Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2009, Blaðsíða 21
fréttir 28. ágúst 2009 föstudagur 21
Landnemar í heimi skordýra
Lyngbobbi - arianta arbustorum
Fannst fyrst: Fannst í Breiðavík á Snæfellsnesi 1991.
Útbreiðsla á Íslandi: Útbreiddur á Austurlandi en hefur
einnig fundist á þremur stöðum á Vestfjörðum. Fannst síðar í
Reykjavík og víðar.
Lífshættir: Algengastur í skóglendi, birki- og lerkiskógum en
einnig í gróðurríku mólendi. Lyngbobbi nærist á plöntum.
PardussnigiLL - Limax maximus
Fannst fyrst: Fannst í Grafarvogi í Reykjavík 1997.
Útbreiðsla á Íslandi: Finnst víða á höfuðborgarsvæðinu, frá
Mosfellsbæ suður til Hafnarfjarðar en einnig í Hveragerði.
Lífshættir: Heldur til í húsagörðum og gróðurlendum í ná-
grenni garða. Leitar í laufbingi og safnhauga en sækir minna í
græna grósku. Verpir á vorin og haustin og lifir í allt að fjögur
ár. Getur orðið allt að 20 sentímetrar að lengd.
roðageitungur - VesPuLa rufa
Fannst fyrst: Í september 1986 í Hafnarfirði. Fyrsta búið fannst
1997 í Kópavogi.
Útbreiðsla á Íslandi: Reykjavík, Kópavogur, Garðabær og
Hafnarfjörður
Lífshættir: Velur búum til dæmis stað í holum í jörð, á bak við
steina og í vegghleðslum í húsagörðum. Fá bú hafa fundist á
Íslandi, hið stærsta innihélt 224 geitunga.
skógarmítiLL - icodes ricinus
Fannst fyrst: Á þúfutittlingi sem var í Surtsey 1967.
Útbreiðsla á Íslandi: Hefur fundist víða á sunnanverðu
landinu, einnig á Patreksfirði, Í Skagafirði og á Egilsstöðum.
Lífshættir: Skógarmítill er blóðsuga á spendýrum og heldur
sig í gróðri, einkum í skógarbotnum. Þegar hann þarf blóð
skríður mítillinn upp í gróðurinn og krækir sig við blógjafa,
yfirleitt kindur og önnur dýr af þeirri stærðargráðu en geta
líka lagst á menn og minni dýr. Getur borið alvarlega sýkla
í fórnarlömb sín, til dæmis bakteríuna Borrelia burgdorferi,
sem getur valdið alvarlegum skaða á taugakerfi.
skrautygLa - PhLogoPhora meticuLosa
Fannst fyrst: 1959 á Öræfum.
Útbreiðsla á Íslandi: Hefur fundist á láglendi í öllum lands-
hlutum nema á Vestfjörðum. Sjaldgæf á Norðurlandi.
Lífshættir: Yglurnar verpa að vetrardvala afloknum. Ný kyn-
slóð fullorðinna skríður þá úr púpum og leggst í dvala. Nærist
á fjölmörgum jurtkenndum plöntum. Finnast langflestar á
haustin og fram eftir nóvember. Einkar falleg og minnir á
visnað laufblað.
sPánarsnigiLL - arion Lustitanicus
Fannst fyrst: Í Reykjavík og Kópavogi 2003.
Útbreiðsla á Íslandi: Á höfuðborgarsvæðinu en einnig í Hnífs-
dal, Ólafsfirði og Höfn í Hornafirði. Dreifist nær eingöngu af
mannavöldum.
Lífshættir: Spánarsnigill á líklega eftir að reynast eitt mesta
meindýr sem við höfum borið með okkur til Íslands. Frjósemi
hans, stærð og græðgi ræður þar mestu. Hann hefur dálæti á
lyktarsterkum plöntum en einnig étur hann hræ, hundaskít
og aðra snigla. Getur tímgast án þess að makast við annan
einstakling. Verpir um 400 eggjum í senn.
trjágeitungur - doLichoVesPuLa norwegica
Fannst fyrst: Í Skorradal á Vesturlandi og í Neskaupstað á
Austurlandi 1982.
Útbreiðsla á Íslandi: Finnst á láglendi um allt land en líka á
hálendinu norðan Vatnajökuls við Kárahnjúka og í Grágæsa-
dal og Brúaröræfum.
Lífshættir: Samfélagsskordýr sem gerir hangandi bú í trjám
og runnum, undir þakskeggjum húsa, á húsveggjum og
víðar. Drottningar fara á stjá í maí og hefur þá byggingu bús
og verpir þernum. Í stærsta búinu sem fundist hefur hér
á landi voru 879 geitungar. Þeir eru árásargjarnir og geta
stungið illa.
VorsVeifa - meLangyna LasioPhthaLma
Fannst fyrst: Vorið 1969 í Hafnarfirði en talið er að hún hafi
komið hingað nokkuð fyrr.
Útbreiðsla á Íslandi: Finnst á láglendi í öllum landshlutum,
nema á Norðvesturlandi þar sem tilvist hennar hefur ekki
verið staðfest. Hefur einnig fundist í Þjórsárverum.
Lífshættir: Kjörlendi hennar er í skóg- og kjarrlendi og
húsagörðum þar sem gróður vaknar snemma á vorin. Hún
sést í mestum fjölda í maí og fyrri hluta júní en stöku fluga
sést í júlí.
Sérverslun með
FÁKAFENI 9 - (við hliðina á ísbúðinni)
Sími: 553 7060 - Opið mánud-föstud. 11-18 & laugard. 11-16
Skór & töskur
www.gabor.is
myndir erling ólafsson