Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2009, Síða 18
18 föstudagur 28. ágúst 2009 fréttir
John F. yngri
lætur lífið
Árið 1999 var höggvið enn eitt skarð-
ið í Kennedy-ættarveldið. Í júlí lést
John F. Kennedy yngri í flugslysi við
Martha’s Vineyard í Massachusetts.
John F. yngri var við stjórnvöl flug-
vélarinnar, en með í för var Caroline
Bessette Kennedy, eiginkona hans,
og Lauren Bessette, systir Caroline
og fórust þær einnig.
Talið var að John hefði misst
stjórn á flugvélinni þegar hann var
að lækka flugið yfir sjávarfletinum
að nóttu til og misst fjarlægðarskyn
sitt. Ösku þremenninganna var síð-
ar dreift við ströndina við Martha’s
Vineyard.
Vafasamt ástar-
samband
Árið 1997 komst í hámæli að Mi-
chael Kennedy, sonur Roberts F.
Kennedy, ætti í ástarsambandi við
fyrrverandi barnapíu fjölskyldu
hans. Sambandið hófst þremur
árum fyrr þegar barnapían var að-
eins fjórtán ára.
Michael Kennedy sætti rannsókn
vegna samræðis við stúlku undir
lögaldri, sem flokkast undir nauðg-
un. Ákæruvaldið hafði ekki erindi
sem erfiði því barnapían var ósam-
vinnuþýð.
Í lok árs 1997 lést Michael eftir
slys á skíðum í Aspen í Colarado.
Sýknun í
nauðgunarmáli
Eftir tíu daga vitnaleiðslur og 77
mínútna rökræður kviðdómara, í
desember árið 1991, var William
Kennedy Smith sýknaður af nauðg-
unarákæru. Strax á öðrum degi
réttarhaldanna steytti ákæruvaldið
á steini þegar Mary E. Lupo dómari
úrskurðaði að svarinn vitnisburð-
ur þriggja annarra kvenna, um að
William Kennedy Smith hefði veist
að þeim á níunda áratugnum, yrði
útilokaður í réttarhöldunum.
„Kviðdómur hefur talað. Engu að
síður er „ekki sekur“ ekki það sama
og saklaus,“ sagði lögfræðingur kon-
unnar, Patriciu Bowman.
Enn er margt á huldu um morðið á næstelsta Kennedy-bróðurnum:
John F. Kennedy myrtur
John F. Kennedy var 35. forseti
Bandaríkjanna frá 1961 þar til hann
var ráðinn af dögum föstudaginn
22. nóvember 1963 í Dallas í Texas-
fylki. John F. Kennedy var skotinn
til bana þar sem hann sat í bifreið
ásamt Jacqueline, eiginkonu sinni,
í bílalest forsetans. Almennt er talið
að morðinginn hafi verið Lee Harvey
Oswald.
Niðurstaða tíu mánaða rann-
sóknar á vegum Warren-nefndarinn-
ar 1963 til 1964, rannsóknar sérstakr-
ar nefndar um morðtilræði (HSCA),
1976 til 1979, og fleiri rannsókna á
vegum hins opinbera var að Lee Har-
vey Oswald hefði ráðið John F. Kenn-
edy af dögum. Upphaflega féllst al-
menningur á þessa niðurstöðu, en
könnun 1966 leiddi í ljós að allt að
80 prósent bandarísku þjóðarinn-
ar höfðu efasemdir um niðurstöður
rannsóknanna.
Í dag er morðið á John F. Kenne-
dy enn tilefni vangaveltna og fjölda
ósvaraðra spurninga og óteljandi
samsæriskenningar hafa verið viðr-
aðar síðan það var framið. Þrátt fyr-
ir að HSCA hafi árið 1979 komist að
niðurstöðu um sekt Lee Harvey Os-
wald komst nefndin einnig að þeirri
niðurstöðu að rannsókn alríkislög-
reglunnar, FBI, og skýrslu Warren-
nefndarinnar hefði verið verulega
ábótavant.
Lee Harvey Oswald þvertók fyrir
að hafa skotið nokkurn mann og full-
yrti að hann væri blóraböggull. Hann
kom aldrei fyrir dómstóla því tveim-
ur dögum síðar var hann skotinn til
bana þegar lögregla var að færa hann
í brynvarðan bíl til að koma honum
frá höfuðstöðvum lögreglunnar í
Dallas í fangelsi Dallas-sýslu. Bana-
maður Oswalds var Jack Ruby, næt-
urklúbbseigandi í Dallas.
John F. Kennedy Féll fyrir
kúlu launmorðingja í Dallas.
Edward M. Kennedy, síðasti Kenn-
edy-bróðirinn og sá yngsti, féll frá á
þriðjudaginn eftir baráttu við illkynja
æxli í heila. Edward „Ted“ Kenne-
dy var yngri bróðir Johns F. Kenne-
dy, forseta Bandaríkjanna frá 1961 til
1963, og öldungadeildarþingmanns-
ins Roberts F. Kennedy, en þeir voru
báðir myrtir. Elsti bróðir bræðranna,
Joseph P. Kennedy yngri, fórst í síðari
heimsstyrjöldinni og því var Edward
sá eini bræðranna sem lést af eðli-
legum orsökum.
Ted Kennedy var öldungadeild-
arþingmaður demókrata í hartnær
hálfa öld, eða frá 1962, og var við
dauða sinn með næstlengsta sam-
fellda starfsaldurinn í öldunga-
deildinni. Robert F. sóttist eftir for-
setaembættinu og var ráðinn af
dögum í kjölfar sigurs í forkosn-
ingum í Kaliforníu. Eftir 1969 voru
vonir Teds Kennedy varðandi for-
setaenbættið sveipaðar ósvöruðum
spurningum og vangaveltum varð-
andi Chappaquiddick-slysið. Engu
að síður lagði Ted á brattann árið
1980 gegn Jimmy Carter, sitjandi for-
seta, en þrátt fyrir óvinsældir Carters
hvíldi skuggi Chappaquiddick yfir
Kennedy og hafði hann ekki erindi
sem erfiði.
Áhrifamikill þingmaður
Þrátt fyrir að Hvíta húsið hafi gengið
honum úr greipum var Ted löngum
talinn einn áhrifamesti þingmaður
Bandaríkjanna síðastliðna áratugi.
Hann varð þekktur sem „Ljón öld-
ungadeildarinnar“ og átti stóran þátt
í fjölda mikilvægra lagasetninga sem
vörðuðu mannréttindi, kosningarétt,
rétt sjúkra og fatlaðra. Á tíma íhalds-
emi sem einkenndi Bandaríkin frá
1980 fram yfir aldamót varð hann
merkisberi frjálslyndis.
Ævisöguritari Edwards Kenne-
dy, Adam Clymer, sagði að Edward
hefði sennilega verið best þekktur
fyrir hæfileikann til að vinna með
repúblikönum. „Repúblikanaflokk-
urinn safnaði milljónum dala vegna
þess eina markmiðs að bjarga land-
inu frá Ted Kennedy, en ekki voru
til þau lög sem hann kom í gegn þar
sem hann naut ekki stuðnings mik-
ilvægs bandamanns úr röðum rep-
úblikana,“ sagði Clymer.
Sæti á silfurfati
Aðstæður í kringum upphaf Edwards
Kennedy í öldungadeildinni var með
óvanalegum hætti. Þannig var að
þegar John F. var kjörinn forseti losn-
aði sæti hans fyrir Massachusetts
í öldungadeildinni. Edward var þá
ekki orðinn þrítugur og því ekki nógu
gamall til að fá sæti í deildinni.
John F. brá þá á það ráð að biðja
ríkisstjóra Massachusetts að leyfa
vini Kennedy-fjölskyldunnar að taka
sætið þar til tímabili Johns lyki og
Edward hefði aldur til að setjast á
þing. Edward var síðan kjörinn öld-
ungadeildarþingmaður 1962 og þrátt
fyrir að ferlið væri ekki ólöglegt sam-
kvæmt stjórnarskrá landsins vakti
það upp vangaveltur um hvort Ed-
ward hefði fengið sæti í öldunga-
deildinni silfurfati. Hvað sem þeim
vangaveltum líður var hann ítrekað
endurkjörinn allt til loka.
Í hópi tíu bestu
Árið 2006 sagði Time-tímaritið Ed-
ward Kennedy vera einn af „tíu
bestu öldungadeildarþingmönnum“
landsins, að hann hefði staðið fyrir
gríðarlegum fjölda lagasetninga sem
hefðu „áhrif á líf nánast allra karl-
manna, kvenna og barna í landinu.“
Barack Obama, forseti Banda-
ríkjanna, sagði þegar honum bár-
ust fréttirnar af fráfalli Edwards að
hann hefði verið „einn afkastamesti
Bandaríkjamaðurinn sem hefði
þjónað lýðræði“ landsins.
Edward Kennedy studdi Obama í
slagnum um forsetaembættið og virti
að vettugi beiðni úr herbúðum Hill-
ary Clinton um að vera hlutlaus. Ed-
ward er talinn einn helsti lykilmað-
urinn í viðleitni Obama til að koma
umbótastefnu í heilbrigðismálum
landsins í gegn.
Þrátt fyrir að Edward Kennedy
hafi ekki alltaf tekist að standa und-
ir þeim væntingum sem gerðar voru
til hans í kjölfar dauða bræðra hans
hefur hann skilið eftir sig verulega
pólitíska arfleifð.
„LJónið“ FaLLið Frá
„Frjálslynda ljónið“ í öldungadeild Bandaríkjanna, Edward „Ted“ Kennedy, lést á þriðju-
daginn. Horfinn er af sviðinu einn áhrifamesti stjórnmálamaður síðustu fimm áratuga
Bandaríkjanna. Hann var sá eini Kennedy-bræðra sem lést af eðlilegum orsökum.
Kolbeinn þorSteinSSon
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Kennedy-bræðurnir Valdamesta
fjölskylda Bandaríkjanna um tíma.
edward (t.v.) og robert F. ásamt
Jacqueline, ekkju Johns F. árið 1963
Eftir morðið á Robert, 1968, varð Edward
höfuð fjölskyldunnar.
„ljón öldunga-
deildarinnar“ Sat
óslitið í öldunga-
deildinni frá 1962
til dauðadags.