Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2009, Qupperneq 46
Vildi Verða Kobbi KViðrista
„Þú munt heyra af mér,“ sagði Derek Brown við vinkonu sína. „Ég ætla að verða
frægur.“ Derek Brown vildi verða næsti Kobbi kviðrista (Jack the Ripper) en hon-
um varð ekki að ósk sinni.
Hann framdi tvö morð svo vitað sé og þótt hann yrði ekki frægur afrekaði hann
að vera dæmdur fyrir tvö morð þrátt fyrir að lík fórnarlambanna hefðu aldrei
fundist.
Lesið um Derek Brown í næsta helgarblaði DV.
Skuggar fortíðar
Edward Pritchard læknir hélt að hann gæti flúið fortíðina þegar hann flutti ásamt fjölskyldu sinni frá Jór-
víkurskíri á Englandi til Glasgow í Skotlandi. En skugga fortíðar er erfitt að flýja eins og Pritchard átti eft-
ir að komast að.
Mary Pritchard hafði verið veik
lengi. Þegar hún veiktist í desem-
ber 1864 var það talin blessun
að eiginmaður hennar, Edward
Pritchard, var læknir og því hægt
að treysta því að hún fengi bestu
umönnun sem völ væri á.
En því var ekki að skipta því til
allrar óhamingju fyrir Mary var
eiginmaður hennar ekki allur þar
sem hann var séður. Hann var lyg-
ari, kvennaflagari og morðingi. Á
þessum tíma átti Edward í ástar-
sambandi við unga konu, leyndi
skuggalegri fortíð og bar einnig
ábyrgð á veikindum konu sinnar.
Tengdamanna hjúkrar
eiginkonunni
Edward byrlaði eiginkonu sinni
antímon-eitur sem olli því að
hún var með þrálátan höfuð-
verk og kúgaðist í tíma og ótíma
og var verulega af henni dregið.
Jane Taylor, móður hennar, leist
ekki betur á blikuna en svo að
hún ákvað að flyja frá Edinborg til
Glasgow til að hjúkra dóttur sinni,
en það var skammgóður vermir
því 25. febrúar, 1865, veiktist Jane
og andaðist. Edward Pritchard var
því í lófa lagið að halda áfram að
eitra fyrir eiginkonu sinni þar til
hún lést 18. mars.
Athygli saksóknara vakin
Tveimur dögum síðar barst sak-
sóknara bréf þar sem fullyrt var
að eitthvað væri grunsamlegt við
dauða beggja kvennanna. Ekki er
útilokað að bréfsendandi hafi ver-
ið James Paterson læknir. Pater-
son hafði upphaflega verið beðinn
að fylla út dánarvottorðin og þeg-
ar hann neitaði skrifaði Pritchard
þau sjálfur.
Bréfið varð til þess að lögreglan
hóf rannsókn á málinu og sama
kvöld var Pritchard handtekinn
og settur í varðhald.
Þetta var ekki í fyrsta skipti sem
læknirinn tengdist einhverju um-
deildu og talið að fjölskyldan hafi
flutt frá Jórvíkurskíri á grunsam-
legum forsendum.
Árið 1863 hafði kviknað í húsi
fjölskyldunnar í Berkeley Terrace
og ung þjónustustúlka hafði látið
lífið. Talið var að upptök eldsvoð-
ans hefðu verið í herbergi stúlk-
unnar en athygli vakti að hún
hafði ekki gert tilraun til að kom-
ast út. Var hún meðvitundarlaus,
undir áhrifum lyfja eða dáin fyr-
ir?
Horft til fortíðar
Engar ákærur höfðu verið lagðar
fram vegna eldsvoðans. En sak-
sóknara var kunnugt um atburð-
inn og eftir að hafa fengið bréf
vegna dauða eiginkonu læknisins
og tengdamóður fannst lögregl-
unni ærin ástæða til rannsóknar.
Krufning á líki Mary Pritchard
staðfesti grunsemdirnar sem viðr-
aðar voru í bréfinu og úrskurðað
var að hún hefði látist vegna ant-
ímon-eitrunar. Lík móður henn-
ar var grafið upp 31. mars, 1865
og í ljós kom að hún hafði hlotið
samskonar dauðdaga og Mary.
Edward Pritchard var ákærður
fyrir morð.
Þar sem um var að ræða tvö-
falt morð og meintan morðingja
úr metorðastétt varð ekki hjá því
komist að réttarhöldin yfir Pritch-
ard vektu athygli.
Vitnisburður hjúa
Réttarhöldin hófust að morgni
3. júlí og læknirinn birtist í dóm-
sal í sorgarklæðum. Mest af vitn-
isburði við réttarhöldin kom frá
hjúum læknisins og undirstrik-
aði tengslin á milli veikinda Mary
Pritchard og matar sem læknirinn
hafði komið nálægt að matbúa.
Einnig kom í ljós aðMary
McLeod, fimmtán ára þjónustu-
stúlka, hafði átt vingott við Ed-
ward og viðurkennt það fyrir
einni þvottakonu. Að sögn þvotta-
konunnar hafði stúlkan sagt að
ef Mary Pritchard hyrfi á braut
myndi hún taka hennar sess á
heimilinu.
Mary McLeod hafði misst fóst-
ur árið 1864 og í ljósi þess hve
mikla samúð hún fékk frá lækn-
inum vaknaði grunur um að hann
hefði verið faðirinn.
Einnig var gefið í skyn að Mary
Pritchard hefði gripið eiginmann
sinn og þjónustustúlkuna glóð-
volg í nóvember og skömmu síðar
veiktist hún.
Kviðdómurinn einróma
Það þótti sannað við réttarhöldin
að Edward Pritchard hefði bland-
að antímoni saman við ópíum-
blöndu sem frúin neytti gjarna.
Það tók kviðdómara aðeins
stutta stund að komast að ein-
róma niðurstöðu og læknirinn var
dæmdur til dauða.
28. júlí 1865 varð Edward
Pritchard síðasti maðurinn sem
hengdur var opinberlega í Glasg-
ow í viðurvist þúsunda áhorfenda.
Vegna glæpa Edwards var gerð
undantekning á þeirri reglu að
tjald væri notað svo hinn dæmdi
gæti notið síðustu andartakanna í
einrúmi og áhorfendum var leyft
að verða vitni að síðustu andar-
tökum hins dæmda manns.
Líkið snerist hægt og rólega við
öskur kvenna og hvatningarhróp
karla – eiturbyrlarinn var allur.
UmsJón: KoLBeinn ÞoRsteinsson, kolbeinn@dv.is
Edward Pritchard
var því í lófa lagið að
halda áfram að eitra
fyrir eiginkonu sinni
þar til hún lést 18.
mars.
44 föstudagur 28. ágúst 2009 saKamál
Mary Pritchard Glímdi við langvarandi veikindi vegna eitrunar.
Edward Pritchard Fyrirkom bæði eiginkonu sinni og tengdamóður.
20-40%
Afsláttur
af stangaveiðivörum aðeins í nokkura daga
Gerðu frábær kaup!
ÚTSALA - ÚTSALA - ÚTSALA - ÚTSALA
Sérverslun veiðimannsins - Laugarveg 178 - Sími: 551 6770 - www.vesturrost.is
Stangaveiðivörur
Vesturröst