áhyggjur af mengun
Á síðasta fundi sveitarstjórnar Súða-
víkurhrepps var samþykkt að fela
Heilbrigðiseftirliti Vestfjarða að fjar-
lægja brotajárn af jörð Garðsstaða.
Áður hafði verið gert stöðumat á jörð-
inni þar sem fram kom að þar væru
503 bílaflök, 34 fleiri en þegar slíkt
mat var gert þremur árum fyrr. Auk
þess er þar töluvert magn af dekkj-
um og öðrum bifreiðaúrgangi í þar til
gerðri gryfju á jörðinni.
Í fundargerð er lýst yfir áhyggj-
um af mengun vegna bílhræjanna og
harmað að ekki hafi náðst árangur af
samningi sem gerður var við lóðar-
eiganda um hreinsun á lóðinni fyr-
ir þremur árum. Einnig er tekið fram
að ekkert starfsleyfi hefur verið gefið
út vegna þeirrar starfsemi er fram fer
á jörðinni.
Vegið að atvinnustarfsemi
Þorbjörn vildi ekki tjá sig um málið
þegar DV náði tali af honum í gær.
Deilan hafði náð nokkrum hæðum
í nóvember 2007 þegar Þorbjörn sagði
í samtali við blaðið að honum fyndist
sveitarfélagið ganga á rétt hans með
því að krefjast hreinsunar þar sem
hann hafi atvinnu af bílakirkjugarðin-
um. Þá vildi hann meina að vegið væri
að atvinnustarfsemi hans ef bílarnir
yrðu fjarlægðir. Þorbjörn hóf bílasöfn-
unina 1982 og hafa síðan hundruð
ferðamanna lagt leið sína að Garðs-
stöðum til að skoða bílana.
„Hann er búinn að
standa við að fjarlægja
það sem hann ætlaði
sér en það kemur alltaf
meira.“
600 tonn í burtu Einar Ásgeirsson segir
Hringrás hafa á þessu ári flutt sex hundr-
uð tonn af bílhræjum og brotajárni frá
Garðsstöðum. Hins vegar bætist alltaf
meira við. Mynd róbErt
deilan endalausa Deilan um bílhræin á Garðsstöðum hefur staðið í fjölda ára og
virðist ekki sjá fyrir endann á henni.
ErlA Hlynsdóttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Harpa sóley Kristjánsdóttir fékk loksins Tysabri-lyfið við MS-sjúkdómnum:
„Hoppaði, söng og grenjaði“
Harpa Sóley Kristjánsdóttir var að-
eins fimmtán ára þegar hún greind-
ist með MS-sjúkdóminn. Harpa er
tvítug í dag sagði sögu sína í helg-
arblaði DV fyrr á árinu því hún fékk
samþykki fyrir nýja lyfinu Tysabri en
var neitað um það á síðustu stundu.
Eftir viðtalið í DV fór boltinn að rúlla
og 16. júní síðastliðinn fékk hún sím-
talið sem hún hefur verið að bíða eft-
ir. Haukur Hjaltason, læknir hringdi í
hana og sagði henni að hún fengi lyf-
ið og 1. júlí fór hún í fyrstu lyfjagjöf-
ina á sjúkrahúsinu á Akureyri.
„Ég var úti á palli þegar ég fékk
símtalið því það var svo gott veður.
Nágranninn kom og athugaði hvað
var um að vera því ég hoppaði, öskr-
aði, söng og grenjaði. Þetta var mjög
tilfinningalegt,“ segir Harpa hæst-
ánægð. Hún fór í þriðju lyfjagjöfina í
fyrradag og gengur allt eins og í sögu.
Hún fær lyfið í þrjú til fimm ár og er
mjög jákvæð með framhaldið.
„Ég er lögð inn á lyfjadeildina
á Akureyri og gefið Tysabri í æð í
klukkutíma og korter. Eftir það fæ ég
saltvatn í æð í hálftíma. Síðan þarf ég
að bíða í hálftíma því fyrstu skiptin
eru líkur á að ég fái ofnæmi. Ég fer á
fjögurra vikna fresti og þetta er búið
að ganga mjög vel. Það hefur ekkert
komið upp á fyrir utan smá haus-
verk í fyrstu gjöfinni. Það var örugg-
lega bara spennufall því ég er búin
að bíða eftir þessu svo lengi og loks-
ins var þetta að gerast. Ég var reynd-
ar kvíðin í fyrsta skiptið því ég er svo
hryllilega sprautuhrædd en þetta
gekk vel. Mér líkar samt ekki vel við
að fara inn á spítala. Mér finnst það
leiðinlegt og erfitt en þetta gekk allt
svo vel. Aðstaðan er líka frábær. Ég
er með sjónvarp og DVD-spilara fyr-
ir framan mig þannig að mér leiðist
ekki á meðan,“ segir Harpa.
Harpa býr á Húsavík og hefur
fengið mikil viðbrögð frá íbúum bæj-
arins eftir að viðtalið birtist í DV.
„Mér fannst fólk skilja mig eftir
að greinin birtist. Krakkarnir í skól-
anum gerðu sér þá grein fyrir því hve
alvarlegt þetta væri. Ég hefði bara átt
að koma í viðtal fyrr.“
Harpa var ein þriggja sem var
neitað um Tysabri. Hún er í sam-
bandi við hina tvo og samkvæmt
upplýsingum hennar hefur annar
fengið lyfið en hinn bíður enn.
liljakatrin@dv.is
Ánægð með lífið Harpa horfir bjart-
sýnum augum til framtíðar en er með
báða fætur á jörðinni. Hún getur enn
fengið ofnæmi fyrir lyfinu þó lyfjagjöfin
gangi vel.