Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2009, Blaðsíða 64
n Fjölmiðlakonan Ellý Ármanns-
dóttir birtir gjarnan fréttir af Holly-
wood-stjörnum á Vísi, sem fjalla
helst um líkamslýti þeirra. Á mið-
vikudaginn sló Ellý öll fyrri met
þegar hún birti myndir af söngkon-
unni íðilfögru Shakiru. Í fréttinni
sagði frá meintu „bakspiki“ Shakiru.
Með fylgdi mynd af söngkonunni
þar sem hún sneri upp á líkamann í
trylltum dansi. Blogg- og Facebook-
heimar loguðu enda er Shakira
tággrönn og þykir ein glæsilegasta
kona á byggðu bóli. Áður en langt
um leið veittu lesendur því athygli
að fréttinni hafði verið breytt og
hvergi var minnst á
bakspik. Skömmu
síðar hvarf fréttin
svo alveg af Vísi.
Miðað við við-
brögðin á netinu
má búast við
því að Ellý
hafi verið tek-
in á teppið af
yfirmönnum
sínum.
Er ekki AGS bölvuð
pest?
Fréttaskot 512 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður
aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt
að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar.
„Sumir vinir mínir eru brjálaðir út
í mig og finnst þetta bara vera pen-
ingaeyðsla. Ég hlusta ekki á það. Mér
myndi finnast gaman ef vinir mín-
ir myndu gera eitthvað svipað,“ segir
Ágúst Ingason.
Ágúst fermist í mars og hefur stofn-
að Facebook-hóp þar sem hann heit-
ir því að gefa fimmtíu þúsund krónur
af fermingarpeningunum sínum til
ABC hjálparstarfs ef fimmtán þúsund
manns skrá sig í hópinn.
Ágúst var ekki lengi að ná tak-
markinu og á fimmtudag, aðeins fjór-
um sólarhringum eftir að hópurinn
var stofnaður, voru fimmtán þúsund
manns búnir að skrá sig og fjöldinn
eykst með hverri klukkustundinni.
„Ég bjóst ekki við þessu. Ég hefði
verið ánægður með hundrað en þeir
skráðu sig bara eftir fyrsta klukkutím-
ann. Ég sendi boð til allra vina minna
og þannig gerðist þetta koll af kolli,“
segir Ágúst.
Meðlimir hópsins eru einstak-
lega ánægðir með framtak Ágústar og
senda honum fallegar vina- og bar-
áttukveðjur í gríð og erg. Ágúst boðar
líka góðan boðskap með Facebook-
hópnum.
„Ég ætlaði alltaf að gefa peninginn
en takmarkið með því að fá fimmtán
þúsund manns í hópinn var að sýna
fólki hvað ég er að gera. Ég er að reyna
að sýna fólki að lífið er ekki bara pen-
ingar.“ liljakatrin@dv.is
Ellý
þögguð?
Lífið er ekki bara peningar, segir fermingardrengurinn Ágúst Ingason:
gEfur fErmingarpEninga í hjálp
n Dagur Bergþóruson Eggerts-
son, borgarfulltrúi og varaformaður
Samfylkingarinnar, hefur upplýst
Facebook-vini sína um að fimmti
fjölskyldumeðlimurinn, sonurinn
sem Degi og konu hans fæddist
nýlega, hafi fengið nafn um helg-
ina. Nafnið er ekki af verri endan-
um, eins og Dagur sjálfur bendir
á, en drengurinn er
nefndur eftir afa
sínum, föður
Dags, og í anda
fjölskylduhefð-
arinnar er ungi
sveinninn að vita-
skuld kenndur
við báða
foreldra
sína og
heitir Egg-
ert Örnu-
son Dags-
son.
Sonur
forEldra Sinna
n Lilja Mósesdóttir, þingmað-
ur Vinstri-grænna, veiktist mikið
síðastliðinn mánudag og benda
einkennin til þess að hún sé með
svínaflensu. Lilja hefur þó sýnt það
og sannað að hún er mikið hörkutól
og lét flensuna ekki stöðva sig í að
skrifa stóra og mikla grein þar sem
hún gagnrýnir Alþjóðagjaldeyris-
sjóðinn harðlega. Greinin birtist í
Morgunblaðinu á fimmtudag og þar
lýsir Lilja andúð
sinni á vinnubrögð-
um sjóðsins. Lilja
hefur að undan-
förnu verið sögð
á útleið úr
vinstri-græn-
um en í sam-
tali við DV.is
á fimmtu-
dag vísaði
hún þeim
orðrómi á
bug.
ræðSt gEgn agS
mEð SvínaflEnSu
Gjafmildur ágúst ætlar að halda áfram
að styrkja hjálparstarf í framtíðinni.
H&N-myNd HeIða HelGadóttIr