Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2009, Blaðsíða 12
12 föstudagur 23. október 2009 fréttir fréttir
Birna Haraldsdóttir var lögð inn á
sjúkrahús og var þar í þrjá daga eft-
ir að hún ofreyndi sig í Boot Camp.
Í samtali við RÚV sagðist Birna hafa
verið hálfum sólarhring frá alvarlegri
nýrnabilun. Annar einstaklingur var
lagður inn í kjölfarið með sömu ein-
kenni og Birna en ekki með jafnal-
varleg meiðsl. Að sögn Arnalds Birgis
Konráðssonar, stofnanda og annars
eigenda Boot Camp, var sá einstakl-
ingur búinn að vera með flensu í viku
á undan og var undir lækniseftirliti í
einn dag.
Vilja ekki skaða fólk
Arnaldur er búinn að vera í góðu
sambandi við báða þessa einstakl-
inga og finnst miður að þessi tilfelli
hafi komið upp í Boot Camp.
„Alveg sama hvar þú ert að hreyfa
þig ertu á eigin ábyrgð og það er mik-
ilvægt að einstaklingar hlusti á eig-
in líkama. Þótt þú sért undir hand-
leiðslu þeirra bestu ert það alltaf þú
sem hefur bestu tilfinninguna fyrir
því hvernig þér líður. Við gerum allt
til að koma í veg fyrir að fólk ofreyni
sig. Okkur þykir þetta mjög leiðinlegt
og að sjálfsögðu lítum við þetta al-
varlegum augum. Þegar svona kem-
ur upp á skoðum við ferlið og hvað
getur betur farið en ég held að þetta
sé eitthvað sem allir geti lært af.“
Arnaldur segir allt sitt starfsfólk
og þjálfara sækja námskeið í skyndi-
hjálp og að hann vinni náið með
læknum og sjúkraþjálfurum. Í Boot
Camp getur fólk valið sér styrkleika
og er því ekki hent beint út í djúpu
laugina eins og Arnaldur orðar það
sjálfur.
„Þetta er eitthvað sem við viljum
ekki að komi fyrir. Það er ekki okkar
markmið að skaða fólk heldur reyn-
um við að hvetja fólk jákvætt áfram
að gera bara það sem það getur.“
Ekki æfa veikur
Arnaldur segir talsvert um það að
fólk fari sér of geyst og þekkir dæmi
um svipuð tilfelli í öðrum líkams-
ræktarstöðvum, Glitnis-maraþon-
inu og Laugavegshlaupinu. Arnald-
ur segir mikilvægt að fólk geri ekki
meira en það getur til að fyrirbyggja
meiðsl.
„Margir ætla sér um of og ætla
að sigra heiminn og ná árangri í lík-
amsrækt á tveimur vikum. Fólk þarf
að vera meðvitað um að drekka vel,
ekki bara á æfingum, heldur líka fyr-
ir og eftir. Þú þarft að næra þig vel og
tryggja að það sé nóg af kolvetnum í
líkamanum þínum þegar þú tekst á
við átökin. Allur undirbúningur ein-
staklings þarf að vera góður og hann
þarf líka að hugsa vel um hvíld og
svefn. Það er mikilvægt að fara að
öllu með gát og taka eitt skref í einu
en ekki tvö. Það er einnig mikið um
veikindi í þjóðfélaginu og fólk ætti
ekki að fara á æfingar þegar það er
veikt. Þá er ónæmiskerfið margfalt
minna undir það búið að taka á því
og þú ert mun líklegri til að fá verri
harðsperrur og bólgur en ef þú værir
fullhraustur.“
Fólk vanmetur hvíld
Arnaldar segir enn fremur að ofþjálf-
un geti haft mjög alvarlegar afleið-
ingar.
„Það eru mörg varnarviðbrögð
sem líkaminn hefur, ekki bara bólgur
og harðsperrur. Við leggjum mik-
ið upp úr því að fólk ætli sér ekki of
mikið í einu og það láti Boot Camp
æfingar þrisvar til fjórum sinnum í
viku duga. Fólk vanmetur oft hvíld-
ina. Fólk sem er í góðu formi heldur
að líkaminn geti tekið endalaust við
en það er ekki þannig. Einhvers stað-
ar liggja mörkin.“
Getur pissað blóði
Í samtali við RÚV sagðist Birna hafa
verið að æfa upphandleggsvöðva.
Hún var nýbyrjuð að æfa hjá Boot
Camp og næstu tvo daga eftir æfing-
una bólgnuðu handleggir hennar
mikið. Birna sagðist hafa verið hálf-
um sólarhring frá alvarlegri nýrna-
bilun því mikið magn mjólkursýru
hefði farið út í blóðið vegna niður-
brots á vöðvum.
Sigurbjörn Árni Arngrímsson,
dósent í áreynslulífeðlisfræði, segir
það misskilning að meiðsl Birnu hafi
orsakast af mjólkursýrumagni. Hann
segir þau vera vegna þess sem kallað
er lengjandi samdráttur.
„Vöðvi lengist við átak, til dæmis
þegar við hlaupum niður brekku eða
við upphífingar. Í öllum æfingum þar
sem vöðvi lengist við átak getur það
valdið skemmdum í vöðvanum. Ef
vöðvafrumuhimnan rifnar geta ým-
iss konar efni lekið út. Ef þú lendir í
miklum skaða geturðu lent í því að
pissa blóði. Þvagið verður brún- eða
rauðleitt því það kemur svo mikið
míóglóbín úr vöðvafrumuhimnunni
í gegnum nýrun og þau skilja það út í
þvagið,“ segir Sigurbjörn.
Aumur og bólginn
Ef einstaklingur skaðar vöðvafrum-
ur mjög mikið, eins og Birna, lýsir
það sér í mjög miklum sársauka sér-
LiLjA KAtrín GunnArsdóttir
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
„Fólk sem er í góðu
formi heldur að líkam-
inn geti tekið enda-
laust við en það er ekki
þannig. Einhvers staðar
liggja mörkin.“
HÆTTULEG OFÞJÁLFUN
Einkenni ofþjálfunar:
„Fólk sem ekki leyfir líkamanum að hvílast á milli
æfinga getur fundið fyrir alvarlegum einkennum
ofþjálfunar, svo sem svima, ógleði, mjög hröðum
hjartslætti, örþreytu og/eða óþægindum fyrir brjósti.
Einnig geta einkenni, svo sem erfiðleikar með svefn,
sársauki í liðamótum, lystarleysi og/eða hækkaður
hjartsláttur, gert vart við sig eftir þjálfun ef líkaminn
fær ekki næga hvíld.“
* Ráð frá Ágústu Johnson, líkamsræktarþjálfara á doktor.is Mynd: HEiðA HELGAdóttir
Tveir voru nýlega lagðir inn á sjúkrahús vegna
ofreynslu í Boot Camp. Arnaldur Birgir Konráðs-
son, stofnandi og annar eigandi Boot Camp, segir
talsvert um að fólk fari sér of geyst í líkamsrækt.
sigurbjörn Árni Arngrímsson, dósent í áreynslu-
lífeðlisfræði, segir fólk geta skaðað sig þegar það
veit ekki hvað það er að gera.