Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2009, Side 40
Umsjón: Kjartan GUnnar Kjartansson, kgk@dv.is
Jón Valur Jensson
guðfræðingur og ættfræðingur
Jón fæddist í Reykjavík og ólst þar
upp. Hann var um hríð við prent-
nám, lauk stúdentsprófi frá MR
1971, stundaði nám í sagnfræði,
latínu og grísku við HÍ, lauk kand-
ídatsprófi í guðfræði frá HÍ 1979 og
stundaði framhaldsnám í háskólan-
um í Cambridge í kristinni siðfræði,
trúarheimspeki og fræðum Tómasar
frá Aquino.
Jón var forstöðumaður Kvöld-
skólans á Ísafirði 1983-84, síðan við
kennslu í Reykjavík, stofnaði Ætt-
fræðiþjónustuna 1986 og hefur starf-
rækt síðan, einnig unnið við prófar-
kalestur, þýðingar o.fl.
Jón var frumkvöðull að stofn-
un Lífsvonar, samtaka til verndar
ófæddum börnum, 1985 og sinnti
þar stjórnarstörfum og ritstjórn. Var
einnig í stjórn Ættfræðifélagsins og
formaður þar um tíma.
Fjölskylda
Kona Jóns er Ólöf Þorvarðsdóttir, f.
9.5. 1964, M.M., M.A., fiðluleikari í
Sinfóníuhljómsveit Íslands. Foreldr-
ar Ólafar: Þorvarður Ragnar Jóns-
son, verslunarmaður í Reykjavík, og
k.h., Inga Sigríður Ingólfsdóttir frá
Ísafirði, ritari seðlabankastjóra.
Börn Jóns og Ólafar: Sólveig, f.
20.1. 1998, d. 21. sama mán.; Ísak,
f. 15.9. 1999; Sóley Kristín, f. 30.6.
2001.
Fyrri kona Jóns er Elínborg Lár-
usdóttir, f. 19.3. 1942, blindraráð-
gjafi. Foreldrar Elínborgar: Lár-
us Ingimarsson, er látinn, heildsali
í Reykjavík, og k.h., Ásdís Vídal-
ín Kristjánsdóttir. Börn Jóns og El-
ínborgar eru Katrín, f. 12.10. 1976,
MA í alþjóðasamskiptum en dóttir
hennar er Chinyere Elínborg, f. 2.9.
2001; Þorlákur, f. 11.5. 1978, stúdent.
Stjúpsonur Jóns er Andri Krishna
Menonsson, f. 23.5. 1969, tannlækn-
ir í Osló.
Systur Jóns eru Karítas, f. 27. 4.
1952, bókasafnsfræðingur og hún á
tvo syni, Axel Viðar og Pétur Má Eg-
ilssyni; Kolbrún, f. 27.4. 1952, BSc.
hjúkrunarfræðingur.
Foreldrar Jóns: Jens Hinriksson,
f. 21.10. 1922, d. 2.8. 2004, vélstjóri
í Reykjavík, og k.h., Kristín J. Jóns-
dóttir, húsmóðir .
Ætt
Bróðir Jens var Jósafat framkvæmda-
stjóri J. Hinriksson hf. Faðir þeirra
var Hinrik vélstjóri og járnsmið-
ur á Norðfirði, hálfbróðir Magn-
úsar Hj. Magnússonar, skáldsins á
Þröm. Hinrik var sonur Hjalta kenn-
ara, bróður Þórðar alþm. í Hattar-
dal, föður Þórðar, skálds Grunnvík-
ings, langafa Ólafs H. Kjartanssonar,
sýslumanns á Selfossi. Hjalti var son-
ur Magnúsar, pr. í Hvítanesi, bróður
Þorsteins pr. og ættföður Thorsteins-
sonættar. Magnús var sonur Þórðar,
pr. í Ögurþingum Þorsteinssonar, og
Guðbjargar Magnúsdóttur, b. í Súða-
vík Ólafssonar, ættföður Eyrarætt-
ar Jónssonar, langafa Jóns forseta.
Móðir Hjalta var Matthildur, syst-
ir Jóns kraftaprests á Rafnseyri, afa
Jónu, móður Matthíasar Jónassonar
prófessors. Matthildur var dóttir Ás-
geirs, prófasts í Holti í Önundarfirði,
bróður Þórdísar, móður Jóns forseta
og Jens, langafa Jóhannesar Nordals,
föður Ólafar alþm.. Móðir Matt-
hildar var Rannveig Matthíasdótt-
ir, stúdents á Eyri Þórðarsonar, ætt-
föður Vigurættar, bróður Magnúsar í
Súðavík. Móðir Hinriks var Sigurlína
María Hinriksdóttir, bæjarstjóra á
Ísafirði,Sigurðssonar, b. á Seljalandi
Hinrikssonar.
Móðir Jens var Karítas Halldórs-
dóttir, útvegsb. í Melshúsum á Álfta-
nesi Erlendssonar. Móðir Karítasar
var Kristjana Árnadóttir, b. í Mels-
húsum Árnasonar. Móðir Árna var
Kristjana Ólafsdóttir, lögsagnara
í Hjarðardal Erlendssonar, sýslu-
manns á Hóli í Bolungarvík Ólafs-
sonar, bróður Grunnavíkur-Jóns.
Móðir Ólafs var Ástríður Magnús-
dóttir, prófasts í Vatnsfirði Teitsson-
ar, bróður Jóns biskups.
Kristín er dóttir Jóns, verka-
manns í Reykjavík Helgasonar, b. á
Ósabakka á Skeiðum Jónssonar b.
á Iðu Vigfússonar, af Kópvatnsætt.
Móðir Jóns Helgasonar var Kristj-
ana Einarsdóttir, systir Kristjáns,
föður Jóhanns læknis og Sigurliða,
kaupmanns í Silla og Valda. Móð-
ir Kristjönu var Vigdís Diðriksdóttir,
b. í Neðradal í Biskupstungum Stef-
ánssonar. þar Þorsteinssonar. Móð-
ir Diðriks var Vigdís Diðriksdóttir.
Móðir Vigdísar var Guðrún Högna-
dóttir „prestaföður“ Sigurðssonar.
Móðir Kristínar var Valdís, syst-
ir Maríu á Stóru-Reykjum í Flóa,
ömmu Vigdísar Hauksdóttur alþm.
og Margrétar, konu Guðna Ágústs-
sonar, fyrrv. ráðherra. Önnur systir
Valdísar var María yngri, móðir Frið-
finns endurskoðanda, föður Kristins
Ágústs, pr. í Hraungerði. Valdís var
dóttir Jóns, b. í Seljatungu í Flóa Er-
lendssonar, b. í Arnarholti Þorvarðs-
sonar, b. í Stóra-Klofa Erlendssonar,
b. í Þúfu á Landi Jónssonar. Móð-
ir Erlends í Þúfu var Halldóra Hall-
dórsdóttir, b. á Rauðnefsstöðum
Bjarnasonar, ættföður Víkingslækj-
arættar. Móðir Valdísar var Krist-
ín Þorláksdóttir, b. á Galtastöðum
Pálssonar, Maríu Friðfinnsdóttur, b.
á Galtastöðum Péturssonar. Móðir
Friðfinns var Guðrún Sigurðardóttir,
systir Bjarna riddara.
70 ára á sunnudag
Hallveig Thorlacius
brúðuleikari
Hallveig fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hún lauk stúdentsprófi frá
MR 1958, stundaði nám við Háskól-
ann í Lundi í Svíþjóð 1959-60, við
Háskólann í Moskvu 1960-63 og við
Kennaraskóla Íslands 1964-65. Þá
stundaði hún nám við Leiðsögu-
mannaskólann frá 2006 og lauk leið-
sögumannaprófi 2007.
Hallveig kenndi á Suðureyri
við Súgandafjörð 1959 og var síð-
an kennari við Hvassaleitisskóla,
Grunnskólann í Varmahlíð, Mennta-
skólann í Hamrahlíð, Menntaskól-
ann við Sund, Ármúlaskólann og
Þroskaþjálfaskólann. Þá er hún lög-
giltur skjalaþýðandi og dómtúlkur
í rússnesku og hefur verið þýðandi
fyrir Sjónvarpið um árabil.
Hallveig var einn af aðstandend-
um Leikbrúðulands frá 1971 og hefur
starfrækt eigið brúðuleikhús, Sögu-
svuntuna, frá 1984. Hún hefur sam-
ið tíu leikrit fyrir brúðuleikhús, auk
leikrits sem byggt er á Egils-Sögu, en
hún er nú að vinna að öðru brúðu-
leikriti sem byggt er á Laxdælu. Hún
hefur að undanförnu haldið fjölda
brúðusýninga erlendis, m.a. í Síber-
íu og í Norður-Finnlandi.
Hallveig hefur samið barnabók
sem m.a. var gefin út í Slóvaníu og
fyrir síðustu jól kom út eftir hana
unglingabókin Martröð.
Fjölskylda
Hallveig giftist 30.8. 1963 Ragn-
ari Arnalds, f. 8.7. 1938, formanni
Heimssýnar, fyrrv. ráðherra og alþm.
og fyrrv. formanni Alþýðubandalags-
ins. Hann er sonur Sigurðar Arnalds,
f. 15.3. 1909, d. 10.7. 1998, útgefanda
og stórkaupmanns í Reykjavík, og f.
k.h., Guðrúnar Jónsdóttur Laxdal, f.
1.3. 1914, d. 7.9. 2006, kaupkonu.
Dætur Ragnars og Hallveigar eru
Guðrún, f. 28.7. 1964, hómópati og
yogakennari, búsett í Kópavogi, en
maður hennar er Logi Vígþórsson og
er sonur þeirra Ragnar Hrafn en dótt-
ir Guðrúnar er Sara Steinþórsdóttir;
Helga, f. 6.9. 1967, brúðuleikari og
myndlistakona, búsett í Reykjavík en
maður hennar er Elías Bjarnason og
er sonur þeirra Úlfur en dóttir þeirra
er Hallveig.
Systkini Hallveigar eru Örnólfur
Thorlacius, f. 9.9. 1931, fyrrv. rekt-
or MR; Kristín Rannveig Thorlacius,
f. 30.3. 1933, bókasafnsfræðingur í
Borgarnesi; Hrafnkell Thorlacius, f.
22.1. 1937, d. 17.6. 2008, var arkitekt
í Reykjavík; Kristján, f. 30.10. 1941,
kennari og áfangastjóri við Ármúla-
skóla.
Foreldarar Hallveigar: Sigurður
Thorlacius, f. 4.7. 1900, d. 17.8. 1945,
skólastjóri í Reykjavík, og Áslaug
Thorlacius, f. 21.11. 1911, húsmóðir.
Ætt
Sigurður var bróðir Birgis ráðuneytis-
stjóra og Kristjáns, formanns BSRB
Thorlacius. Sigurður var sonur Ól-
afs, læknis á Búlandsnesi Jónssonar,
pr. í Saurbæ Einarssonar. Móðir Jóns
var Margrét Jónsdóttir, systir Álfheið-
ar, ömmu Jóns Helgasonar biskups.
Móðir Ólafs var Kristín Tómasdóttir.
Móðir Kristínar var Rannveig, systir
Jónasar Hallgrímssonar.
Móðir Sigurðar var Ragnhildur,
systir Sigurðar Eggerz ráðherra.
Bróðir Áslaugar var Jónasar Kristj-
ánssonar, forstöðumaður Árnastofn-
unnar. Áslaug er dóttir Kristjáns, b.
á Fremstafelli, bróður Jónasar frá
Hriflu, afa Sigurðar Steinþórssonar
prófessors. Kristján var sonur Jóns,
b. á Hriflu Kristjánssonar, b. í Sýrnesi
Jónssonar, b. þar, bróður Jóhannes-
ar, ættföður Laxamýrarættar, afa Jó-
hanns Sigurjónssonar, og Snjólaug-
ar, ömmu Magnúsar Magnússonar,
sjónvarpsmanns á BBC og rektors í
Edinborgarháskóla. Jón var sonur
Kristjáns, b. á Halldórsstöðum Jós-
efssonar, b. í Ytra-Tjarnarkoti, bróður
Jónasar, afa Jónasar Hallgrímssonar
skálds. Jósef var sonur Tómasar, ætt-
föður Hvassafellsættar Tómassonar.
Móðir Kristjáns á Halldórsstöðum
var Ingibjörg Hallgrímsdóttir, systir
Gunnars, afa Tryggva Gunnarsson-
ar bankastjóra og Kristjönu, móður
Hannesar Hafsteins.
Móðir Áslaugar var Rósa, dótt-
ir Guðlaugs, b. í Fremstafelli Ás-
mundssonar, b. á Ófeigsstöðum
Jónssonar. Móðir Guðlaugs var Guð-
ný Guðlaugsdóttir, b. í Álftagerði
Kolbeinssonar og Kristínar, systur
Þuríðar, móður Sigurðar, ráðherra í
Ystafelli, afa Jónasar búnaðarmála-
stjóra. Þuríður var einnig móðir
Árna, afa Þórs Vilhjálmssonar dóm-
ara. Önnur systir Kristínar var Frið-
rika, móðir Sigurðar, langafa Sveins
Skorra Höskuldssonar prófessors.
Kristín var dóttir Helga, ættföður
Skútustaðaættar Ásmundssonar.
Móðir Rósu var Anna Sigurðardótt-
ir, b. á Litluströnd Erlendssonar, og
Guðrúnar, systur Guðnýjar á Ófeigs-
stöðum.
Kjartan Gunnar Kjartansson rekur
ættir þjóðþekktra Íslendinga sem hafa verið í
fréttum í vikunni, rifjar upp fréttnæma
viðburði liðinna ára og minnist horfinna
merkra Íslendinga. Lesendur geta sent inn
tilkynningar um stórafmæli á netfangið
kgk@dv.is
40 föstudagur 28. ágúst 2009 ættfræði
60 ára á mánudag
30 ára á föstudag
Kári fæddist í Reykjavík og ólst þar
upp og á Siglufirði að hluta til. Hann
var í Fossvogsskóla, Réttarholtsskóla,
stundaði nám við Fjölbrautarskólann í
Breiðholti og stundar nú nám í íþrótta-
fræði við HÍ.
Kári hóf ungur störf við fyrirtæk-
ið Bifreiðaverkstæði Jónasar og hefur
starfað þar á sumrin og með námi. Þá
hefur hann starfað með skóla hjá AB –
Varahlutum sl. tvö ár.
Kári hóf ungur að æfa og keppa í
knattspyrnu með Víkingi og lék með
öllum aldursflokkum upp í meist-
araflokk. Hann hefur stundað knatt-
spyrnuþjálfun frá sautján
ára aldri, lengi hjá Víkingi en
hjá yngri flokkum Fylkis frá
2002.
Kári fékk viðurkenningu
frá Knattspyrnuþjálfarafé-
lagi Íslands fyrir störf í þágu
barna og unglinga árið 2007.
Fjölskylda
Eiginkona Kára er Anna Bára Arons-
dóttir, f. 10.4. 1982, kennari við Hörðu-
vallaskóla í Kópavogi.
Dætur Kára og Önnur Báru eru
Erika Líf Káradóttir, f. 7.3. 2005; Elísa
Birta Káradóttir, f. 14.2. 2009.
Systkini Kára eru Gunnar
Stefán Jónasson, f. 11.6. 1962,
vélstjóri í Reykjavík; Jón Ingv-
ar Jónasson, f. 31.5. 1965, bif-
vélavirki í Reykjavík; Ingi-
björg Jónasdóttir, f. 4.12. 1967,
leikskólakennari í Reykjavík;
Viðar Jónasson, f. 24.5. 1973,
bifvélavirki í Reykjavík.
Foreldrar Kára eru Jónas Jóns-
son, f. 23.4. 1940, bifvélavirki og fyrrv.
framkvæmdastjóri í Reykjavík, og Ólöf
Septína Steingrímsdóttir, f. 10.10. 1945,
húsmóðir.
Kári Jónasson
nemi í íþróttafræði við Hí