Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2009, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2009, Blaðsíða 26
um helgina gus gus myndband frumsýnt Gus Gus frumsýnir glænýtt myndband við Thin Ice á Kaffi- barnum á laugardaginn klukkan 21. Thin Ice er önnur smáskífa breiðskífunnar 24/7 sem kom út á dögunum. Myndbandið var tekið upp í Fellahverfinu í Breiðholti og er leikstýrt af þeim Heimi Sverrissyni og Jóni Atla Helgasyni. Í kjölfar frumsýningarinnar þeytir President Bongo skífum til miðnættis. einar fjallar um brekkukotsannál Rithöfundurinn Einar Kárason ætlar að fjalla um Brekkukotsannál eftir Halldór Laxness á Gljúfrasteini á sunnudaginn klukkan 16. Skáldverk- ið kom fyrst út árið 1957, það fyrsta sem kom út eftir að Halldór hlaut Nóbelsverðlaunin 1955. Umfjöllunin er hluti af Verki mánaðarins sem er opinn leshringur sem Gljúfrasteinn stendur fyrir. Eitt verk eftir Hall- dór Laxness er tekið fyrir í hverjum mánuði sem fólk er hvatt til að lesa. Aðgangseyrir er aðeins 500 krónur og það er síður en svo skylda að hafa nýlokið lestri á viðkomandi verki. ástardrykkur- inn frumsýndur Gamanóperan Ástardrykkurinn eftir Donizetti verður frumsýnd í Íslensku óperunni á sunnudag- inn. Þar segir frá hinum unga Nemorino og vinkonu hans Ad- inu og sprenghlægilegum tilburð- um þeirra við að ná saman. Inn í atburðarásina blandast síðan ástardrykkjarsalinn Dulcamara, herforinginn Belcore og vinkon- an Giannetta, auk hóps þorpsbúa sem fylgist náið með því hvern- ig atburðarásinni vindur fram. Aðalhlutverkin í Ástardrykknum syngja Garðar Thór Cortes, Dís- ella Lárusdóttir og Bjarni Thor Kristinsson. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir og Daníel Bjarnason er hljómsveitarstjóri. rVk grapeVine býður Tímaritið Reykjavík Grapevine býður á ókeypis tónleika áí kvöld ásamt tónlistarvefsíðunni gogo- yoko.com. Tónleikarnir fara fram í Nýlenduvöruverzlun Hemma og Valda klukkan 21.00 sem er til húsa á Laugavegi 21. Fram koma á tón- leikunum hljómsveitirnar Caterpill- armen, Muck og Plastic Gods. Hægt er að kynna sér málið á grapevine.is þar sem er einnig margt fleira í boði. Hafnfirskur Andrés Önd 26 föstudagur 23. október 2009 fókus Jóhannes (Laddi) keyrir fram á bens- ínlausa stelpu sem heitir Tóta (Unn- ur Birna) og er ungfrú Dalasýsla. Eitt leiðir af öðru og fyrr en varir er hann kominn í heitt bað heima hjá henni með cognac og beinstífan. Það fellur í frekar grýttan jarðveg þegar kærasti Tótu kemur heim í hlað, hann heit- ir Hnotubrjóturinn (Stefán Hallur) og er kolruglaður. Eins og þetta væri ekki nóg mun bókstaflega allt ann- að sem viðkemur Jóhannesi snúast honum í óhag á þessum föstudegi ógæfunnar. Þetta er kunnuglegt þema. Sögu- þráðurinn er eins og úr Andrésblaði nema fyrir fullorðna. Þessi klass- íski gæi sem mótar ekki eigin örlög heldur lætur atburðarásina leiða sig í endalausar ógöngur. Upphafið að því er gríðarleg meðvirkni gagnvart Tótu og síðar Friðriki (Stefán Karl), sem birtist hér sem lyfjaður Glanni glæp- ur með útlit Björgólfs Thors. Ótal misskilningar sameinast síðan í einu allsherjar uppgjöri eins og vaninn er með góðan farsa. Þorsteinn Gunnar leikstjóri stekkur beint í djúpu laugina og reynsluleysið sést á útkomunni. Vík- ingasveitin og hennar aðgerðir eru gervilegar. Almenna löggan er ým- ist veikluleg, barnaleg eða með há- fleygari talanda en Ingólfur sálugi í Heimsklúbbnum. Og kommon, hve- nær sástu seinast tollvörð með fjólu- blátt hár? Hnetubrjóturinn ógurlegi er síðan með tattú úr tyggjópakka og það aumur að miðaldra grunnskóla- kennari stingur hann af. Ósannfær- andi. Eins er hin tilfinningalega nánd við söguna fjarverandi. Óþarfi samt að dæma fyrstu mynd leikstjórans of hart því það er margt fínt hér. Tengdamóðir Jóhannesar og vinkonur hennar eru fyndnar í meira lagi og vel leiknar (Guðrún Ás- mundsdóttir og Herdís Þorvalds eru náttúrlega hoknar af reynslu). Nem- endur Jóhannesar eru góðir og Laddi sjálfur kemst vel frá þessu enda aldrei þvælst fyrir honum að vera „ómennt- aður“ sem leikari. Laddi hefur gefið okkur Íslendingum mikið og á köfl- um of mikið af hinu góða myndu ýmsir segja. En hann hefur öðlast „frændastatus“, hann er þarna sama hvort þér líkar betur eða verr. Myndin hefur klára annmarka en það er önnur leið að sjá þetta. Jóhannes er eins og fínt árshátíð- arstykki myndbandaklúbbs fram- haldsskóla sem rennur smurt og við þekkjum alla á tjaldinu. Það er nokk- uð sem má heldur ekki vanmeta. Erpur Eyvindarson Jóhannes „Eins og fínt árshátíðarstykki myndbandaklúbbs framhaldsskóla sem rennur smurt.“ Jóhannes Leikstjóri: Þorsteinn Gunnar Bjarnason Aðalhlutverk: (Laddi), Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, Stefán Karl Stefánsson kvikmyndir Leikkonan Emma Stone er á hraðri uppleið og sjálf seg-ist hún fyrst og fremst telja sig heppna þar sem þær fáu kvikmyndir sem hún hefur leikið í hingað til hafa gengið afskaplega vel. Hún hóf feril sinn í sjónvarpi árið 2005 en árið 2007 lék hún í gaman- myndinni Superbad sem sló hressi- lega í gegn. Þar lék hún á móti Jonah Hill, sem þykir með fyndnari mönn- um, og Michael Cera úr Arrested Development og Juno. Hún er svo ekki í verri félagsskap í grínhryll- ingsmyndinni Zombieland sem er frumsýnd á Íslandi um helgina. Þar fer hinn óborganlegi Woody Harrels- on á sínum alkunnu kostum og er fremstur meðal jafningja í sérkenni- legu fjóreyki ásamt Emmu, Jesse Eis- enberg og Abigail Breslin. Gagnrýnendur hafa yfirleitt tek- ið Zombieland höndum tveim og allt útlit er fyrir að vinsældir hennar verði litlu minni en Superbad þannig að það er óhætt að segja að stuttur ferill Emmu lofi góðu. Fær martraðir af hryllingsmyndum Uppvakningarnir í Zombieland sverja sig í ætt við önnur slík skrímsli í ótal „zombie“-myndum en þessi mynd sker sig þó úr að því leyti að hún er miklu fyndnari og meira létt- leikandi en myndir af þessu tagi eru yfirleitt. Uppvakningarnir eru eins og óskrifuð lög gera ráð fyrir heiladauð og skítug óféti sem hafa ekki áhuga á neinu öðru en að rífa í sig mannakjöt. Í Zombieland heyra Bandaríkin, eins og við þekkjum þau, sögunni til. Upp- vakningarnir hafa flætt yfir landið og þær fáu manneskjur sem enn halda lífi og hafa komist hjá því að smitast af óværunni eiga oftast útsjónarsemi sinni og fótum fjör að launa. Emma segist alls ekki vera gef- in fyrir hryllingsmyndir en hún hafi þó ekki þurft að hugsa sig tvisvar um þegar henni bauðst að vera með í Zombieland. „Ég lít ekki á þetta sem hryllingsmynd. Vissulega eru upp- vakningar í henni og þeir þykja nú almennt frekar hræðilegir og eru ógeðslegir hérna líka en myndin er bara svo fyndin að hún er nánast eins og gamanmynd út í gegn. Ég lít í það minnsta á Zombieland sem grínmynd.“ Emma segist aðspurð ekki eiga sér neinar uppáhaldshryllingsmynd- ir enda reyni hún frekar að sneiða hjá þeirri kvikmyndagerð. „Ég er al- veg meðvituð um að hryllingsmyndir geti verið mjög vel gerðar en ég er svo mikið barn að ég fæ bara martraðir af hryllingsmyndum,“ segir Emma og hlær. Persóna Emmu í Zombieland lætur sér hins vegar fátt fyrir brjósti brenna og er eitursvöl. „Ertu að segja að ég sé það ekki?“ spyr Emma hlæj- andi í ásökunartóni þegar eiginleikar persónunnar eru dregnir inn í sam- talið í kjölfar martraðajátninga leik- konunnar. Hörkugella með gullhjarta Í Zombieland leikur Emma unga konu sem kallar sig Wichita og er á ferð yfir Bandaríkin með Little Rock, litlu systur sinni, sem hún ætlar að fara með í tívolí í Los Angeles. Svona rétt til þess að sýna krakkanum að enn sé hægt að finna gleði í þeim viðbjóðslega heimi uppvakning- anna sem þær berjast fyrir lífi sínu í. Á leiðinni rekast þær á taugaveikl- aðan lúða sem Jesse Eisenberg leikur og snarbrjálað hörkutól sem Woody Harrelson túlkar af miklum krafti. Í fyrstu skerst í odda með hópunum en árásir uppvakninganna kenna þeim að snúa bökum saman. Wichita er ísköld á yfirborðinu og lætur sig örlög annarra en sín og systur sinnar í fyrstu litlu varða. Und- ir leðurjakka hörkugellunnar leynist hins vegar ljúf stúlka með hjarta úr gulli. „Ég varð strax mjög hrifin af per- sónu Wichita og hún var klárlega ein ástæða þess að ég laðaðist að handritinu. Ég heillaðist bæði af því hversu sterk hún er en líka viðkvæm og það er eitthvað sætt og krúttlegt við hana en samt er hún hörkunagli. Og mig langaði virkilega til þess að leika hana.“ Emma bætir við að hún hafi svo skemmt sér konunglega við gerð myndarinnar og það leynir sér svo sem ekkert þegar horft er á myndina að leikarahópurinn hefur gaman af þessu öllu saman. „Það er auðvitað eiginlega ekki annað hægt en að skemmta sér þegar maður er látinn fá stóra platbyssu og sagt að skjóta helling af uppvakningum. Það er mjög gaman! Svo eru Abby, Jesse og Woody svo skemmtileg og fyndin þannig að þetta var bara stanslaust stuð hjá okkur.“ Ekki spillti svo fyrir ánægjunni að sjálfur Bill Murray kemur við sögu en hann leikur sjálfan sig í myndinni og gerir í raun stólpagrín að sjálfum sér og ferli sínum. „Bill er bara fyndn- astur í heimi. Ég er mikill aðdáandi hans og maður verður að vera bæði hugrakkur og fyndinn til þess að gera það sem hann gerir í myndinni og hann er það svo sannarlega. Það var alveg frábært að hann fékkst til að vera með og gera þetta.“ Hafði trú á myndinni frá upphafi Eins og fyrr segir fór ferill Emmu af stað með látum með Superbad og allt útlit er fyrir að Zombieland muni tryggja framtíð hennar enn frekar þótt hún eigi enn eftir að fá tækifæri til þess að bera uppi heila mynd. „Ég veit ekki alveg hvað tekur við núna eftir Zombieland. Við verðum bara að sjá til. Næst á dagskránni hjá mér er mynd sem heitir Easy A og kem- ur í bíó á næsta ári. Ég veit ekki hvað gerist síðan en það verður fróðlegt að sjá hvað gerist og hvaða hlutverk mér bjóðast í kjölfar Zombielands. Ég hef verið mjög heppin hingað til og vin- sældir Suberbad hafa óneitanlega opnað mér ýmsar dyr og ef Zombie- land nær svipuðum árangri er óhætt að segja að ég sé mjög heppin stelpa.“ Emma segir góðar viðtökur áhorf- enda og gagnrýnenda á Zombie- land ekki hafa komið sér alveg í opna skjöldu. „Nei, ég get nú ekki sagt það. Mér fannst handritið svo fyndið þegar ég las það að ég var viss um að mynd- in myndi leggjast vel í fólk. Þetta er Gaman að drepa uppvakninga með platbyssu Bandaríska leikkonan Emma Stone hefur verið á hraðri uppleið eftir að hún lék aukahlutverk í gamanmyndinni Superbad fyrir tveimur árum. Hún nýtur sín í botn í grínhroll- inum Zombieland sem er frumsýnd- ur á Íslandi á föstudag. Þar sýn- ir hún sínar bestu hliðar og rennir sér á heillandi sjarmanum í gegn- um byssubardaga og blóðuga upp- vakninga í einni fyndnustu mynd ársins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.