Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2009, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2009, Side 10
10 föstudagur 23. október 2009 fréttir Eignarhaldsfélag í eigu Karls Wern- erssonar, Háttur ehf., skuldar honum, eða félagi í hans eigu, rúmlega 1200 milljónir króna. Karl er eini hluthafi félagsins sem heldur utan um eign- ir þess eins og Hrossaræktarbúið Fet, Hljóðfærahúsið og Grand Spa. Um er að ræða lánveitingar frá Karli, eða fé- lögum í hans eigu, til félagsins sem safnast hafa saman á liðnum árum. Heildarskuldir félagsins eru rúmlega 2,6 milljarðar króna. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins fyrir árið 2008 sem var skilað í lok september. Endurskoðandi sem DV ræddi við segir að það sé mjög óeðlilegt að eignarhaldsfélag skuldi hluthöf- um sínum peninga. Slíkar lánveit- ingar gætu brotið í bága við 104. grein hlutafélagalaga sem kveður á um lánveitingar frá félagi til tengdra aðila. Slíkar lánveitingar hafa ver- ið rannsakaðar í kjölfar efnahags- hrunsins, meðal annars hjá Hannesi Smárasyni. Samkvæmt ársreikningnum var tap af rekstri félagsins upp á rúmar 1.100 milljónir króna á síðasta ári og var eigið fé félagsins neikvætt upp á rúmlega 900 milljónir króna. Félagið er ekki eina félag Karls sem fór illa á árinu 2008 en hann var sem kunnugt er annar af eigendum eignarhalds- félagsins Milestone sem tekið hefur verið til gjaldþrotaskipta og er með skuldahala upp á meira en 40 millj- arða króna. Annað félag, Fundeni ehf. sem er að þriðjungshluta í eigu Karls, á sömuleiðis á brattann að sækja en það skilaði tapi upp á tæplega 550 milljónir króna á síðasta ári, sam- kvæmt nýlegum ársreikningi þess og á rúmenskt dótturfélag þess nú í við- ræðum við rúmenska lánardrottna sína um framtíð félagsins. Lán í stað hlutafjár Endurskoðandi sem DV hafði sam- band við segir ekki algengt að eigend- ur félaga láni þeim á þennan hátt. Þó mun það hafa tíðkast nokkuð í eign- arhaldsfélögum íslenskra auðmanna á liðnum árum, til dæmis hjá Hann- esi Smárasyni og Björgólfsfeðgum. Líklegasta skýringin á skuld fé- lagsins við eiganda sinn er þó sú, segir endurskoðandinn, að eigandi félagsins hafi lánað því peninga í staðinn fyrir að leggja því til hlutafé. „Hlutafé er alltaf fast í félaginu. Það er ekki hægt að taka það út og greiða sér það í formi arðs ... Hugsanlega vildi hann ekki festa peninga í fé- laginu sem hlutafé eða eiga á hættu að tapa því og gerði þetta því svona. Þetta er það eina sem mér dettur í hug því þetta er mjög óvenjulegt,“ segir endurskoðandinn og bætir því við gerningurinn líkist því sem kall- ast víkjandi lán. Ein af afleiðingum þess að lána fé- lagi í sinni eigu á þennan hátt er sú að ef félagið fer í þrot á eigandinn kröfu á hendur félaginu sem hann get- ur hugsanlega fengið greidda líkt og aðrir kröfuhafar ef rekstur félagsins gengur illa. Munurinn á kröfu hans og öðrum er þó sú að aðrar kröfur hafa forgang á hans sem aftur dregur úr möguleikunum á því að hann geti sótt kröfuna. Annað atriði sem gæti spilað inn í er að eigandi félagsins getur skráð lánveit- inguna sem eign hjá öðru félagi í sinni eigu og þar með virðist það fé- lag vera eigna- meira en ella. Ýmislegt í ársreikningn- um bendir til þess að þetta sé sennileg skýring því til að mynda greiddi Karl ekk- ert hlutafé inn í félagið á síðasta ári en lánaði því aftur á móti rúmar 365 milljónir króna, árið áður hafði lán Karls til félagsins verið upp á rúm- lega 611 milljónir króna. Endurskoð- andinn bendir jafnframt á að slíkar lánveitingar frá hluthafa til eigin fé- lags séu ekki endilega ólöglegar þótt þær séu óvenjulegar. Skuldar Kaupþingi milljarð Karl, eða félag í hans eigu, er sá að- ili sem félagið skuldar mest, en þar á eftir kemur Kaupþing sem félagið skuldar rúman milljarð króna, mest í japönskum jenum. Þessi erlendu lán vega þyngst í taprekstri félagsins á síðasta ári þar sem tap vegna geng- ismunar vegna veikingar íslensku krónunnar er rúmlega 550 milljónir og vaxtagjöldin nema rúmlega 250 milljónum króna. Félag Karls þarf að greiða Kaup- þingi 560 milljónir af skuldinni á þessu ári og má búast við að það gæti reynst erfitt þegar litið er á stöðu fé- lagsins. Eignir félagsins eru veðsett- ar fyrir skuldunum en bókfært verð þeirra er ekki nema tæpar 160 millj- ónir króna. Óefnislegar eignir þeirra eru hins vegar metnar á rúmar 600 milljónir króna og vegur Hrossarækt- arbúið Fet þar þyngst, en óefnislegar eignir þess eru metnar á tæpar 500 milljónir á meðan bókfært verð þess er ekki nema rúmar 6 milljónir. Kröfuhafar félagsins gætu því átt í erfiðleikum með að ná upp í kröf- ur sínar ef ganga þarf að eignum fé- lagsins en svipaða sögu má segja um Milestone þar sem kröfuhöfum var boðið að fá 5 prósent upp í kröfur sínar í nauðasamningum félagsins sem síðar var hafnað. Gjaldfallið lán í Rúmeníu Annað félag sem Karl á þriðjungshlut í, Fundeni ehf., skilaði sömuleiðis miklu tapi á síðasta ári, eða 547 millj- ónum króna, samkvæmt ársreikningi félagsins sem skilað var í september. Fundeni ehf. á 40 prósenta hlut í hol- lenska eignarhaldsfélaginu De Barte Gelderland B.V. Hlutafé þess félags, sex milljónir evra eða rúmlega millj- arður króna, hefur verið skrúfað nið- ur, að því er segir í ársreikningnum, og á Fundeni því ekki lengur hlut í fé- laginu. De Barte Gelderland á svo aftur rúmenska félagið Downtown Inter- national en það félag á 45.000 fer- Eignarhaldsfélag í eigu Karls Werners- sonar var rekið með tapi upp á rúman millj- arð króna á síðasta ári. Tæplega helmingur 2,6 milljarða króna skulda félagsins er við Karl sjálf- an. Endurskoðandi segir slík lán vera óvenjuleg. Lán annars félags sem Karl á að hluta í gegnum tvö önnur gjaldféll hjá rúmenskum banka í ágúst. KARL LÁNAÐI SJÁLFUM SÉR RÚMAN MILLJARÐ „Þetta er það eina sem mér dettur í hug því þetta er mjög óvenju- legt.“ InGI F. VILhjáLmSSon blaðamaður skrifar ingi@dv.is Hannes lánaði sjálfum sér Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra hefur rannsakað lánveitingar frá FL Group til Hannesar Smárasonar á árunum 2005-2007, líkt og kom fram í Fréttablaðinu í júní í sumar. Samtals námu lánveitingarnar til Hannesar 46 milljónum Bandaríkjadala. Grunur leik- ur á að Hannes hafi með lánveitingun- um brotið 104. grein hlutafélagalaga. Máli Karls svipar til máls Hannesar þótt ekki sé vitað hvaðan lánveitingarnar til Háttar komu. Þá er tekið skýrt fram í ársreikningnum að hluti skulda félagsins sé við „hluthafa“.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.