Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2009, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2009, Blaðsíða 20
20 föstudagur 23. október 2009 fréttir Niðurstöður nýrrar skýrslu um kostnað vegna líflátsdóma í Bandaríkjunum eru sláandi. Þrátt fyrir að yfirvöld í Bandaríkjunum leggi sig víða í líma við að ná fram dauðadómum, oftar en ekki með ærnum fjárhagslegum tilkostnaði, fækkar aftökum. Eftir stendur enn léttari pyngja yfirvalda sem fyrir er léttari en oft áður vegna fjármálakreppunnar. Dýrkeyptir DauðaDómar Á vefsíðu Wichita Eagle/Kans- as.com er að finna áhugaverðar vangaveltur um dauðarefsingar og réttmæti þeirra frá fjárhagslegu sjónarmiði. Horft er til dauðarefs- inga í Kansas-fylki, en ljóst að hægt er að heimfæra umræðuna upp á öll þau fylki sem heimila dauða- refsingar. Í greininni segir að fylkin gætu sparað hundruð milljóna banda- ríkjadala með því að afnema dauðarefsinguna og er þar vitn- að í nýja skýrslu sem kom út á mánudaginn. Skýrslan er unnin af Death Penalty Information Cent- er, samtökum sem rannsakað hafa dauðarefsingar og er í skýrslunni einnig að finna könnun á meðal lögreglustjóra á landsvísu um af- stöðu þeirra til dauðarefsinga. Skýrslan heitir Smart on Crime: Reconsidering the Death Penalty in a Time of Economic Crisis, sem gæti útlagst: Skynsemi gegn glæp- um: Endurskoðun á dauðarefs- ingunni á tímum fjármálakreppu. Í skýrslunni er vitnað til nýlegrar viðleitni yfirvalda í Kansas og öðr- um fylkjum til að afnema dauða- refsinguna á grundvelli fjárhags. Þess má geta að þrátt fyrir að samtökin gefi ekki upp afstöðu sína gagnvart dauðarefsingu hafa þau verið gagnrýnd fyrir andstöðu gegn hennni. Dauðarefsingar krafist en lítið um framkvæmd Fjórum árum eftir að hæstiréttur Bandaríkjanna bannaði dauða- refsingar árið 1972 heimilaði hann að fylki gætu krafist dauðarefsing- ar fyrir ákveðna tegund glæpa. Yf- irvöld Kansas-fylkis hlupu ekki til, en tóku þó upp dauðarefsingar að nýju árið 1994. Í skýrslunni segir að nú þegar léttist pyngja hins opinbera eyði fjöldi fylkja fúlgum fjár í að krefj- ast dauðarefsingar, en í sárafáum fylkjum séu dauðarefsingar fram- kvæmdar. Á betrunarstofnun El Dorado bíða níu fangar á dauða- deildinni, en í Kansas hefur dauða- refsing ekki verið framkvæmd síð- an 1965. Því er ekki að undra að sam- tökin sem standa að skýrslunni velti vöngum yfir réttmæti þess að krefjast og leita eftir dauðadómum yfir glæpamönnum. „Á tímum sársaukafullra nið- urskurða veita fylki ómældum fjármunum til kerfis sem skilar sí- fækkandi fjölda dauðadóma, og aftökum sem nánast eingöngu eru framkvæmdar í einum lands- hluta,“ segir í skýrslunni Árangurslítil leið gegn ofbeldisglæpum Auk þess sem leiddar eru lík- ur að því í skýrslunni að með til- liti til kostnaðar sé erfitt að rétt- læta dauðarefsingar kemur fram í könnun sem gerð var á meðal lög- reglustjóra á landsvísu að dauða- refsing er neðst á lista yfir meðul sem talin eru árangursrík í barátt- unni gegn ofbeldisglæpum. Í könnun á meðal fimm hundr- uð lögreglustjóra sem valdir voru af handahófi kom í ljós vilji þeirra til að verja meira fé í ráðningar fleiri lögreglumanna. Einnig var það skoðun þeirra að auknar fjár- veitingar til mála sem vörðuðu of- notkun eiturlyfja og áfengis væru líkegri en dauðadómar til árang- urs í baráttunni gegn ofbeldis- glæpum. Pólitískt mál Norman Williams, lögreglustjóri í Wichita, sagði að niðurstöður skýrslunnar kæmu sér ekki á óvart og að kostnaður vegna dauðadóma væri áhyggjuefni. „Hvernig er mannslíf metið til fjár?“ sagði Williams og bætti við að það væri nokkuð sem yrði að skoða, „sérstaklega þegar horft væri til réttlætis fyrir fjölskyldur fórnar- lambanna.“ Nærri sjö af hverjum lögreglu- stjórum sem spurðir voru voru hins vegar þeirrar skoðunar að dauða- refsingin væri pólitískt málefni. Könnunin leiddi í ljós að 69 prósent aðspurðra lögreglustjóra voru sam- þykkir fullyrðingunni: „Stjórnmála- menn styðja dauðarefsinguna sem táknræna leið til að sýna harða af- stöðu sína gegn glæpum.“ Langur undirbúningur og áfrýjanir Kansas er eitt þeirra ellefu fylkja sem í ár juku viðleitni til að afnema dauðarefsingar. Lagt var fram frum- varp sem ætlað var til skoðunar áður en formlega yrði kosið um það, sem sennilega verður gert í janúar. „Við höfum haft dauðarefsingu síðan 1994 og við borgum ennþá fyrir framgang ferlis þar að lútandi, en árangurinn er lítill,“ sagði Caro- lyn McGinn, öldungadeildarþing- maður repúblikana fyrir Sedgwick- sýslu, en hún er stuðningsmaður áðurnefnds frumvarps. Á sama tíma, að sögn McGinn, eru skorn- ar niður framkvæmdaáætlanir sem hugsanlega kæmu í veg fyrir glæpi sem varða dauðarefsingu. Kostnaður vegna dauðadóma er meðal annars tilkominn vegna langs undirbúningstíma áður en mál er dómtekið, en undirbúningur getur tekið allt að tveimur árum, og svo taka við áfrýjanir sem geta tekið allt að áratug eða lengur. Eitt mál af hverjum þremur Að mati McGinn væri fjármunum sem varið er til að ná fram dauða- dómum betur varið í forvarnarað- gerðir. Endurskoðun árið 2003 í Kansas leiddi í ljós að mál þar sem dauða- refsingar var krafist kosta 70 pró- sentum meira en önnur. Carolyn McGinn telur lífstíðar- dóm án möguleika á reynslulausn mun vænlegri kost en dauðadóma því hægt væri að eyða minna með því að „læsa þá [glæpamennina] inni og fjarlægja þá úr samfélag- inu“. Í skýrslunni eru leiddar líkur að því að á síðustu þremur áratug- um hafi kostnaður í Bandaríkjun- um vegna dauðarefsinga verið 2,5 milljarðar bandaríkjadala. Enn- fremur segir í skýrslunni að aðeins einu máli af þremur þar sem krafist er dauðarefsingar lykti með dauða- dómi og aðeins einn af hverjum tíu sem hljóta dauðadóm er tekinn af lífi. KoLbEinn þorstEinsson blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is kostnaður vegna DauðaDóma 508.000 dalir: Kostnaður í Kansas vegna réttarhalda þar sem farið er fram á dauðarefsingu (2003) 32.000 dalir: Kostnaður í Kansas vegna réttarhalda þar sem ekki er farið fram á dauðarefsingu (2003) 2,16 milljónir dala: Áætlaður kostnaður á hverja aftöku í Norður-Karólínu (1993) 250 milljónir dala: Áætlaður kostnaður á hverja aftöku í Kaliforníu (2005) 71 milljón dala: Kostnaður í Maryland fyrir öll mál þar sem farið var, árangurs- laust, fram á dauðarefsingu (2008) 620.932 dalir: Meðalkostnaður fyrir vörn í málum sem vörðuðu dauðarefsingu (2008) 192.333: Meðallögfræðikostnaður í málum sem vörðuðu dauðarefsingu en enduðu með samkomulagi (1998) 55.772 dalir: Meðalkostnaður í málum þar sem hægt var að krefjast dauðarefs- ingar en var ekki gert (1998) Heimild: Death Penalty Information Center Dauðarefsingum mótmælt Forsendur andstæðinga dauðarefsinga eru ekki endilega af fjármálalegum toga. MynD AFP „Gamli neisti“ Old Sparky er gælunafn rafmagnsstóla sem notaði r voru við aftökur í Arkansas, New York og víðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.