Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2009, Blaðsíða 37
var forstjóri Stöðvar 2 fékk ég mik-
ið frjálsræði til þess að þróa hlutina
í þá átt sem mig langaði. Sem sagt
að byggja upp auðskiljanlega veð-
urþjónustu með auðskiljanlegum
táknum og orðum.“
Siggi segir það alltaf hafa verið
markmið sitt að færa veðurfréttir nær
almenningi. „Ég hef forðast ákveð-
in fræðiorð og reynt að gera þetta
aðgengilegra fyrir alla. Til dæmis er
enn verið að tala um rigningu í lægð-
ardragi og annað slíkt. Fólki er alveg
sama hvaðan þessi rigning kemur. Ef
það er rigning þá er rigning.“ Siggi
segir nauðsynlegt að halda í fræðin
en ekki of fast.
„Ég setti mér það markmið að
veðrið þyrfti ekki að vera leiðinlegt.
Vísindamenn almennt eru allt of mik-
ið að passa sig og eru hræddir við að
segja eitthvað vitlaust miðað við hin
ýtrustu fræði. Þeir eru kannski frek-
ar að reyna að halda einhverju and-
liti gagnvart öðrum fræðimönnum
heldur en almenningi. Það er bara
ekki mitt starf. Ég þjóna almenningi
en ekki öðrum fræðimönnum.“
Fjarlægir yfirmenn
Mikið hefur verið skorið niður hjá
365 undanfarið ár vegna samdráttar
í efnahagslífinu og hefur fjölda fólks
verið sagt upp störfum. Öllum stein-
um hefur eðlilega verið velt við seg-
ir Siggi en þegar kom að því að skera
átti veðurfréttatíma Stöðvar 2 veru-
lega niður eða jafnvel hætta með
hann hafi botninn verið dottin úr
starfi hans.
„Með tilkomu nýs fréttastjóra,
Óskars Hrafns, og nýs ritstjóra Ís-
lands í dag, Freys Einarssonar, urðu
viss kaflaskil í skilningi þeirra og
mínum á hlutverki veðurfrétta. Ég
held svona þegar ég legg saman það
sem fór okkar á milli að þeir hafi haft
minna en engan áhuga á þessu.“ Siggi
segir þessa nýju yfirmenn hafa viljað
skera veðurfréttatíma svo mikið nið-
ur að hann hafi ekki getað við unað
og að allt hans uppbyggingarstarf
hafi því verið farið fyrir lítið. „Þess-
ar nýju hugmyndir voru svo langt frá
því sem ég gat sætt mig við. Allt frá
því að vera bara hreinlega ekki með
veðurfréttir yfir í að hafa bara borða
yfir skjáinn.“
Í kjölfarið á þessu þróaðist með
Sigga mikil óánægja í starfi sem gerði
ekkert annað en að vaxa. „Ég náði
bara aldrei neinum tengslum við
hvorugan þeirra og það reyndist mér
bara mjög erfitt. Ég er vanur að vera
í mjög góðum samskiptum við yfir-
menn mína en þeir yrtu bara ekki á
mann nema maður væri fyrri til. Ég
vissi bara aldrei almennilega hvar
hugur þeirra lá. Það er mjög erfitt að
vera í vinnunni ef maður á ekki sam-
leið með yfirmönnum sínum.“
Veður upp á líf og dauða
Siggi hefur alla tíð litið veðurfrétt-
irnar mjög alvarlegum augum þótt
hann geri eins mikið úr léttleikanum
og mögulegt er þegar vel viðrar. Það
var þarna sem helsti skoðanaágrein-
ingurinn kom fram. Á meðan Siggi
lítur á veðurfréttirnar sem jafnvel
lífsnauðsynlegar hafi yfirmenn hans
talið þær léttvægar.
„Ég ætlast ekki til þess að allir
hafi áhuga á veðurfræði en við verð-
um líka að átta okkur á því hvar við
erum á hnettinum. Við erum á spor-
braut lægðanna og þær rússa hérna
yfir okkur ein af annarri og svo fáum
við hlé inn á milli. Þegar válynd eru
veður getur þetta oft verið spurning
um að vara fólk jafnvel við lífshættu-
legum veðrum eins og því miður
hefur stundum verið raunin. Eitt það
hræðilegasta sem maður lendir í er
að þurfa setja saman spá um veður
þar sem einhver lætur svo lífið.“
Eftir allt sem á undan var gengið
og alla þá vinnu sem Siggi hafði lagt í
að byggja upp veðurfréttirnar á Stöð
2 hafði ekkert annað verið í stöðunni
en að hætta. „Þegar maður er búinn
að vera vakinn jafnt sem sofinn yfir
þessu í þetta mörg ár og er ekki til-
búinn að sjá því kastað á glæ er betra
bara að fara og leyfa þeim að móta
þetta á sinn hátt.“
10 kílóum léttari
Á meðan á þessu deilum stóð átti
Siggi nokkra fundi með Ara Edwald,
forstjóra 365. „Þetta voru allt saman
góðir fundir og ég og Ari áttum góð
samskipti. En síðan fór ég á fund
hans á mánudaginn síðasta og þetta
varð niðurstaðan. Fyrir fram vissi ég
ekki hvaða stefnu sá fundur myndi
taka en hann tók rétta stefnu.“
Það var þungum byrðum af Sigga
létt þegar hann hafði sagt skilið við
Stöð 2 því starfið sem hann hafði
elskað í öll þessi ár hafði snúist upp í
andhverfu sína. „Ég er nú í yfirvigt en
ég er ekki frá því að ég hafi lést um tíu
kíló þegar ég gekk út frá Ara á mánu-
daginn.“ Siggi er þó ekki laus við eft-
irsjá þótt hann horfi bjartur fram á
veginn. „Auðvitað dauðsé ég eftir
starfinu sem slíku þótt ég hafi ekki átt
samleið með nýju yfirmönnunum.
Ég dauðsé líka eftir ákveðnum vin-
um sem ég átti á fréttastofunni. Sú
var tíðin að þarna var ægilega gaman
að vera og þetta var heimsins besti
vinnustaður. En lífið heldur áfram og
ég hef í nægu að snúast.“
Atvinnulaus í einn og hálfan
Í núverandi ástandi hefur Siggi
sennilega slegið einhvers konar met
því hann hafði aðeins verið atvinnu-
laus í eina og hálfa klukkustund þeg-
ar hann var búinn að ráða sig í vinnu
og það á fleiri en einum stað. Eins
og fram hefur komið í fjölmiðlum er
Siggi orðinn veðurfréttamaður Skjás
eins auk þess sem hann segir veður-
fréttir á útvarpsstöðinni Kananum.
„Það er ótrúlega skemmtilegt að
fá svona jákvæð viðbrögð strax og
ég fékk einhver átta atvinnutilboð
þennan dag sem ég hætti. Ég er mjög
ánægður með að vera kominn á Skjá
einn og ég finn fyrir miklum drif-
krafti þar. Maður fær bara gamla fiðr-
inginn aftur. Þar er stefnan fram á við
en á Stöð 2 undir það síðasta fannst
manni hlutirnir stundum ganga aft-
ur á bak.“
Þegar Siggi mætti í sína fyrstu
útsendingu á Skjá einum leið hon-
um eins og hann væri enn á Stöð 2.
„Þarna hitti ég fyrir Ingu Lind sem
ég vann með á Stöð 2, Rakel Otte-
sen sminku, Elínu Sveinsdóttur einn
okkar allra besta pródúsent, hljóð-
menn og marga fleiri.“
Siggi segist ekki komast hjá því að
spyrja sig hvernig fyrirtæki eins og
365 hafi efni á því að segja upp svona
mörgum reynslumiklum starfs-
mönnum eins og gert hefur verið
undanfarið. „Fyrir utan þá sem ég var
að telja upp eru líka Sölvi Tryggva-
son sem er líka á Skjá einum, Svan-
hildur Hólm, Sigmundur Ernir og
margir fleiri. Hafa fyrirtæki almennt
efni á því að flytja frá sér svona mikla
þekkingu og reynslu? Auðvitað kem-
ur alltaf maður í manns stað en þú
kaupir ekki reynslu.“
Þungur í skammdeginu
En veðrið er ekki bara starf Sigga og
yndi. Það hefur einnig mikil áhrif á líf
hans. Því eins og svo margir aðrir Ís-
lendingar glímir Siggi við þunglyndi
í skammdeginu. „Ég verð þungur í
skammdeginu en er mjög meðvitað-
ur um það. Það er þarna mein í haus-
num á mér og þegar myrkrið grúf-
ir yfir þarf ég að sofa meira og verð
þyngri í skapinu.“
Þótt eiginkonan og fjölskylda
Sigga sé meðvituð um þetta getur
skammdegisþunglyndið haft áhrif
á heimilishaldið. „Þá er ég ekki eins
duglegur á heimilinu. Þá er ég gjarn-
ari á að horfa til beddans en ryksug-
unnar.“ Til þess að sporna við því að
skammdegið nái tökum á sér hefur
Siggi brugðið á það ráð að ferðast
til sólarlanda einu sinni, tvisvar eða
oftar á ári. „Þá leita ég í bjartara um-
hverfi og það hjálpar mér mikið að
eiga við þetta.“
Þótt starf veðurfræðingsins kunni
að sýnast rólegt utan frá segir Siggi að
svo sé alls ekki. Þvert á móti fylgi því
mikil streita sem hann eigi oft erfitt
með að losa sig við. „Eftir erfið veð-
ur er hausinn á manni oft uppfullur
af streitu. Læknirinn minn er held-
ur ekki sáttur við hvað það er mikil
streita í mér þannig að ég reyni hvað
ég get til þess að losa hana.“
Missti móður sína
Siggi segist almennt eiga frábært líf
sem hann er þakklátur fyrir. „Ég á
yndislega konu og þrjá syni. Meira
er varla hægt að biðja um,“ en Siggi
hefur upplifað ýmislegt sem hefur
breytt sýn hans á lífið. Hann missti
ungur maður móður sína og elsti
sonur hans hefur glímt við fötlun frá
fæðingu.
„Ég horfði á móður mína tærast
upp í krabbameini og það var al-
veg hrikalegt. Hún var rosalega veik
í heilt ár og hélt varla nokkrum mat
niðri. Ég hugsaði með mér Guð minn
almáttugur, hvernig er hægt að leggja
þetta á fólk. En svo fékk hún hvíldina
blessunin og ég sakna hennar mik-
ið. Hún var alltaf afskaplega góð við
mig.“
Það hefur reynt á hjónin að eiga
fatlað barn. Ekki vegna barnsins
heldur því að vera upp á heilbrigð-
iskerfið komin og þurfa takast á við
alla þá vankanta sem á því er að
finna. „Sonur okkar var spastískur og
flogaveikur en það hefur sem betur
fer allt þróast í rétta átt. Hann keyrir
orðið bíl og er á fullu í Háskólanum.
Ég er ótrúlega stoltur af honum sem
og hinum strákunum mínum.“
Ljótar kjaftasögur
Þegar Siggi er beðinn um að lýsa
sjálfum sér segist hann vera gríðar-
leg tilfinningavera. „Ég er alveg af-
skaplega viðkvæmur. Sjónvarpið
hefur kennt mér að búa til skráp en
hann er götóttur. Það er auðvelt að
særa mig. Sérstaklega ef það er ósatt
slúður eins og stundum er.“
Siggi hefur oft heyrt ljótar sögur
um sjálfan sig og sumar jafnvel svo
slæmar að hann vill ekki hafa þær
eftir. „Einhvern tímann var til dæmis
sagt að ég hefði skyrpt á konu uppi í
Leifsstöð í reiðikasti. Það á sér enga
stoð í raunveruleikanum.“
Siggi er einnig óhræddur við að
láta tilfinningar sínar í ljós og fólk fer
stundum í baklás út af því. „Ef þú hælir
einhverjum líður fólki bara illa. Að vera
væminn er liggur við glæpur núorðið.
Ég skil ekki hvaða stefnu Íslendingar
hafa tekið í þeim efnum. Ég á karlkyns
vini og ég segi við þá án þess að hika
„Strákar mínir, ég bara elska ykkur“.“
Verandi mikil tilfinningavera seg-
ir Siggi það líka hafa verið erfitt að
horfa á eftir hverjum vininum á fætur
öðrum hverfa úr starfi á Stöð 2. „Það
er alltaf erfitt að vera á vinnustað þar
sem þú horfir á eftir vinnufélögun-
um og því lengur sem þú hefur starf-
að með þeim því meira er sjokkið. Ég
er formaður jeppaklúbbs sem heitir
NFS og var jeppaklúbbur fréttastofu
Stöðvar 2. Núna er þetta bara orð-
inn vinaklúbbur því meirihlutanum
af fólkinu hefur verið sagt upp og nú
hef ég bæst í hópinn.“ Margir tengja
nafn klúbbsins við sjónvarpsstöðina
sálugu NFS en það stendur í raun
fyrir núna ferðumst við saman.
Vinirnir standa upp úr
Aðspurður hvað standi upp úr eftir
veruna á Stöð 2 og allt sem á undan
er gengið segir hann að vinskapur-
inn sé þar efstur á blaði. „Allir þeir
ómetanlegu vinir sem maður hef-
ur eignast í gegnum tíðina. Auðvit-
að líka uppbyggingarstarfið í veður-
fréttunum. Þetta hefur verið mikil
rússíbanareið. Þessu fyrirtæki hefur
verið spáð gjaldþroti í 23 ár en lif-
ir enn. Það mun örugglega gera það
áfram um ókomna tíð.“
Siggi segir stuðninginn sem hann
fékk eftir að hann hætti einnig hafa
verið ómetanlegan. „Fólk er búið að
hringja í mig frá öllum landshlutum.
Sumir voru slegnir yfir þessu og það
hefur jafnvel verið hringt í mig með
ekka. Ég vissi að ég væri vel tengdur
við fólkið í landinu eftir að hafa ver-
ið á skjánum svona lengi og hald-
ið léttleikanum á lofti en þetta kom
skemmtilega á óvart.“ asgeir@dv.is
helgarblað 23. október 2009 föstudagur 37
„Ég náði bara aldrei
neinum tengslum við
hvorugan þeirra og
það reyndist mér bara
mjög erfitt. Ég er vanur
að vera í mjög góðum
samskiptum við yfir-
menn mína en þeir yrtu
bara ekki á mann nema
maður væri fyrri til.“
Í þá gömlu góðu Stormurinn þegar hann var að stíga sín fyrstu skref á Stöð 2.
Í faðmi fjölskyldunnar Siggi er mikill fjölskyldumaður og tilfinningavera.