Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2009, Side 6
Sandkorn
n Styrmir Gunnarsson eyddi
drjúgum tíma í Seðlabank-
anum áður en Davíð Odds-
son var sviptur lifibrauði sínu.
Víst er að Davíð hafði aðgang
að mörg-
um gögn-
um sem
tengjast
bankahrun-
inu. Hafi
einhverj-
ar glósur
hrokkið af
borði hans
má búast
við að þær birtist í Styrmis-
bókinni. Það er því full ástæða
til bjartsýni um að eitthvað
góðmeti verði í bókinni.
n Jóhanna Sigurðardóttir
og Steingrímur J. Sigfússon
eru sögð full bjartsýni á að
stjórnarsamstarfið gangi eftir
að órólega deildin í VG sættist
á Icesave.
Þegar er
hafin gerjun
varðandi
ráðherra-
hrókering-
ar. Til stóð
að fækka
ráðuneyt-
um og ráð-
herrum en óvíst er að staðið
verði við það. Lífsnauðsynlegt
þykir fyrir VG að fá Ögmund
Jónasson í ráðherrastól en
undirliggjandi er samningur
um að hann fái inni aftur. Þá
eru uppi bollaleggingar um að
Atli Gíslason, þingmaður og
mannréttindafrömuður, taki
við dómsmálaráðuneytinu af
Rögnu Árnadóttur.
n Ekki eru allir ánægðir með
það innan Samfylkingar að
utanþingsráðherrarnir, Gylfi
Magnússon og Ragna Árna-
dóttir, verði látin víkja. Vand-
ræði vinstri
grænna
eru þau að
óeirðasegg-
irnir innan
flokks verða
að fara í
ríkisstjórn
til að skapa
frið. Að því
gefnu að ráðherrum verði ekki
fækkað í heildina mun eitt
ráðherrasæti losna fyrir VG
með því að óháðu ráðherrarn-
ir víki. Þá er viðbúið að Jóni
Bjarnasyni sjávarútvegsráð-
herra verði gert að hætta. Þar
með losna tveir stólar fyrir
Atla Gíslason og Ögmund
Jónasson. Samfylkingin mun
hafa miklar efasemdir en þar
gera menn sér grein fyrir að
þetta snýst um líf eða dauða
ríkisstjórnar.
6 föstudagur 23. október 2009 fréttir
Kynningarfundir voru haldnir í fjór-
um skólum í norðanverðum Grafar-
vogi, Engjaskóla, Korpuskóla, Víkur-
skóla og Borgarskóla á tímabilinu 1.
- 14. október. Tilefnið var að kynna til-
lögu um að safnskóli yrði stofnaður í
Engjaskóla þar sem unglingadeildum
úr þessum fjórum skólum yrði steypt
saman. Talsverð óánægja ríkir meðal
íbúa í Grafarvogi vegna þessarar til-
lögu sem er enn á byrjunarstigi.
Ætlar að mótmæla
„Aðallega finnst mér að börn eigi að
fá að vera börn eins lengi og hægt er.
Einnig tel ég að í þjóðfélaginu eigi að
vera sem mest af blönduðum aldri
og ekki eigi að einangra aldurshópa.
Við lærum mest af hvert öðru og ef
við höfum ekki fyrirmyndir á öðrum
aldri er hætta á því að við verðum fyr-
ir áhrifum hvert af öðru og stefnulaus,
eins og til dæmis varðandi fíkniefni,“
segir Gunnar Þór Gunnarsson, for-
eldri í Borgarhverfi.
Honum finnst hugmyndin um
safnskóla afleit og telur flesta foreldra
í Borgarskóla vera sömu skoðunar.
„Það er mat okkar að flestir í hverf-
inu séu á móti fyrirhuguðum safn-
skóla og að gallarnir séu mun fleiri en
kostirnir,“ segir Gunnar. Hann segir að
fullyrt hafi verið á fundinum í Borgar-
skóla að tillagan yrði ekki samþykkt ef
foreldrar væru á móti henni. Yrði safn-
skóli settur á laggirnar myndi Gunnar
hins vegar taka til sinna ráða.
„Ég myndi örugglega mótmæla
þessu með pottum og pönnum.“
Greiðari leið fyrir dóp
DV talaði við annað foreldri í Grafar-
vogi sem vill ekki láta nafns síns getið.
Því líst heldur ekkert á þessa hugmynd
og telur safnskóla auka vandamál í
hverfinu.
„Mér finnst þetta fáránlegt. Ég held
að það komi mjög illa út að safna öll-
um unglingum saman á einn stað.
Það eykur á félagsleg vandamál ef
þau koma upp, eins og með vímuefni.
Aðgangur fyrir þá sem selja vímuefni
verður líka greiðari,“ segir foreldr-
ið. Því finnst miður að með myndun
safnskóla myndu eldri krakkar ekki
líta eftir yngri krökkum eins og tíðkast
í mörgum grunnskólum. Enn fremur
gætu sum systkini ekki verið saman
í skóla. Foreldrið segir gegnumgang-
andi óánægju með þessa hugmynd.
„Ég finn fyrir óánægju og ég held
að við séum öll sammála um að þetta
er ekki sniðugt og verður ekki hag-
kvæmt heldur. Þetta kostar bara meiri
vandamál, meira skutl, meiri umferð
og meiri hættu fyrir krakkana,“ segir
foreldrið. Það ætlar að íhuga að flytja
úr hverfinu ef tillagan verður sam-
þykkt.
„Þetta hefur samfélagslega nei-
kvæð áhrif á uppeldið. Unglingar eru
svo móttækilegir fyrir áhrifum frá jafn-
ingjum. Ef einhver byrjar í einhverju
smitar það út frá sér og erfitt að halda
utan um það ef einingin er stór.“
Fjölbreyttara námsframboð
Tillaga þessi var hugmynd sem nokkr-
ir foreldrar í norðanverðum Grafar-
vogi sendu borgarstjórn Reykjavíkur
24. apríl árið 2007. Í nóvember í fyrra
var skipuð safnskólanefnd til að vinna
úr tillögu menntaráðs og hefur þessi
nefnd nú sent frá sér skýrslu.
Í skýrslunni er farið yfir kosti og
galla safnskóla. Jafnframt er tekið
fram að við skipulagningu skólahalds
í norðanverðum Grafarvogi í byrjun
10. áratugar síðustu aldar hafi ver-
ið gert ráð fyrir fjögur hundruð nem-
endum. Samkvæmt nýjustu spám
verða nemendur á bilinu 220 til 330 á
næstu árum. Þessi nemendafjöldi ger-
ir það að verkum að starfið í unglinga-
deildum verður ekki eins fjölbreytt og
í stærri skólum. Með safnskóla auk-
ast möguleikar í skólastarfinu, náms-
framboð verður fjölbreyttara og fé-
lagslíf öflugara.
Töluverð andstaða
Að sögn Marinós F. Einarssonar, að-
stoðarskólastjóra Engjaskóla, er málið
enn á byrjunarstigi. Hann segist hafa
fundið fyrir óánægju íbúa Grafarvogs
með tillöguna.
„Það hefur verið töluverð andstaða.
En þau sjónarmið hafa komið meira
fram heldur en hinna sem eru hlynnt.
Maður veit svo sem ekki hvernig stað-
an er. Það er óskaplega erfitt að átta sig
á þessu. Það er mikil vinna eftir. Þótt
það hafi verið gerð tillaga um Engja-
skóla sem safnskóla er það ekki heil-
agt. Þetta er allt á byrjunarreit,“ segir
Marinó. Hann vill ekki tjá sig um skoð-
anir sínar á tillögunni.
„Ég vil helst ekki tjá mig um það því
þetta er á þannig stigi að það er ekki
gerlegt að ég stöðu minnar vegna segi
mína skoðun.“
Foreldrar í uppnámi
Tillaga um sameiningu unglingadeilda allra skóla í norðanverðum Grafarvogi í einn
safnskóla í Engjaskóla vekur óánægju meðal íbúa hverfisins. Gunnar Þór Gunnars-
son, foreldri í Borgarhverfi, segist ætla að mótmæla ef tillagan verður samþykkt.
Annar íbúi óttast aukin félagsleg vandamál í tengslum við fíkniefni.
„Aðgangur fyrir þá sem
selja vímuefni verður
líka greiðari.“
lilja KaTrín GunnarsdóTTir
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
afleit hugmynd Gunnar segir flesta í
Borgarhverfi vera mótfallna safnskóla í
Engjaskóla.
„Skömmum og hótunum rigndi yfir
mig. Það eina sem ég vildi gera var
að sýna séra Gunnari stuðning. Mér
finnst þetta bara svo skrítið. Ég er bara
kona úti í bæ sem hringir á útvarps-
línu til að segja mína skoðun,“ segir
Sigrún Reynisdóttir miðill.
Deila séra Gunnars Björnssonar,
sérþjónustuprests hjá Biskupsstofu,
við Karl Sigurbjörnsson, biskup Ís-
lands, hefur tekið á sig nýja mynd. Sig-
rúnu varð það á að lýsa yfir stuðningi
við séra Gunnar í opnum símatíma
á Útvarpi Sögu og skora á Karl bisk-
up að segja af sér embætti. Í kjölfarið
hringdi fjöldi nafnlausra einstaklinga
heim til Sigrúnar.
„Þetta fólk sagði mér að það væri
eins gott að ég héldi mér saman, ann-
ars hlyti ég verra af. Ef ég héldi ekki
kjafti yrði ég hreinlega tekin í gegn.
Ég átti ekki von á svona hótunum. Ég
tek svo sem ekki mikið mark á þessu
en mér líður auðvitað ekki vel yfir
þessu. Ég hrökk alveg við að fá svona
á mig. Þó svo að ég tjái mig um málið
er óþarfi að ráðast að manni. Það virð-
ist vera voða mikil illska í þessu máli,“
segir Sigrún.
Nærri tugur einstaklinga hringdi
heim til Sigrúnar í vikunni og hót-
aði henni. Aðspurð segir hún fólkið
af báðum kynjum og á öllum aldri.
Sigrún segir aðeins einn einstakling
hafa hringt og verið jákvæður í henn-
ar garð. „Það virðist ekki vera að mað-
ur megi segja skoðanir sínar, ekki fer
mikið fyrir málfrelsinu þarna. Ég var
bara að tjá mína skoðun.
Ég er stuðningsmaður séra Gunn-
ars. Ég þekki hann ekki neitt og er ekki
sóknarbarn hans. Framkoma biskups-
ins í garð séra Gunnars er ekki góð. Ég
skora á hann að segja af sér,“ segir Sig-
rún.
„Fólkið hótaði ekki bara mér held-
ur var því mikið í mun að bera út ljótar
slúðursögur um prestinn. Ég bað fólk-
ið vinsamlega um að hætta slíku því ég
er þannig manneskja sem hlustar ekki
á slúðursögur. Þarna er verið að knýja
mig til að halda mér saman. Hótan-
irnar voru ljótar og alvarlegar. Ég er að
íhuga hvort ég fari lengra með málið.
Ef þessar hótanir halda áfram er engin
spurning hvað ég geri.“ trausti@dv.is
sigrún reynisdóttir varð fyrir aðkasti eftir stuðning við séra Gunnar Björnsson:
Sagt að halda sér saman
í sjokki Sigrúnu er verulega brugðið og
skilur lítið í hegðun þeirra einstaklinga
sem hótuðu henni.