Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2009, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2009, Blaðsíða 30
30 föstudagur 23. október 2009 helgarblað Jónas Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóri DV og bloggari, hefur skrifað bók um starfsævi sína sem blaðamaður og síðar rit- stjóri frá árinu 1961 og fram til árs- ins 2006. Bókin heitir Frjáls og óháður og er verið að henni dreifa í bókaverslanir um þessar mundir. Sagan er að mörgu leyti saga blaðamennsku á Íslandi síðastliðin 50 ár, að hluta til að minnsta kosti, en Jónas er sá blaðamaður íslensk- ur sem haft hefur einna mest áhrif á nútímablaðamennsku á Íslandi með því að innleiða hér á landi gagnrýnni og ágengari fréttaskrif en áður tíðkaðist. Í bókinni rekur hann aðkomu sína að Tímanum, Vísi, Dagblaðinu og síðar sam- einuðu blaði hinna tveggja síðast- nefndu, Dagblaðinu Vísi. DV hefur fengið leyfi frá Sögum til að birta nokkur valin brot úr bókinni í tilefni af útkomu henn- ar. Palladómar: Spyrðir Davíð og Ólaf saman Eins og flestir vita er Jónas Kristjáns- son maður sem talar enga tæpitungu. Hann er frægur fyrir afdráttarleysi og hörku í skoðunum um menn og mál- efni, bæði í leiðurum á sínum tíma og ekki síður á bloggsíðu sinni, jonas.is, sem er með þeim mest lesnu hér á landi. Því þarf ekkki að koma á óvart að ýmsir þjóðkunnir menn fá á bauk- inn hjá honum í bókinni – hann talar svo vitanlega afar vel um marga, sér- staklega fyrrum samstarfsmenn sína. Fyrstan ber að nefna Davíð Odds- son, fyrrverandi forsætisráðherra og núverandi ritstjóra Moggans, sem Jónasi er langt í frá vel við og segist hafa líkt honum snemma við Muss- olini. „Samanlagður ferill Davíðs er skelfilegur. Einkabankar án eftirlits, þúsundmilljarðarugl í bankamálum. Enginn orsakavaldur hrunsins kemst nálægt Davíð Oddssyni,“ segir Jónas um Davíð. Jónas spyrðir Davíð saman við Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Ís- lands, og segir að þeir hafi líkst hvor öðrum að því leytinu til að í þeim hafi blandast saman miklir hæfileik- ar og miklir skapbrestir. „Hann [Inn- skot blaðamanns: Ólafur Ragnar] var greifi eins og Davíð,“ en orð Jónasar má skilja sem svo að báðir hafi þeir reynt að ná sínu fram með valdi. Hann segir eina sögu í bókinni þessu til stuðnings en þá reyndi Ól- afur Ragnar að sýna Jónasi yfirgang. Ritstjórinn segir að það hafi ver- ið í eina skiptið á ferli sínum sem það hafi verið reynt. „Ég man ekki af hverju, en hann hringdi í mig og byrjaði að hella sér yfir mig. Ég sagði: „Ég vinn ekki hjá þér, Óli minn, gerðu þig breiðan annars staðar.“ Ólafi varð orðfall, svo að ég gat kvatt hann. Aldrei síðan talaði hann við mig. Það var frábært, sérstaklega eftir að hann varð forseti og ég þurfti ekki að sæta boðum í veizlur á Bessastöðum. Ís- lenzkir pólitíkusar voru flestir öðru vísi, reyndu að hafa sitt fram með lagi. Ólafur Ragnar einn reyndi að valta yfir menn,“ segir Jónas í bókinn en þó skal geta þess að hann hælir Ólafi einnig nokkuð í bókinni og seg- ir hann hafa verið góðan leiðtoga fyr- ir Alþýðubandalagið. Tvær uppsagnir og ein afsögn Dramatískustu lýsingarnar í bók Jónasar eru af því þegar Jónasi var tvívegis sagt upp störfum á starfsævi sinni og þegar hann sagði upp sjálf- ur. Í fyrsta skipti hætti hann sem rit- stjóri Vísis árið 1975 en síðar hætti hann tvívegis sem ritstjóri DV, eins og nokkuð frægt er orðið. Ástæðurn- ar fyrir því voru þó ólíkar. Fyrri uppsögnin, árið 2001, var líklega tilkomin af pólitískum ástæð- um, samkvæmt Jónasi. Athygli vek- ur að uppsögn Jónasar, samkvæmt lýsingum hans, átti sér sams konar orsakir og uppsögn Ólafs Stephen- sen, ritstjóra Morgunblaðsins, fyrir skömmu en þá var Davíð Oddsson ráðinn í hans stað. Í tilfelli Jónasar tók Óli Björn Kárason við blaðinu af honum en hann er þekktur fyrir að tilheyra heimastjórnararmi Sjálf- stæðisflokksins og er afar hliðhollur Davíð Oddssyni. Í báðum tilfellum voru blöðin líka tekin yfir af hlut- hafahópi sem að miklu leyti tilheyrir þessum armi. Í tilfelli DV: Óla Birni sjálfum og Einari Sigurðssyni, syni Guðbjargar Matthíasdóttur sægreif- ynju úr Eyjum, og í tilfelli Moggans: Guðbjörgu og Gísla Baldri Garðars- syni meðal annarra. Grípum nú niður í frásögn Jónas- ar af þessari uppsögn – millifyrir- sagnirnar eru blaðamanns en ekki Jónasar. Davíð andsnúinn blaðinu „Erfiðleikar DV fyrir og um aldamót- in stöfuðu af ýmsum ástæðum. Sum- part var hafinn sá tími, að nýjar kyn- slóðir keyptu ekki dagblöð. Sumpart var DV staðnað sem stórveldi. Sum- part voru mannaskipti of mikil í lyk- ilstöðum. Einkum var DV þó mjólkað af fjármunum til að borga fyrir stór- veldisævintýri. Þetta endaði með, að fyrirtækið varð mjög skuldsett og átti í erfiðleikum með að fá Landsbank- ann til að lána peninga. Lánabannið var eitt áhugamála Davíðs Oddsson- ar, sem var andsnúinn blaðinu. Sjálfstæðisflokkurinn friðaður Til að friða þann róttæka pólitíska kant var Óli Björn Kárason gerður að meðritstjóra 1. janúar 1999. Sveinn R. Eyjólfsson fékk ekki fé til að halda áfram rekstri, sem var þó í jákvæðum tölum. Fyrir milligöngu Landsbank- ans og Björgólfsfeðga seldi hann mjólkurkúna Óla Birni Kárasyni og félögum hans. Verðið var einn millj- arður króna, dálagleg upphæð í þá daga. Blaðið var selt í tveimur áföng- um. Að loknum síðari áfanganum var mér sagt upp og hætti ég 1. jan- Ritstjóri lítur yfir dramatíska fortíð Jónas Kristjánsson er einn þekktasti blaðamaður og bloggari á Íslandi. Hann hefur nú sent frá sér bók þar sem hann lítur yfir farinn veg á starfsævi sína. Jónas liggur ekki á skoðunum sínum um menn og málefni í bókinni, meðal annars á Ólafi Ragnari og Davíð Oddssyni og lýsir sömuleiðis þeim dramatísku hræring- um á blaðamannamarkaði sem hann var þátttakandi í á 45 ára starfsævi sinni. Við lok dags Í nýrri bók eftir Jónas Kristjánsson, sem fjallar um starfsævi ritstjórans fyrrverandi, er meðal annars sagt frá því hvernig hann hætti þrívegis sem ritstjóri dagblaða af ólíkum ástæðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.