Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2009, Blaðsíða 50
Hvað þýðir 2gHz í tölvunni minni? Tíðnin 2GHz þýðir að
klukka örgjörvans tifar 2 þúsund milljón sinnum á sekúndu. Örgjörvarnir
geta síðan framkvæmt fleiri en eina skipun á hverju klukkutifi. Þannig get-
ur gamli Pentium 4 örgjörvinn framkvæmt tvær til þrjár skipanir í einu, eftir
því um hvaða skipanir er að ræða. Það eru því framkvæmdar yfir fjögur
þúsund milljón skipanir á sekúndu í örgjörvanum! Nýrri útgáfur örgjörva
byggja á fleiri en einum kjarna, (Intel Core 2, Intel Core 2 Duo og Intel Core
Quad) og eru mun afkastameiri þrátt fyrir sömu tiftíðni.
apple í sókn
Þrátt fyrir yfirstandandi heims-
kreppu kom Apple-fyrirtækið
markaðsspekúlöntum í opna
skjöldu í vikunni þegar tilkynnt var
methagnað fyrirtækisins síðustu
þrjá mánuðina. Hagnaðurinn nam
1,67 milljörðum Bandaríkjadala og
er 46% aukning frá sama tímabili í
fyrra. Sem dæmi um sölutölur seldi
fyrirtækið 7,4 milljónir iPhone-síma
og 3.05 milljónir Apple-tölva á
tímabilinu. Eina vara fyrirtækisins
sem hefur dalað í sölu er iPod-
spilarinn en þar hefur salan dregist
saman um 8% á ársgrundvelli.
Hagnað Apple má að mestu leyti
skýra með vinsældum iPhone en
hann er nú seldur í um 40 löndum.
Auglýsingaherferð Apple sem
beinist að ungu fólki á leið í
framhaldsnám og þarf að velta fyrir
sér tölvukaupum hefur einnig skilað
ótrúlegum árangri.
iDriver
Þýska fyrirtækið Appirion sérhæfir
sig í hugbúnaði fyrir farsíma eins og
iPhone og þá síma sem keyra á
Androd-kerfinu frá Google.
Fyrirtækið er þessa dagana að þróa
hugbúnað í samvinnu við háskólann
í Berlín sem gerir kleift að fjarstýra
ökutækjum með iPhone-síma. Hægt
er að skoða myndskeið á YouTube
þar sem hugbúnaðurinn er
prufukeyrður á bíl á Tempelhof-
flugvellinum í Berlín. Það vekur
athygli að íslenski fáninn sést á hlið
bílsins og fyrirtækið Rafteikning þar
fyrir ofan.
usB 3.0 staðall
á næsta ári?
Eftirspurn eftir hraðvirkari jaðartækj-
um mun aldrei dvína. Nýr staðall fyrir
USB-tengingar virðist vera langt
kominn í þróun og má jafnvel búast
við að hann verði settur á markað á
næsta ári. USB 3.0 verður tíu sinnum
hraðvirkari en USB 2.0 og notar að
auki minni orku en forveri sinn.
Nokkrir vélbúnaðarframleiðendur
hafa þegar framleitt prufueintök af
ýmsum jaðartækjum fyrir hina nýju
tækni.
UmSjóN: Páll SvANSSoN, palli@dv.is
Windows 7 var sett á markað í gær
og tekur við af Windows Vista sem
hlaut vægast sagt slæmar viðtökur
almennings þegar stýrikerfið leit loks
dagsins ljós í janúar 2007, nokkrum
árum á eftir áætlun. Stýrikerfið þótti
ofhlaðið, illskiljanlegt og alltof þungt
í keyrslu. Nýr ritvinnslupakki Micro-
soft hlaut einnig slæmar viðtökur
vegna lélegrar samhæfni við eldri
útgáfur. Á endanum buðu flestir ef
ekki allir tölvuframleiðendur upp
á það að við kaup nýrrar tölvu gæti
notandinn ákveðið sjálfur hvort tölv-
an væri keyrð á gamla Windows XP
eða hinu nýja Vista. Og meirihlutinn
virðist hafa valið að keyra tölvur sín-
ar áfram á XP, stýrikerfi sem kom á
markað árið 2001 og verður átta ára
núna um helgina.
Það var ekki eingöngu almenn-
ingi sem leist illa á Vista, fyrirtæk-
in voru sama sinnis, að nota Vista
myndi skapa of mörg vandamál og í
mörgum tilvikum þyrfti að uppfæra
vélbúnað með tilheyrandi kostnaði,
eingöngu til að geta keyrt stýrikerf-
ið með góðu móti. Þegar upp komst
að Intel örgjörvaframleiðandinn,
stærsti samstarfsaðili Microsoft í
gegnum tíðina, hefði ákveðið að að-
eins brot af tölvum þúsunda starfs-
manna þess yrðu uppfærðar í Vista
var orðið ljóst að eitthvað mikið væri
að.
Bjöllur klingja
Viðvörunarbjöllur fóru nú að klingja
í höfuðstöðvum Microsoft og hausar
að fjúka. Í flýti var gerð ný aðgerða-
áætlun og ótrúlegum fjármunum
veitt í að skapa stýrikerfi sem myndi
verða einfalt, afkastamikið og létt í
keyrslu. Takmarkið var að útrýma
þeim göllum sem helst höfðu sætt
gagnrýni í Vista og setja sem fyrst á
markað raunhæfan kost til að upp-
færa úr Windows XP-stýrikerfinu.
Og miðað við viðtökur og umfjöll-
un um nýja stýrikerfið hefur það tek-
ist, flestir eru á þeirri skoðun að hér
sé komið á markað besta stýrikerfi
Microsoft frá upphafi.
Home eða Professional
Windows 7 er sett á markað í sex mis-
munandi útgáfum sem gæti kannski
valdið valkvíða hjá sumum. Það eru
þó aðeins tvær útgáfur sem flestir
þurfa að velja á milli; Home Premium
og Professional. Home Premium er
beint að hinum hefðbundna heima-
notanda með sína ritvinnslu, vefráp,
leiki og aðra afþreyingu. Profession-
al er hins vegar beint að fyrirtækjum
og öllu vinnutengdu ferli. Microsoft
býður upp á tvö smától sem hægt er
að nálgast á vefsíðu fyrirtækisins og
með keyrslu þeirra er hægt að ganga
úr skugga um hvort þín tölva sé hæf
til að keyra nýja stýrikerfið. Hægt er
að uppfæra úr Vista beint í Windows
7 en XP-notendur verða að gera svo-
kallaða hreina innsetningu kerfisins
sem þýðir að það verður að taka af-
rit af þeim skrám sem notandinn vill
ekki glata og innsetja þau síðan eftir
á. Einstaklingsútgáfa af Home Prem-
ium mun kosta á bilinu 19-20.000
krónur hér á landi.
iPhone og fistölvur
En vandamál Microsoft eru ekki
endilega úr sögunni, á meðan starfs-
menn fyrirtækisins unnu hörð-
um höndum við þróun og prófan-
ir á Windows 7, snéru almenningur
og vélbúnaðarframleiðendur sér
í auknum mæli að öðrum stýri-
kerfum. Apple-fyrirtækið blómstr-
aði þennan tíma og setti á markað
iPhone-símann og nýjar útgáfur af
iPod, hvortveggja vörur sem keyrðu
á sérútgáfum af OSX-stýrikerfi App-
le og gerði þær í raun að smátölvum.
Og heimurinn uppgötvaði fistölv-
ur, ódýrar og litlar ferðatölvur sem
keyrðu á Linux-stýrikerfum, fríum
stýrikerfum sem til eru í nokkrum
útgáfum. Í flýti brást Microsoft við
með því að leggja í bili á hilluna þá
ákvörðun um að taka Windows XP
alfarið af markaði og einbeitti sér nú
að því að bjóða það með sem flest-
um nýjum fistölvum.
Google í slaginn
Stærsta reiðarslagið kom þó þegar
Google-vefleitarrisinn tilkynnti um
þróun á nýju stýrikerfi sem hægt yrði
að keyra á fistölvum frítt. Búist er við
því að það komi á markað á haust-
mánuðum 2010. Google hefur bæði
fjármagn og getu til að þróa og upp-
færa slíkt stýrikerfi og Microsoft á í
raun ekkert svar gagnvart keppinaut
sem býður vöru sína frítt.
Spurningin er hvort Microsoft
nái að halda ráðandi markaðsstöðu
næstu misserin með tilkomu Wind-
ows 7. Tækniheimurinn hefur breyst
og ferskir vindar hafa blásið um
hann síðustu ár á meðan lognmoll-
an virðist hafa ráðið ríkjum í höfuð-
stöðvum Microsoft.
palli@dv.is
50 föstuDagur 23. október 2009 HelgarBlað
Home Premium Einstakl-
ingsútgáfa af Home Premium
mun kosta á bilinu 19-20.000
krónur hér á landi.
komið á markað
winDows 7
Fyrir fram pantanir á
hinu nýja stýrikerfi
Microsoft; Windows
7, ætla að slá öll fyrri
met í sölu á stýri-
kerfi, segja forsvars-
menn amazon.com,
stærstu netverslunar
í heiminum.