Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2009, Page 13
helgarblað 28. ágúst 2009 föstudagur 13
VELVILJAÐUR En SÉRHLÍFInn
SpURnIngAR
tIL SIgmUndAR
Sigmundur Ernir hefur ekki látið fjölmiðla ná í sig síðustu daga,
þrátt fyrir marg ítrekaðar tilraunir til þess. Á miðvikudag sendi
DV honum spurningar vegna þáttöku hans í golfmótum MP
Banka og Media Masters. Þegar blaðið fór í prentun í gær hafði
Sigmundur ekki svarað spurningunum.
n Neyttirðu áfengis meðan á golfmóti MP Banka stóð?
n Var áfengisneyslan eingöngu bundin við veisluna?
n Hver var kostnaður þinn af golfmótinu?
n Hver var kostnaður þinn af veislunni?
n Hvernig fórst þú úr veislunni til Alþingis?
n Hversu mikið magn áfengis drakkst þú í veislunni?
n Staðfestir þú að hafa tekið þátt í golfmóti á föstudeginum?
n Neyttirðu áfengis við það tækifæri?
n Hver var kostnaður þinn af því golfmóti?
n Sastu nefndarfund á föstudagskvöld?
n Varstu allsgáður á þeim fundi?
n Er það rétt að þú hafir lagt fram reikninga til Alþingis vegna
útlagðs kostnaðar, svo sem bílaleigubíla og hótelkostnaðar á
Norðurlandi?
n Var þessum reikningum, einhverjum eða öllum, hafnað af
Alþingi?
„En undir það síðasta,
þegar hann var á NFS og
Stöð 2, vissi maður varla hvort
hann var að stefna í sveitaprest-
inn eða pólitíkusinn. Orðfær-
ið hjá honum var orðið allt upp-
skrúfað og hann var kominn inn
á eitthvert hlutlaust svæði þar
sem hann var sennilega bara að
reyna að halda friðinn við sína
vinnuveitendur.“
Framhald á
næstu síðu