Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2009, Blaðsíða 44
Mannaveiðarinn Raðmorðingi frá Alaska lét sér ekki nægja að
kaupa þjónustu vændiskvenna. Hann rændi þeim og misþyrmdi og sleppti
þeim síðan lausum út í villta náttúruna. Síðan elti hann þær sem skepnur
væru. Veiðilendur morðingjans voru í Knik River-dalnum, skammt frá bænum
Anchorage, sem var vinsæll veiðistaður. Eitt fórnarlamba morðingjans slapp
fyrir einskæra heppni og böndin bárust að afar venjulegum manni sem hafði
verið vel liðinn af nágrönnunum, var afreksmaður með tilliti til veiða, en gekk ekki
alveg heill til skógar andlega. Lesið um mannaveiðarann í Alaska í næsta helgarblaði DV.
KróKódílamaðurinn
Joe Ball rak krána Sociable í Elmendorf í Texas. Helsta aðdráttarafl krárinnar var krókódílapyttur með
fimm krókódílum. Gestir gátu gegn gjaldi fylgst með þegar Joe gaf skepnunum að eta. Oftast var um lifandi
ketti og hunda að ræða, en síðar kom í ljós að fleira var á matseðlinum.
Joseph „Joe“ Ball fæddist 7. jan-
úar, 1896. Hann var bandarískur
raðmorðingi og gekk undir mörg-
um nöfnum. Hann var kallaður
Krókódílamaðurinn, Slátrarinn
frá Elmendorf og Bláskeggur Suð-
ur-Texas.
Eftir að hafa sinnt skyldu sinni
á vígvöllum fyrri heimsstyrjald-
arinnar gerðist hann bruggari
og sá þeim sem efni höfðu á fyr-
ir ólöglegu áfengi. Þegar bannár-
in runnu sitt skeið á enda upp úr
1930 opnaði hann krá í Elmen-
dorf í Texas. Kráin hét því aðlað-
andi nafni Sociable Inn, sem gæti
útlagst Krá hinna félagslyndu.
Helsta aðdráttarafl krárinnar var
tjörn sem hann hafði búið til, en
þar hélt hann fimm krókódíla.
Gegn gjaldi gátu gestir fengið að
berja krókódílana augum og naut
það mikilla vinsælda, sérstaklega
á matmálstímum krókódílanna
þegar Joe gaf þeim heimilisdýr í
matinn, einkum lifandi ketti og
hunda.
Hélst illa á þjónustustúlkum
Það var fleira en krókódílatjörn-
in sem laðaði gesti, einkum og
sér í lagi karlmenn, að Krá hinna
félagslyndu því þjónustustúlkur
Joes voru alla jafna mikið augna-
yndi. Reyndar var haft á orði að
Joe héldist illa á þjónustustúlk-
um á kránni, en hvað sem því
leið gætti lítillar lognmollu þar og
staðurinn iðaði af gestum.
En Joe var ekki vel liðinn af
öllum þrátt fyrir vinsældir krár-
innar. Einn granna hans kvartaði
yfir megnri stækju sem barst frá
krókódílapyttinum og brást Joe
hinn versti við og hótaði grann-
anum með skambyssu.
Í september 1937 tilkynntu
ættingjar einnar þjónustustúlku
Joes Ball, Minnie Gotthardt, að
hennar væri saknað, en Joe hafði
svör á reiðum höndum og sagði
að hún hefði hætt eftir að hafa
fengið annað starf.
Greiddi leið þjónustustúlku
Útskýring Joes Ball var tekin góð
og gild enda ekki margt sem gaf
tilefni til annars. Eftir skamman
tíma var tilkynnt um aðra þjón-
ustustúlku sem saknað var. Um
var að ræða Júlíu Turner sem
einnig hafði þjónað til borðs á krá
Joes.
Joe fullyrti að Júlía hefði, líkt og
Minnie, hætt vegna betra starfs.
En eitt stakk í stúf; Júlía hafði skil-
ið öll sín föt eftir. Joe Ball vafðist
ekki tunga um tönn: Júlía Turn-
er hafði lent í heiftarlegu rifr-
ildi við herbergisfélaga sinn og
vildi komast á brott sem fyrst. Joe
hafði aumkað sig yfir Júlíu og gef-
ið henni fimm hundruð dali svo
hún gæti farið sem fyrst.
Sumar á lífi, aðrar horfnar
En fleiri konur áttu eftir að hverfa
og skömmu síðar var tilkynnt
um tvær sem ekkert hafði spurst
til. Önnur þeirra hafði stofnað
bankareikning nokkrum dögum
áður en hún hvarf, en hafði ekki
tekið aurana sína með þegar hún
hvarf.
Þegar hér var komið sögu voru
farnar að renna tvær grímur á
lögregluyfirvöld og því settu þau
saman lista yfir alla þá sem unnið
höfðu fyrir Joe Ball.
Margir þeirra fundust á lífi, en
eftir því var tekið að fleiri en tólf
höfðu horfið og verið tilkynnt um
hvarf þeirra. Þeirra á meðal voru
tvær fyrrverandi eiginkonur Joes
Ball.
Lánið svíkur Joe
Þrátt fyrir að lögreglan væri
óþreytandi við að yfirheyra Joe
Ball hélt hann ávallt fram sakleysi
sínu. Hann hvikaði ekki frá fyrstu
útskýringum sínum og þar sem
lítið var um áþreifanleg sönn-
unargögn gegn honum var þeim
sem saknað var bara bætt á lista
yfir þá sem saknað var og Joe virt-
ist laus allra mála.
En þann 23. september 1938
hljóp snuðra á þráðinn er gam-
all nágranni Joes gaf sig fram við
lögreglu. Sá sagði lögreglunni að
hann hefði séð þegar Joe skar kjöt
af mannslíkama og gaf krókódíl-
unum.
Á meðan lögreglan íhugaði
hvaða skref hún tæki bar annan
mann að garði hjá lögregluemb-
ættinu í Bexar-sýslu. Sá sagði
John Gray lögreglustjóra af illa
þefjandi tunnu sem Joe hafði
skilið eftir fyrir aftan hlöðu syst-
ur sinnar. Að sögn mannsins var
engu líkara en tunnan innihéldi
eitthvað dautt.
Systrir Joes er samvinnuþýð
John Gray ákvað að heimsækja
systur Joes Ball, ásamt aðstoð-
armanni sínum, John Kleven-
hagen. Þegar þeir komu á heim-
ili systurinnar var tunnan horfin,
en hún var samvinnuþýð og stað-
festi frásögn mannsins.
Því varð það úr að John og
John ákváðu að heimsækja Joe
Ball enn eina ferðina. Þegar þeir
komu á krána tilkynntu þeir Joe
að hann yrði færður til San Ant-
onio til yfirheyrslu. Hann óskaði
leyfis til að loka kránni áður og
var það auðsótt mál.
Joe teygaði þá í snatri einn
bjór, gekk að kassanum og opn-
aði hann. Þaðan tók hann skam-
byssu og áður en Gray og Kleven-
hagen fengu rönd við reist hafði
Joe skotið sig í hjartastað.
Kjötleifar við tjörnina
Þess var ekki langt að bíða að
fjöldi lögreglumanna grann-
skoðaði krá Joes og nágrenni
hennar. Rotnandi kjöt var á víð
og dreif í kringum krókódíla-
pyttinn, og einnig fannst blóðug
öxi með klístruðu hári. Ekki var
fráleitt að ætla að krókódílarnir
hefðu fengið meira en hunda og
ketti í matinn og lögreglan rifjaði
upp þann fjölda fólks sem tengd-
ist kránni og hafði horfið.
Lögregluna renndi í grun að
sá eini sem eitthvað vissi og væri
til frásagnar væri Clifton Wheel-
er, snattari á vegum Joes. Wheel-
er þverskallaðist við í fyrstu og
sagðist ekkert vita, en eftir að
lögreglan hafði þjarmað að hon-
um brotnaði hann niður.
Wheeler samþykkti að sýna
lögreglunni hvar líkamsleifar
tveggja kvenna voru niðurkomn-
ar en hélt því statt og stöðugt
fram að hann hefði ekki vitn-
eskju um fleiri fórnarlömb.
Frásögn Wheelers
Eitt fórnarlamba Joes var Hazel
Brown, kærasta hans. Að sögn
Wheelers hafði Joe skipað hon-
um eitt kvöld eftir mikla drykkju
að sækja teppi og brennivín. Síð-
an fóru þeir á bíl Joes og náðu í
stóra tunnu á býli systur Joes og
óku niður að á.
Wheeler fullyrti að Joe hefði
hótað honum með skambyssu og
neytt hann til að taka gröf og síð-
an opnuðu þeir tunnuna. Í henni
var lík Hazel Brown og fnykurinn
nánast óbærilegur. Að eigin sögn
neitaði Wheeler upphaflega að
aðstoða við að sundurhluta lík-
ið, en vegna þess hve ölvaður Joe
var átti hann í erfiðleikum með
bæði að halda og saga. Því varð
úr að Wheeler hélt líkinu föstu
og Joe sagaði. Í hvert skipti sem
lyktin varð þeim um megn tóku
þeir sé hlé og drukku meira. Loks
tókst þeim að klára verkið og lík-
amshlutarnir voru grafnir nema
höfuðið sem var kastað á bál.
Minnie var barnshafandi
Hvað Minnie viðvék hafði Joe
tekið hana í ferðalag til Ingles-
ide, skammt frá Corpus Christi,
og fann afskekktan stað. Wheel-
er sagði lögreglunni að þangað
komin hefði Joe sest að drykkju
ásamt Minnie og notaði tækifær-
ið þegar hún gáði ekki að sér og
skaut hana í ennið.
Að sögn Wheelers var ástæð-
an fyrir morðinu sú að Minnie
var barnshafandi og Joe kærði sig
ekki um það því það hefði trufl-
andi áhrif á ástarsamband sem
hann átti við Dolores nokkra.
Joe og Wheeler grófu lík
Minnie og fann lögreglan líkið
eftir að hafa farið eftir leiðbein-
ingum Wheelers.
Á Krá hinna félagslyndu fann
lögreglan fjölda ljósmynda af
kvenfólki og stóðu vonir lög-
reglunnar til að myndirnar gætu
varpað ljósi á fleiri morð. En það
fór á annan veg því aldrei sönn-
uðust tengsl á milli Joes Ball,
Krókódílamannsins, og kvenn-
anna á ljósmyndunum.
UmSjón: KoLbEinn þoRStEinSSon, kolbeinn@dv.is
44 föstudagur 23. október 2009 sakaMál
Við opnum nýja Ísbúð og veitum 30% kynningarafslátt
af öllum ísréttum, samlokum, salötum og gosi
17-26 okt.
Nýbýlavegi 32 Nýbýlavegi 32
Opið til 22:00 alla daga
Að eigin sögn neitaði Wheeler upphaflega að
aðstoða við að sundurhluta líkið, en vegna þess
hve ölvaður Joe var átti hann í erfiðleikum með
bæði að halda og saga.
Joe Ball Gerði vel
við krókódílana sína.