Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2009, Qupperneq 50
Eignaðist son Rithöfundurinn og blaðamað-
urinn Snæfríður Ingadóttir eignaðist stelpu í vikunni
en þetta er annað barn þeirra hjóna. Samkvæmt
heimildum blaðsins var um stóra og stæðilega
stelpu að ræða en sagan segir að foreldrarnir hafi
þurft að bíða örlítið komu hennar í heiminn. Allt hafi
þó gengið eins og í sögu þegar stóra stundin hafi
runnið upp.
„Það er mikið ábyrgðarhlutverk að finna
nafn á drenginn og við viljum gefa okk-
ur tíma í það,“ segir Marta María Jón-
asdóttir, rithöfundur og blaðamað-
ur á Veröld Mörtu Maríu á pressan.is.
Marta María eignaðist son 13. júlí en
fyrir eiga hún og eiginmaður hennar
soninn Helga sem verður þriggja ára
í haust. „Ef Helgi fær að ráða verður
hann skírður Einar Áskell,“ segir Marta
María og hlær. Aðspurð hvort það hafi
ekki verið viðbrigði að eignast annað
barn segir hún þau minni en hún hafi
búist við. „Lífið breytist svo mikið við
að eignast fyrsta barnið. Þegar barn
númer tvö kemur í heiminn er það bara
svolítil viðbót við tilveruna. Mestu við-
brigðin hafa verið fyrir Helga enda hef-
ur hann fengið alla heimsins athygli
frá því hann kom í heiminn. Vonandi
jafnar hann sig fljótt.“ Marta María seg-
ir fæðinguna hafa gengið vel. „Ég bjóst
ekki við neinu þar sem fyrri fæðing-
in endaði í bráðakeisara en mér tókst
að koma drengnum í heiminn á nátt-
úrulegan hátt. Það er einstök upplifun,“
segir hún og bætir við að hún sé búin
að vera afar hátt uppi síðan sonurinn
fæddist. „Þegar kona hefur prófað að
fæða án þess að vera uppdópuð finnst
henni hún geta allt og ég er búin að
vera svo hress að sumum hefur fundist
nóg um. Ég benti viðkomandi á að það
væri betra að vera „of hress“ en að vera
heima grenjandi í jogginggalla,“ seg-
ir hún hlæjandi. „Ég skil núna hvern-
ig konur fóru að því að gjóta í hellum í
gamla daga.“ IÁH
Mörtu Maríu finnst hún geta allt eftir fæðingu án lyfja:
Einstakt að fæða á
náttúrulEgan hátt
UmSjón: IndíAnA ÁSA HReInSdóttIR
Hippalegir
blóma-
kransar
Þessi hippalegu og sætu hárbönd
fást í Rokk og rósum á Laugaveg-
inum en það er verslunarstjórinn
sjálfur, Anna Soffía Árnadóttir, sem
er hönnuðurinn en Anna Soffía
útskrifaðist sem fatahönnuður frá
Listaháskóla íslands í vor. Hárböndin
eru í ekta seventís stíl en þau eru
eins og blómakrans og eru úr
silkiflaueli.
leikfimi fyr-
ir mömmur
og börn
Baðhúsið býður upp á sniðuga og
skemmtilega tíma fyrir nýbakaðar
mæður sem vilja koma sér í form
eftir barnsburð. nýtt námskeið fer að
hefjast og verða tímarnir snemma á
morgnana. tilvalið fyrir allar mömm-
ur sem eru með börn á aldrinum 6
vikna til tveggja ára en börnin eru
þátttakendur í tímunum.
götutískan
í myndum
Á síðunni www.copenhagenstreet-
style.dk er hægt að fylgjast með
dönsku götutískunni en á síðunni
eru vegfarendur í flottum fötum
stoppaðir og myndaðir. íslenska
skódrottningin Hugrún Árnadóttir
í Kronkron hefur lengi verið þekkt
fyrir flottan og öðruvísi stíl og því
skal engan að undra að finna myndir
af henni á síðunni. Á íslensku síðunni
www.reykjaviklooks.blogspot.
com er verið að gera svipaða hluti.
Sniðugt fyrir þá sem vilja fylgjast
vel með því sem er að gerast í heimi
tískunnar.
Guðrún Atladóttir, höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnari, segir höfuðbeina- og spjaldhryggs-
meðferðir í kringum meðgöngu og fæðingu góða leið til að lina verki. Guðrún er móðir
Írisar Kristinsdóttur söngkonu og fékk að vera viðstödd fæðingu ömmudóttur sinnar.
50 föstudagur 28. ágúst 2009 lífsstíll
Marta María
Jónasdóttir „ef
Helgi fær að ráða
verður hann skírður
einar Áskell.“
„Að mínu mati ætti að bjóða öllum
verðandi mæðrum upp á höfuð-
beina- og spjaldhryggsjöfnun,“ segir
Guðrún Atladóttir, höfuðbeina- og
spjaldhryggsjafnari, en Guðrún er
móðir söngkonunnar Írisar Kristins-
dóttur. Guðrún fékk að vera viðstödd
fæðingu ömmudóttur sinnar og seg-
ir þá lífsreynslu ógleymanlega. Guð-
rún var ekki bara áhorfandi held-
ur tók hún virkan þátt í fæðingunni
með því að beita Írisi höfuðbeina-
og spjaldhryggsjöfnunarmeðferð á
meðan hörðustu hríðarnar stóðu
yfir. Íris, sem fékk engin meirihátt-
ar verkjalyf, segist hafa verið tvístíg-
andi hvort hún ætti að þiggja tækni
móður sinnar. Eftir á hafi hún veg-
ar verið viss um að tæknin hafi gert
gæfumuninn því þessi fæðing hafi
verið mun auðveldari en þegar hún
hafi verið að koma tveimur eldri
börnunum sínum í heiminn. „Þeg-
ar verkirnir byrjuðu fyrir alvöru fann
ég hvernig hún hjálpaði líkamanum
að vinna á hríðarverkjunum,“ segir
Íris sem hefur fulla trú á hæfileikum
móður sinnar. Guðrún segir að það
sé mikil vakning í þessum fræðum á
Íslandi en að hún vildi þó sjá meira
af tækninni í kringum meðgöngu og
fæðingu. „Höfuðbeina- og spjald-
hryggsjafnari vinnur á líkamanum
svo hann lagi sjálfur það sem þarf að
laga og það sem hann er tilbúinn að
laga. Þegar tæknin er notuð í fæðingu
verður útvíkkun auðveldari og verk-
ir minni fyrir vikið og eins gengur
grindin betur til baka eftir fæðingu,“
segir Guðrún og bætir við að höfuð-
beina- og spjaldhryggsjöfnun komi
einnig að góðu gagni þegar mæður
eigi í erfiðleikum með brjóstagjöf.
„Eins er gott fyrir nýfæddu börnin að
fá meðferð því það myndast snúning-
ur á höfuðkúpuna þegar börnin fara
í gegnum fæðingarveginn. Höfuð-
beina- og spjaldhryggsjöfnun flýtir
fyrir að snúningurinn gangi til baka.
Þessi aðferð er líka ein sú besta sem
til er þegar konur mjólka ekki nægi-
lega mikið því með hjálp meðferðar
kemst mjólkurflæðið af stað.“
Indíana Ása Hreinsdóttir
ógleymanleg
lífsreynsla
Guðrún og Íris
Glæsilegar mæðgur.
Mikla trú á mömmu
„Þegar verkirnir byrj-
uðu fyrir alvöru fann ég
hvernig hún hjálpaði
líkamanum að vinna á
hríðarverkjunum.”